Morgunblaðið - 14.09.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.09.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2018 8 Vöruflokkar · 200 PLU númer · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · Rafrænn innri strimill · Mjög auðveld í notkun Verð kr. 49.900,- ORMSSON.IS LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800 99 vöruflokkar · Allt að 2000 PLU númer · Rafrænn innri strimill 9000 línur · Stór LCD skjár · SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · íslenskur strimill· Mjög auðveld í notkun Verð kr. 74.900,- 99 vöruflokkar · Allt að 2000 PLU númer · Rafrænn innri strimill 9000 línur · Stór LCD skjár · SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · íslenskur strimill· Mjög auðveld í notkun Verð kr. 79.900,- XE-A217BXE-A207BXE-A147B ÖRUGGAR OG ENDINGARGÓÐAR 40 ár á Íslandi VæNtANLE GuRVerð kr. 74.900,- Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég var orðin leið á aðhanga í sófanum heimahjá mér, strákarnir mínirfluttir að heiman og ég ein í kotinu. Mig hafði lengi langað til að ferðast samfleytt í einhverja mánuði svo ég lét bara vaða. Ég var búin að safna mér pening og ekkert til fyrir- stöðu að hoppa út í djúpu laugina. Áð- ur en ég lagði upp í þessa langferð losaði ég mig við mikið af verald- legum eigum, seldi og gaf sem mest ég mátti. Og ég tók aðeins með mér sjö kílóa bakpoka í þessa ferð, það er mikið frelsi að ferðast létt, maður þarf ekkert meira en þetta,“ segir Guðrún Pétursdóttir, eða Gunna Pé eins og hún er oftast kölluð, en hún gerði sér lítið fyrir og lagði nú í ágúst ein upp í langt bakpokaferðalag, rúmlega fimmtug konan. Hún var stödd á Gili Air, eyju í Indónesíu, þegar blaðamaður náði tali af henni. „Ég byrjaði í Víetnam, var þar í þrjár vikur, og þaðan fór ég hingað til Balí, þar sem ég hef verið í tvær vik- ur. Næst fer ég til Singapúr og senni- lega til Indlands eftir það. Frá Asíu ætla ég svo til Grikklands. Ég ætla að vera á þvælingi í þrjá til fjóra mánuði, en að því loknu ætla ég til Spánar að læra spænsku og vera þar fram á vorið,“ segir Guðrún sem er í ársleyfi frá vinnu, en hún er skólastjóri og kennari á Flúðum í Hrunamanna- hreppi. „Ég planaði ferðalagið ekki of mikið fyrirfram því ég ákvað að láta ráða för hvernig liggur á mér hverju sinni og hvert forvitnin rekur mig. Ég er mjög forvitin að eðlisfari og hef óskaplega gaman af fólki, menningu og öðru sem verður á vegi mínum. Fyrir vikið læt ég bara ráðast hversu lengi ég staldra við á hverjum stað. Mér finnst mjög þægilegt að ferðast með þeim hætti. Ég hitti oft fólk sem segir mér sögur af einhverjum áhugaverðum stað og þá skelli ég mér þangað,“ segir Gunna, sem aldr- Flinkar að bera á höfði Glæsilegar konur á leið heim í Ubud. Saumakona í Ubud Fólkið í Asíu er oft glaðlynt við störf sín. Eftir jarðskjálfta Byggingarefni borið í land á Gili Trangwan. Fröken forvitin fer ein út í heim „Maður verður að láta vaða, það þýðir ekkert annað. Það er líka lang- skemmtilegast,“ segir Gunna Pé sem stökk með sjö kílóa bakpoka í nokk- urra mánaða ferðalag. Góðar saman Gunna með Frei, yndislegum gestgjafa sínum í fjallaþorpinu Tá Van, en Frei sem leit út eins og barn, reyndist vera tveggja barna móðir. Slakað á Gömul, þreytt og tannfá sölukona með ávexti í bænum Hôi An. Á hækjum sér Allra handa fiskur, stór og smár, er til sölu víða í Víetnam.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.