Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Side 4
INNLENT
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.9. 2018
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
Fyrsta flokks
kammertónlist
Sígildir sunnudagar eru klassísk
tónleikaröð þar sem boðið er upp
á fjölbreytt úrval kammertónleika.
Sunnudaga
kl. 16:00 í Hörpu
Hringrás taupokanna
er virk á Höfn í Hornafirði
Pokastöðvar hafa rutt sér tilrúms hér á landi og þær er núað finna víðsvegar um landið í
ýmsum myndum. Þær virka þannig
að taupokum er komið fyrir í versl-
unum þannig að fólk geti notað þá en
sleppt því að taka plastpoka. Slíkt
hefur gefið góða raun, til dæmis á
Blönduósi og víðar. Fólk kemur aft-
ur með pokana í búðina og þannig
fara þeir hring eftir hring umhverf-
inu til heilla.
Á Höfn í Hornafirði hittist vaskur
hópur mánaðarlega til að sauma
margnota poka sem svo er komið
fyrir í matvöruversluninni á staðn-
um. Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir er
upphafskona þessarar vinnu sem
hefur verið í gangi frá því sumarið
2016.
„Mér datt þetta bara í hug í búð-
inni hérna á staðnum. Ég fór að
spyrja fólkið sem býr hér af hverju
það notaði ekki taupoka og spyrjast
fyrir í kringum mig. Ég sjálf vildi
gjarnan nota taupoka en gleymdi
þeim alltaf heima, náði ekki að koma
þessu inn í rútínu,“ segir Guðrún
sem fékk þá þessa hugmynd um að
koma upp nokkurs konar hringrás
taupoka í samfélaginu. Pokarnir
væru í búðinni þannig að ekki þyrfti
að muna eins oft eftir að taka þá
með.
„Ég fékk þetta í gegn í vinnunni
sem verkefni að prófa að gera þetta
hér á Höfn,“ segir Guðrún en hún
starfar fyrir Nýheima sem er þekk-
ingarsetur á Höfn. Hugmyndin að
baki Nýheimum er að stofnanir og
fyrirtæki hafi með sér þverfaglegt
og hagnýtt samstarf sem miðar að
því að stuðla að jákvæðri byggðaþró-
un á Suðausturlandi og bæta lífs-
gæði á svæðinu, eins og það er orðað
á vef setursins. Pokastöðvaverkefnið
þótti passa vel inn í flóru verkefna
sem fram fara undir hatti Nýheima
og hefur orðið að áhersluverkefni á
öllu Suðurlandi.
„Ég fór bara af stað á fullu, árið
2016, að koma þessu í gegn. Svo fyrir
algjöra tilviljun þá fékk ég sent
myndband frá Ástralíu og þá var
bara nákvæmlega sams konar verk-
efni í gangi þar. Við tókum bara
skype-fund með þeim í Ástralíu og
ákváðum að vera með þeim í stærra
verkefni sem kallast Boomerang
Bags.“
Pokastöðin á Höfn varð að veru-
leika og þar eru nú saumaðir pokar
og merktir bæði stöðinni og ástr-
alska verkefninu, sem nú er raunar
orðið alþjóðlegt.
„Þau voru bara tilbúin með allt
þetta markaðsefni og okkur fannst
eina vitið að vera með í þessu alþjóð-
lega verkefni sem nú hefur dreifst til
fleiri landa. En við notum samt
áfram nafnið Pokastöðin á Höfn.“
Verkefnið er opið öllum, þ.e. allir
geta sótt sér upplýsingar hjá Boom-
erang Bags og nýtt þeirra markaðs-
efni til að merkja poka. Guðrún
bendir á að á vefnum pokastod-
in.wordpress.com megi nálgast ýms-
ar upplýsingar fyrir þá sem vilja
stofna pokastöð.
Guðrún segir að margnota taupok-
unum hafi verið afskaplega vel tekið
á Höfn og nú séu heimamenn orðnir
vanir því að nota þá en sleppa plast-
inu. Mesta áskorunin felist í því að
hafa alltaf nóg af pokum, því þeir
skili sér ekki alltaf til baka í verslun-
ina. Það sé þó algjört aukaatriði.
„Aðalmálið er að fólk sé að nota
pokana einhvers staðar, jafnvel þótt
þeir skili sér ekki endilega í körfuna
aftur,“ segir Guðrún og bætir við að
það séu fleiri kostir við að stofna
Pokastöð en bara minni plastnotkun.
„Við hættum ekki fyrr en búðirnar
losa sig við pokana. Það er aðalmark-
miðið. En annað markmið er líka að
að vekja fólk til umhugsunar um um-
hverfismál almennt. Þetta er eins og
saumaklúbbur sem hittist en þarna
er gjarnan rætt um umhverfið og
skipst á hugmyndum um hvernig má
bæta umhverfið. Að minnka plast
snýst um að breyta hugarfari og það
er gott að byrja á því að ræða málin.“
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir með pokasaumakonum á Pokastöðinni á Höfn.
Það er lykilatriði að pokarnir séu gerðir úr efni sem fellur til. Ekki má kaupa
nýtt efni til að sauma úr, nema það sé eitthvað sem annars hefði verið hent.
Mikil stemning er fyrir því að nota taupoka í stað plastpoka. Á Pokastöðinni á Höfn er hægt að ganga í margnota taupoka sem
saumaðir eru úr efni sem til fellur. Hugmyndin er að samfélagið geti verið sjálfu sér nægt um poka og þeir nýtist aftur og aftur.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Allir sem versla
í Nettó á Höfn
geta fengið tau-
poka í stað
plastpoka.
Yngri íbúar á Höfn víla ekki fyrir sér að bera taupoka með vörum.
Pokana þarf að sjálfsögðu að þvo áður en þeir eru teknir í notkun.
Ljósmyndir/Pokastöðin Höfn í HornafirðI
Frá upphafi verkefnisins á Höfn.
Standandi eru Ólafía, Guðrún Ásdís,
Berglind og Helga. Sitjandi eru Ásta,
Matthildur og Ragnheiður.
Lokaviðburður átaksins
Plastlaus september tengist
pokastöðvaverkefninu.
Hægt verður að kynna sér
starfsemi þeirra á nokkrum
stöðum í dag, laugardag.
Í menningarhúsinu Spöng-
inni í Grafarvogi (bókasafn-
inu) verður heitt á könnunni
milli klukkan 14 og 16 á
laugardag. Hægt er að koma
og kynna sér Pokastöðvar,
sjá hvernig pokarnir eru
saumaðir og kynna sér
plastlausar lausnir eins og
bambustannbursta, stálrör
og sjampósápustykki.
Fyrsta Pokastöð Suður-
nesja verður opnuð í Bóka-
safni Reykjanesbæjar á
laugardag. Í tilefni þess
verður gestum og gangandi
boðið að „sauma fyrir um-
hverfið“ frá kl. 14 til 16.
Hægt er að koma og fá
kynningu á verkefninu sem
og að sauma og sníða.
Áhugasamir geta skráð sig
til þátttöku í verkefninu, en
hist verður mánaðarlega í
safninu.
Á Höfn í Hornafirði verð-
ur hist í Vöruhúsinu og snið-
ið, saumað og spjallað.
Í Skagafirði verður hist í
Varmárhlíðarskóla, spjallað
og saumað.
Markmið viðburðanna er
að vekja athygli á góðu starfi
Pokastöðvanna. Hægt verð-
ur að fá allar upplýsingar um
hvernig Pokastöðvar virka
og hvað þarf að vera til
staðar svo hægt sé að stofna
sína eigin.
POKASTÖÐVAR
KYNNTAR