Morgunblaðið - 04.09.2018, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2018
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Hádegistónleikaröð Hafnarborgar
hefur göngu sína í dag, þriðjudag, kl.
12, fimmtánda starfsárið í röð. Á
þessum fyrstu tónleikum haustsins
kemur Kristinn Sigmundsson, bassi
og einn ástsælasti söngvari þjóðar-
innar, fram ásamt Antoníu Hevesi pí-
anóleikara, sem verið hefur listrænn
stjórnandi tónleikaraðarinnar frá
upphafi. „Þetta verður í fyrsta sinn,“
segir Kristinn þegar hann er spurður
hversu oft hann hafi sungið á
hádegistónleikum í Hafnarborg. „Við
Antonía þekkjumst hins vegar vel úr
óperunni þar sem við höfum unnið
saman,“ segir Kristinn og tekur fram
að flygillinn í Hafnarborg sé fyrir-
taks gripur og hljómburðurinn í saln-
um góður.
„Við munum flytja nokkrar óperu-
aríur,“ segir Kristinn þegar hann er
spurður um efnisskrá tónleikanna.
„Ég mun syngja aríu Sarastrós úr
Töfraflautunni eftir Mozart, aríu
Leporellos úr Don Giovanni eftir
Mozart, aríu Bancos úr Macbeth
eftir Verdi, aríu Basilios úr Rakar-
anum frá Sevilla eftir Rossini og svo
kemur bara í ljós hvað fleira stemn-
ingin býður upp á.“
Kristinn hefur síðustu þrjá áratugi
komið fram í óperu- og tónleika-
húsum víðs vegar um heim, m.a. í
New York, San Francisco, Los Ang-
eles, Milano, London, Berlín,
Amsterdam, Brussel, Tókýó og Beij-
ing. „Þegar mest var dvaldi ég er-
lendis við störf í allt að níu mánuði að
ári, en það verður ekki aftur. Ég
hugsa að ég dvelji þó í dag hátt í fjóra
til fimm mánuði við störf erlendis á
hverju ári,“ segir Kristinn, sem um
miðjan mánuðinn heldur til Houston
í Texas til að syngja hlutverk
Dalands í Hollendingnum fljúgandi.
„Ég verð í Houston fram í miðjan
nóvember. Ég kem heim í nokkrar
vikur áður en ég held til Óslóar þar
sem ég verð fram í miðjan febrúar að
syngja hlutverk Danskers, gamla
sjómannsins í Billy Budd eftir Ben-
jamin Britten hjá Norsku óperunni,“
segir Kristinn og tekur fram að bæði
verði þetta í fyrsta skipti sem hann
takist á við umrætt hlutverk og syngi
hjá Norsku óperunni.
Breytist í klám og guðlast
„Ég er að berjast við að læra hlut-
verkið,“ segir Kristinn kíminn og
viðurkennir að með aldrinum taki
sífellt lengri tíma að læra nýja hluti.
„Það fer reyndar eftir því hversu erf-
ið eða auðveld tónlistin sjálf er og á
hvaða tungumáli er sungið,“ segir
Kristinn og rifjar upp að erfiðasta
tungumálið sem hann hafi á ferlinum
sungið á sé tékkneska, en fyrir
nokkrum árum söng hann hlutverk
Vodníks í Rusölku eftir Dvorák.
„Í tékknesku eru t.d. sex eða sjö
afbrigði af bókstafnum s og rangur
framburður getur breytt um merk-
ingu orðs þannig að þetta verði klám
eða guðlast. Ég lenti einu sinni í því
að tékkneskur hljómsveitarstjóri
fékk svo heiftarlegt hláturskast á æf-
ingu vegna framburðar hjá mér að
hann varð að stöðva æfinguna og
spurði mig svo hvort ég gerði mér
grein fyrir hvað ég hefði verið að
segja,“ segir Kristinn og bendir á að
tímarnir séu breyttir og því megi
söngvarar búast við að öll mistök
þeirra rati á netið.
„Í gamla daga fór tónninn út í loft-
ið og var þar með dauður. Hann lifði
aðeins í minningu áheyrenda. Í dag
er allt tekið upp og iðulega sent út
beint,“ segir Kristinn og rifjar upp að
hann hafi vanist því að syngja alltaf
með hljóðnema á sviðsbrúninni þeg-
ar hann söng hjá bæði Metro-
politan-óperunni og Parísaróper-
unni. „Hjá Metropolitan eru um
fimm þúsund manns í salnum, þannig
að það munar ekki um alla þá sem
sitja við viðtækið, hvort heldur er út-
varpið eða tölvuna, úti í heimi,“ segir
Kristinn og víkur því næst að sviðs-
skrekk söngvara, sem hann segir
„merkilegt fyrirbæri“. „Það að
syngja fyrir eina manneskju sem
maður þekkir ekki getur verið jafn
stressandi og að syngja fyrir hundr-
að eða þúsund manns. Vegna þess að
upplifunin af því sem maður er að
gera er alltaf einstaklingsbundin.
Þegar ég áttaði mig á því minnkaði
sviðsskrekkurinn og það hætti að
skipta máli hversu margir áhorfend-
urnir eru.“
Í ljósi þess að Kristinn hefur á
löngum og farsælum ferli sungið yfir
100 óperuhlutverk og gæti væntan-
lega ferðast um heiminn og einvörð-
ungu sungið hlutverk sem hann
þekkir vel liggur beint við að spyrja
hvers vegna hann taki enn að sér ný
hlutverk. „Það heldur mér á tánum
að læra ný hlutverk og mér finnst
spennandi að takast á við nýja hluti.
Ég gæti hæglega sungið t.d. Daland
úti um allan heim. En það þarf að
vera eitthvað sem reynir á mann.
Annars sofnar maður inni í sér. Hlut-
verk mitt í Billy Budd er ekki stórt,
en þetta er spennandi ópera,“ segir
Kristinn, en E. M. Forster og Eric
Crozier sömdu líbrettóið sem byggir
á samnefndri smásögu eftir Herman
Melville. „Sagan gerist um borð í
skipi seint á 18. öld og er býsna
dramatísk. Þetta er mjög flott
stykki,“ segir Kristinn.
Bæði ljúft og skylt að kenna
Síðustu árin hefur Kristinn verið
gestaprófessor við Listaháskóla
Íslands, þar sem hann er í 30% stöðu-
gildi. „Þegar ég er hér heima er ég
mjög mikið að kenna,“ segir Krist-
inn, sem auk þess að kenna við LHÍ
kennir við Söngskólann í Reykjavík
og aðstoðar nemendur í óperudeild
Söngskóla Sigurðar Demetz við
sviðsuppfærslur.
„Það er mér bæði ljúft og skylt að
kenna. Mér finnst það skylda mín að
skila einhverju broti af reynslu minni
til þeirra sem eru að byrja í faginu og
upplýsa unga fólkið um það á hverju
það gæti átt von, hvað beri að varast
og hvernig skynsamlegt sé að vinna.
Svo hef ég alveg óskaplega gaman af
því að kenna. Ég geng auðvitað út frá
því að ég sé með áhugasama og
vinnusama nemenda. Þegar maður
sér framfarirnar hjá fólkinu sem
maður er að kenna þá er það alveg
óskaplega gefandi. Það er hrein un-
un.“
Aðspurður segist Kristinn reikna
með að dvöl hans langtímum saman
erlendis muni minnka þegar fram í
sækir. „Sem stendur er ég þó með
verkefni bókuð fram til ársins 2020.
Á meðan menn sækjast enn eftir
kröftum mínum og ég hef heilsu og
áhuga á að sinna því geri ég það nú,“
segir Kristinn.
Hádegistónleikar eru á dagskrá
Hafnarborgar fyrsta þriðjudag hvers
mánaðar yfir vetrartímann. Þeir
hefjast kl. 12 og standa yfir í um
hálfa klukkustund.
„Heldur mér á tánum“
15. starfsár hádegistónleikaraðar-
innar í Hafnarborg hefst í dag kl. 12
Ljósmynd/Áslaug Íris Friðjónsdóttir
Samstarf Antonía Hevesi og Kristinn Sigmundsson í Hafnarborg.
Guðrún Nielsen opnar myndlistar-
sýninguna Breytingar í sýningar-
sal SÍM, Sambands íslenskra
myndlistarmanna, að Hafnarstræti
16 á morgun kl. 17. Guðrún sýnir
ljósmyndaröðina Fjallaseríu 2014
–2018 ásamt innsetningunni
Ferðalög 2000 – 2015.
„Undanfarin ár hefur Guðrún
Nielsen orðið vitni að hægfara
breytingum í nærumhverfi vinnu-
stofu sinnar í Gufunesi. Á vinnu-
svæðinu fer fram endurvinnsla og
flokkun þar sem hringrás og niður-
brot efna, svo sem timburs og
plasts, á sér stað. Úrgangurinn
hleðst upp og verður að mann-
gerðum fjöllum sem staldra aðeins
stutt við í borgarlandslaginu en
færast svo til eða hverfa,“ segir
um sýninguna í tilkynningu. Guð-
rún lauk námi frá skúlptúrdeild
Myndlistar- og handíðaskóla Ís-
lands árið 1989, framhaldsnámi í
myndlist við Chelsea College of
Art and Design í London árið 1992
og MA-námi í skúlptúr og um-
hverfisfræðum við East London-
háskólann árið 1995. Hún hefur
lengst af starfað í Bretlandi og
hefur unnið samkeppnir og hlotið
ýmsar viðurkenningar fyrir verk
sín. Guðrún hefur haldið einkasýn-
ingar og tekið þátt í fjölda samsýn-
inga víðs vegar um heiminn og þá
meðal annars í Bretlandi, Þýska-
landi og Ástralíu.
Sýningin stendur yfir til 24.
september og er opin á virkum
dögum kl. 10-16.
Umbreyting Innsetningin Ferðalög 2000-2015.
Breytingar í sal SÍM
ICQC 2018-20
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
R
og
og