Morgunblaðið - 14.09.2018, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2018
Meðalævilengd íbúa Evrópuríkja
heldur áfram að aukast en fjölgun
þeirra sem eru of feitir eða of þungir
gæti snúið þeirri þróun við, sam-
kvæmt nýrri skýrslu sem Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin (WHO)
hefur birt.
Skýrslan byggist á rannsókn sem
náði til 53 Evrópulanda og nálægra
ríkja í Asíu. Þar kemur meðal ann-
ars fram að meðalævilengdin jókst
úr 76,7 árum árið 2010 í 77,8 fimm
árum síðar. Meðalævilengd kvenna
var 81,1 ár og karla 74,6 árið 2015.
Mikill munur var á lífslíkunum
eftir löndum. Meðalævilengd karl-
manna á Íslandi var 81,4 ár og þeir
lifa næstum 16 árum lengur en karl-
menn í Kasakstan (65,7 ár), að því er
fram kemur í skýrslunni.
Offita algeng í Tyrklandi
Hlutfall þeirra sem teljast of feitir
hefur einnig hækkað. 23,3% íbúa
landanna voru of feit árið 2016,
tveimur prósentustigum fleiri en sex
árum áður. 58,7% íbúanna voru of
þung, 2,8 prósentustigum fleiri en
árið 2010. Við skilgreiningu á offitu
notar Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin svonefndan líkamsþyngdar-
stuðul (BMI) sem er reiknaður út
frá hæð og þyngd. Þeir sem eru með
BMI-stuðulinn 30 teljast of feitir,
þannig að þeir sem eru um 170 cm á
hæð eru of feitir ef þeir eru meira en
87 kíló að þyngd.
Fjölgun þeirra sem eru of feitir er
mest í Tyrklandi. Næstum fjórar af
hverjum tíu tyrkneskum konum eru
of feitar, samkvæmt skilgreining-
unni. Offituhlutfallið er hátt í tveim-
ur öðrum löndum. Á Möltu er það
29,8% og Bretlandi 27,8%.
Færri reykja
Í skýrslunni kemur einnig fram að
hlutfall reykingamanna og þeirra
sem drekka áfengi er hátt í Evrópu
miðað við aðrar álfur. Um 29% íbúa
yfir 15 ára aldri í Evrópulöndunum
reykja, en í Suðaustur-Asíu er hlut-
fallið 24,8% og Ameríkulöndum
16,9%.
Hlutfall reykingamanna er 43,4%
í Grikklandi, 39,5% í Rússlandi og
28,1% í Frakklandi, samkvæmt töl-
um Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar frá 2013.
Meðalhlutfall þeirra sem reykja
daglega hefur þó lækkað í Evrópu-
löndunum, úr 28,1% árið 2002 í
24,4% árið 2014.
Drykkja áfengis hefur einnig
minnkað í Evrópulöndunum frá
fyrsta áratug aldarinnar. Að meðal-
tali drukku íbúar þeirra 8,6 lítra af
áfengi hver árið 2014. Áfengis-
drykkjan er meiri í Evrópu en í öðr-
um heimsálfum.
Meðalævilengdin
eykst í Evrópu
Hlutfall of feitra íbúa hækkar
Meðalfjöldi ára sem íbúar Evrópulanda eru líklegir til að lifa
heilbrigðir eftir að þeir ná 65 ára aldri.
Karlmenn Konur
Lífslíkur Evrópumanna eftir 65 ára aldur
Heimild: Skýrsla Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar/Eurostat
5 ár 5 ár101520 10 15 20
Svíþjóð
Noregur
Ísland
Malta
Þýskaland
Írland
Danmörk
Belgía
Frakkland
Bretland
Búlgaría
Holland
Finnland
Spánn
Lúxemborg
Tékkland
Pólland
Austurríki
Slóvenía
Grikkland
Ítalía
Kýpur
Ungverjal.
Rúmenía
Litháen
Portúgal
Eistland
Króatía
Lettland
Slóvakía
Tveir Rússar, sem bresk yfirvöld saka um að
hafa gert eiturárás á fyrrverandi rússneskan
njósnara í Bretlandi, neita ásökuninni og
segjast aðeins hafa farið þangað sem ferða-
menn. Rússneska ríkissjónvarpið RT hefur
sýnt viðtal við mennina tvo sem heita Alex-
ander Petrov og Rúslan Boshírov. Bresk yfir-
völd telja að þeir starfi fyrir leyniþjónustu rússneska hersins og hafi reynt að
myrða Sergej Skrípal, fyrrverandi njósnara, með eitri í Salisbury í mars.
Mennirnir sögðust hafa verið í fríi í Bretlandi og ferðast til Salisbury að ráði
vinar en farið þaðan vegna snjókomu eftir að hafa verið þar í um klukku-
stund. Áður hafði Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagt að mennirnir tveir
væru „óbreyttir borgarar“ og tengdust ekki neinum glæpum á nokkurn hátt.
Talsmaður breska forsætisráðuneytisins sagði að staðhæfingar mannanna
í viðtalinu væru „lygar og blygðunarlaus uppspuni“.
EITURÁRÁSIN Á SKRÍPAL Í BRETLANDI
Neita sök og segjast hafa verið ferðamenn
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Samtök bandarískra fyrirtækja hafa
tekið höndum saman til að reyna að
telja Donald Trump Bandaríkjafor-
seta á að falla frá verndartollum sem
skaða þau.
Samtök þúsunda fyrirtækja í
Bandaríkjunum hafa skýrt frá því að
þau hafi hafið herferð, sem nefnist
Tollar skaða hjarta landsins, til að
verja hagsmuni sína. Á meðal þeirra
sem eiga aðild að samtöknum eru
fyrirtæki á sviði verslunar, tækni,
landbúnaðar og sjávarútvegs, allt frá
eplaframleiðendum í Kaliforníu til
humarútgerða í Maine.
Donald Trump segir að markmiðið
með tollunum sé að vernda störf í iðn-
framleiðslu Bandaríkjanna. Sum
fyrirtækja landsins hagnast á tollun-
um og á meðal samtaka sem styðja þá
er landssamband bandarískra nauta-
kjötsframleiðenda. Það kveðst vera
hlynnt því „almenna markmiði forset-
ans að rífa niður viðskiptahindranir“
og skírskotar til verndarstefnu í öðr-
um löndum sem hindrar m.a. inn-
flutning á bandarískum landbúnaðar-
afurðum, t.a.m. í Evrópu. Á meðal
annarra framleiðslufyrirtækja sem
styðja stefnu forsetans eru stálfyrir-
tæki því að verndartollar hans á inn-
flutt stál og ál hafa orðið til þess að
stálverðið hefur hækkað og hagnaður
þeirra aukist. Verndartollarnir geta
hins vegar komið niður á öðrum fyrir-
tækjum, sem nota stál og ál í fram-
leiðslu sína, og orðið til þess að neyt-
endur þurfi að borga meira fyrir
vörurnar, eins og sumir þingmenn
repúblikana hafa bent á.
Flestir hagsmunaverðir banda-
rískra fyrirtækja í Washington eru
andvígir verndartollunum. Sum fyrir-
tækjanna hafa áhyggjur af auknum
kostnaði vegna verndartolla á innflutt
efni til iðnaðar. Önnur fyrirtæki hafa
áhyggjur af afleiðingum viðskipta-
stríðanna sem Trump hefur hafið, þ.e.
refsitollum Kínverja og Evrópusam-
bandsins á bandarískan innflutning,
m.a. landbúnaðarvörur.
Segir alla tapa
Á meðal fyrirtækjanna sem taka
þátt í herferðinni gegn verndartollun-
um eru bílaframleiðendur, bílasalar
og bílapartaframleiðendur í Banda-
ríkjunum.
„Allir geirar bandaríska hagkerfis-
ins tapa á viðskiptastríði,“ hefur The
Wall Street Journal eftir einum þátt-
takendanna í herferðinni, Matthew
Shay, formanni landssambands
bandarískra smásala. „Markmiðið er
að tryggja að stjórnvöld í Washington
skilji afleiðingar tollastríðs í raun-
heiminum.“
Repúblikanar óttast að tollastríðin
komi niður á þeim í þingkosningunum
í nóvember vegna þess að tollar
Trumps njóta lítils stuðnings í Mið-
vesturríkjunum þar sem framleiðslu-
fyrirtæki og bændur geta orðið fyrir
skaða vegna refsitolla.
Auk tolla á innflutt stál og ál lagði
Trump verndartolla á innfluttan
varning frá Kína að andvirði alls 50
milljarða dala fyrr á árinu og Kínverj-
ar svöruðu með því að hóta refsitoll-
um á bandarískan varning að andvirði
60 milljarða dala. Stjórn Trumps
undirbýr nú verndartolla á kínversk-
an varning að andvirði 200 milljarða
dala til viðbótar. Forsetinn hótaði í
vikunni sem leið að bæta síðan við
tollum á nær allan kínverskan varn-
ing gangi stjórnvöld í Peking ekki að
kröfum hans. Kínverjar hótuðu þá að
leggja refsitolla á allt að 85% af
bandarískum innflutningi, eða á vörur
að andvirði alls 110 milljarða dala.
Viðræður samþykktar
Steven Mnuchin, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, hefur boðið Kínverj-
um að hefja viðræður að nýju um við-
skiptadeilurnar síðar í mánuðinum til
að reyna að koma í veg fyrir að tolla-
stríðið harðni. Stjórnvöld í Kína fögn-
uðu tilboðinu í gær og sögðu að emb-
ættismenn landanna væru að undir-
búa viðræður.
Að sögn The Wall Street Journal er
ágreiningur um verndartollana meðal
embættismanna Trumps í Hvíta hús-
inu. Mnuchin og Lawrence Kudlow,
efnahagsráðgjafi forsetans, vilja fara
varlega til að koma í veg fyrir að tolla-
stríðið harðni en aðrir eru hlynntir
frekari verndartollum til að auka
þrýstinginn á Kínverja, þ. á m. við-
skiptafulltrúinn Robert Lighthizer og
Peter Navarro, viðskipta- og iðnaðar-
ráðgjafi forsetans.
Nokkrir embættismanna Trumps
telja að merki um að verndartollarnir
séu farnir að skaða efnahag Kína geti
orðið til þess að Kínverjar fallist á til-
slakanir í deilunum. Talið er þó ólík-
legt að viðræðurnar síðar í mánuðin-
um verði til þess að Trump hætti við
tollana sem verið er að undirbúa.
„Við teljum ekki að Kínverjar hafi
mikið að bjóða umfram það sem þeir
hafa nú þegar boðið og Bandaríkja-
menn virðast ekki vilja fallast á það
sem er núna á samningaborðinu,“
hefur fréttaveitan AFP eftir hagfræð-
ingnum Andrew Polk, stofnanda
rannsóknafyrirtækisins Trivium
China í Peking.
Fyrirtæki leggjast
gegn tollum Trumps
Samtök bandarískra fyrirtækja beita sér gegn tollastríðum
AFP
Basl Tollastríð Trumps við Kína
gæti skaðað bandaríska bændur.