Morgunblaðið - 13.09.2018, Page 32
Vettvangur Nefndarmenn í umhverfis- og samgöngunefnd kynntu sér
framkvæmdir við Dýrafjarðargöng.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Formaður umhverfis- og samgöngu-
nefndar Alþingis telur að gera þurfi
ráð fyrir endurbótum á veginum frá
Reykhólum að Vestfjarðavegi við mat
á tillögu norskra ráðgjafa um þverun
Þorskafjarðar við Reykjanes. Þegar
sá kostnaður bætist við og leiðin bor-
in saman við jarðgangaleið og Teigs-
skógarleið Vegagerðarinnar muni
Teigsskógarleiðin koma betur út á
alla mælikvarða.
Umhverfis- og samgöngunefnd fór
í vinnuferð um Vestfirði fyrir helgi og
skoðaði þá meðal annars Teigsskóg
og hugmyndir um hugsanlegar veg-
línur.
Ný tillaga metin
Vegagerðin er nú að meta tillögur
frá norsku verkfræðistofunni Multi-
consultant um brú yfir mynni Þorska-
fjarðar, á milli Skálaness og Reykja-
ness, samkvæmt ósk hreppsnefndar
Reykhólahrepps. Samkvæmt henni
er gert ráð fyrir að vegurinn fari um
Reykhóla en ekki er gert ráð fyrir
kostnaði við nýjan veg frá Reykhól-
um að Vestfjarðavegi en það er um 14
kílómetra leið. Þannig yrði óveruleg-
ur kostnaðarmunur á milli þeirrar
leiðar og leiðarinnar sem Vegagerðin
og sveitarstjórn höfðu áður ákveðið
og þvera mun tvo firði og liggja með
suðurströnd Þorskafjarðar og í gegn-
um Teigsskóg.
Berþór Ólason, formaður umhverf-
is- og samgöngunefndar, segir að
ekki sé hægt að líta fram hjá kostnaði
við Reykhólaveg við þennan sam-
anburð. Hann sé mjór og hæðóttur og
ef umferð um hann margfaldist þurfi
að endurnýja hann. Verði sá kostn-
aður tekinn með í dæmið telur Berg-
þór að Teigsskógarleiðin komi betur
út á alla mælikvarða sem lagðir eru á
veglínu, kostnað og umferðaröryggi.
Sterk rök þurfi til að víkja frá þannig
veglínu.
Vegagerðin stefnir að því að ljúka
athugun sinni í þessum mánuði.
Hreppsnefnd bíður með að gefa út
framkvæmdaleyfi vegna Teigsskógar
á meðan hún fer fram. Sú leið er langt
komin í undirbúningi fyrir útboð.
Verði önnur leið fyrir valinu verða enn
meiri tafir á því að verkið geti hafist.
Sterk rök þarf til
að víkja frá veglínu
Umhverfis- og
samgöngunefnd
í vettvangsferð
í Þorskafirði
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018
fyrir öll tölvurými og gagnaver
Kæling
Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is
Við tökum út
og þjónustum
kæli- og
loftræsti-
kerfi
Bernhard - Honda á Íslandi
Vatnagörðum 24 • 104 Reykjavík • Sími 520 1100 • www.honda.is
Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800 • Bílver, Akranesi, sími 431 1985
Höldur, Akureyri, sími 461 6020 • Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535
VERÐ KR. 1.690.000
4X4 • AFLSTÝRI • DCT SJÁLFSKIPT
SJÁLFSTÆÐ FJÖÐRUN • VATNSKÆLT
TRX420FA6
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
„Fólk er óttaslegið og stressað, maður finn-
ur það. Það eru bílaraðir á götunum og
seinkanir á vegum. Það er búið að vera upp-
lausnarástand,“ segir Gyða Kolbrún Jones,
íslensk kona búsett í Jacksonville í Norður-
Karólínuríki í Bandaríkjunum.
Íbúar á austurströnd Bandaríkjanna búa
sig nú undir komu fellibylsins Flórens sem
er nú við Bermúda-eyjar og mun líklegast
ná landi aðfaranótt föstudags. Neyðar-
ástandi hefur verið lýst í Norður- og Suður-
Karólínu, Virginíu, Mary-
land og höfuðborginni
Washington.
Búist er við því að felli-
bylurinn komi á land í
Wilmington-sýslu í Norð-
ur-Karólínu sem er í um
það bil 45 mínútna akst-
ursfjarlægð suður af Jack-
sonville þar sem Gyða býr.
Erlendir veðurfræðing-
ar telja að stormurinn
muni stefna rakleiðis norður í átt að Jack-
sonville þegar hann nær landi.
„Svæðinu var lýst sem hættusvæði í gær-
morgun og öllum skipað að koma sér í
burtu. Það hafa margir farið og það er hálf-
tómt hérna. Allar búðir og hillur eru tómar,
vatn og bensín er búið. Síðan verður út-
göngubann líkega sett á snemma í fyrra-
málið vegna hættu á flóðum,“ segir Gyða.
Gyða og eiginmaður hennar ætla þó ekki
að flýja hættuna sem fylgir fellibylnum og
munu gista heima hjá sér. Gyða hefur skráð
sig í vinnu hjá FEMA (Federal Emergency
Management Agency), einskonar almanna-
vörnum þar ytra og mun fá það hlutverk að
vakta verslanir og fyrirtæki. Lögregluyfir-
völd munu ekki sinna útköllum á meðan byl-
urinn er í hámarki. Gyða segir yfirvöld og
aðra búast við manntjóni og eyðileggingu
vegna fellibylsins. Gert er ráð fyrir því að
rafmagn geti farið af í allt að tvær vikur.
„Já, það er alltaf búist við mannfalli í
svona stórum stormum. Flóðin eru eiginlega
hættulegust. Hér er mikið af ám og vötnum,
og það flæðir mjög fljótt yfir bakka,“ segir
Gyða og bætir við:
„Það er lognið á undan storminum núna.
Sól og fuglasöngur en þeir segja að við eig-
um að finna fyrir rigningu og vindhviðum í
kvöld.“
Fólk undirbýr flótta vegna Flórens
„Það er alltaf búist við mannfalli í svona stórum stormum“ „Flóðin eru eiginlega hættulegust“
Fellibylur Hillur í verslunum eru tómar og umferðaröngþveiti ríkir víða í Jacksonville. Útgöngubann verður sett á um það bil tólf tímum áður en fellibylurinn nær landi.
Ljósmyndir/Gyða Kolbrún Jones
Gyða Kolbrún
Jones