Morgunblaðið - 14.09.2018, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2018
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þrautirnar sem við þurfum að leysa í
kepninni eru allar okkur kunnar úr
daglegu starfi. Að rúlla út slöngum og
gera þær upp er hluti af slökkvistarfi
á vettvangi og hin atriðin æfum við
reglulega. Að vera í góðu formi er af-
ar mikilvægt fyrir slökkviliðsmenn
enda æfum við stíft og á öllum stöðv-
unum hér á höfuðborgarsvæðinu er
líkamsræktaraðstaða sem við notum
mikið,“ segir Ómar Ágústsson
slökkviliðsmaður.
Fyrirmynd frá útlöndum
Á morgun, laugardag, verður á
Varmá í Mosfellsbæ haldið Íslands-
mót slökkviliða. Lengi tíðkaðist að
slökkviliðs- og sjúkraflutningafólk af
öllu landinu mættist á mótum sem
þessum en nú verður í fyrsta sinn
efnt til eiginlegrar slökkviliðskeppni.
Fyrirmynd þessa kemur frá útlönd-
um; víða um heim eru haldnir stórir
íþróttaviðburðir fyrir slökkvilið, þar
sem keppt er í greinum sem tengjast
starfinu. Er þá notast við búnað sem
er notaður af slökkviliðum við raun-
veruleg verkefni.
Fyrirkomulag keppninnar nú
um helgina er að fyrst, eins og að
framan greinir, rúlla keppendur út og
gera upp slöngur. Svo þurfa þeir að
bjarga og draga áfram 70 kílóa brúðu,
eins og lifandi manneskja væri. Einn-
ig bera tvo 25 kílóa froðubrúsa og
vinna með sleggju. Allt eru þetta at-
riði sem reyna verulega á þrek fólks
og úthald – og þá er mikilvægt að
koma vel undirbúinn til keppni. Verð-
laun verða veitt í karla- og kvenna-
flokki og hljóta sigurvegarar titlana
Hraustasti slökkviliðsmaður og -kona
Íslands 2018. Annar hluti af keppn-
inni er svo sá að slökkviliðsmenn
reyna með sér í fótbolta, kraftlyft-
ingum og golfi, en mótið stendur yfir
frá kl. 9 til 17 á laugardaginn. Sjálf
slökkviliðskeppnin hefst kl. 13 og eru
allir velkomnir. Jafnhliða henni eru á
svæðinu leiktæki fyrir börn og fleira
skemmtilegt.
Þátttakendur víða að
„Það er mikill áhugi meðal
slökkviliðsmanna á þessari keppni.
Héðan af höfuðborgarsvæðinu koma
minnst 15 þátttakendur og svo eigum
við von á mannskap frá Akureyri,
Selfossi og Suðurnesjunum. Þetta
verður afar skemmtilegt,“ segir Óm-
ar Ágústsson, sem hefur verið í
slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu
frá 2015 og líkar vel.
Rúlla út slöngum, draga
brúðu og bera brúsana
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Slökkviliðsmenn Ómar Ágústsson, til vinstri, og Gylfi Jónsson sýndu tilþrif og takta á æfingu í gærmorgun.
Íslandsmót slökkviliða verður í Mosfellsbæ á laugardag
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Margar gerðir
af innihurðum
Hjá Parka færðu gullfallegar
innihurðir frá Grauthoff.
Mikið úrval, sjón er sögu ríkari!
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Margar gerðir
af innihurðum
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
þingmaður Miðflokksins, er fyrsti
flutningsmaður þingsályktunartillögu
um óréttmæti
málshöfðunar Al-
þingis gegn ráð-
herrum og afsök-
unarbeiðni sem 15
þingmenn úr
þremur flokkum
leggja fram. Auk
Sigmundar eru
flutningsmenn
hennar sex þing-
menn Miðflokks-
ins, sex þingmenn
Sjálfstæðisflokks og tveir úr Flokki
fólksins.
Tillagan var lögð fram á síðasta
þingi og er nú endurflutt óbreytt.
Hún gengur út á að Alþingi álykti að
rangt hafi verið að leggja fram tillögu
til þingsályktunar um málshöfðun
gegn ráðherrum hinn 28. september
2010 vegna pólitískra aðgerða eða að-
gerðaleysis og er þar vísað til þings-
ályktunar nr. 30/138. Einnig að rang-
lega hafi verið staðið að atkvæða-
greiðslu um tillöguna og rangt hafi
verið að samþykkja hana.
Viðkomandi ráðherrar verðskuldi
afsökunarbeiðni vegna þessa frá hlut-
aðeigandi aðilum. Kosið var um máls-
höfðun vegna embættisfærslna fjög-
urra ráðherra; Geirs H. Haarde
forsætisráðherra, Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur utanríkisráðherra,
Björgvins G. Sigurðssonar viðskipta-
ráðherra og Árna M. Mathiesen fjár-
málaráðherra. Sá eini sem samstaða
náðist um að höfða mál gegn var Geir.
Ekki tilefni til ákæru
Í texta tillögunnar benda flutnings-
menn m.a. á að niðurstaða landsdóms
hafi sýnt að ekki hafi verið tilefni til
ákæru. Samræmis við beitingu laga
um landsdóm hafi ekki verið beitt því
lögunum hafi ekki verið beitt í öðrum
tilvikum er varði stjórnmálalegar
ákvarðanir og aðgerðir sem stefnt
hafi hagsmunum ríkisins í hættu.
Þá hafi atkvæðagreiðsla um máls-
höfðun borið merki um að niðurstaða
um hverja skyldi ákæra hefði annað-
hvort verið tilviljanakennd eða skipu-
lögð eftir flokkspólitískum línum.
Mikilvægt sé að árétta að dómsvaldi
megi aldrei beita í pólitískum tilgangi.
Í tillögunni segir ennfremur að lýð-
ræðislegu stjórnarfari landsins standi
ógn af því ef reynt sé að fá starfandi
eða fyrrverandi stjórnmálamenn
dæmda til fangelsisvistar vegna
starfa sinna án þess að um hafi verið
að ræða ásetning um brot.
Alþingi álykti að máls-
höfðun hafi verið röng
15 þingmenn vilja að Alþingi biðjist
afsökunar á landsdómsmálinu
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson