Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Page 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.9. 2018 LESBÓK SJÓNVARP Kristen Bell er spennt fyrir því að leika hina for- vitnu og hæfileikaríku Veronicu Mars á ný en hún segir að þættirnir, sem verða alls átta talsins á Hulu, verði með öðru sniði en áður. „Heimurinn er dekkri. Þetta verður stærri heimur. Það er öruggt að þetta verður öðruvísi en það sem við gerðum hjá UPN og CW. Ég vil biðja aðdáendur að búa sig undir að þættirnir verði dekkri, stærri, kvikmyndalegri og öðruvísi,“ sagði hún í viðtali hjá útvarpsstöðinni SiriusXM. Bell sagði að heimurinn þyrfti á hetju eins og Mars að halda. „Ekki síst núna finnst mér að fólk vilji horfa á konu sem er að berjast fyrir góðum málstað. Við viljum sjá hetju án skikkjunnar sem hefur ekkert nema eigin gáfur og við viljum fylgjast með henni gera heiminn betri.“ Dekkri Veronica Mars Kristen Bell AFP KVIKMYNDIR Bruce Dern verður í hlutverki Georges Spahns í væntanlegri kvikmynd Quentins Tarantinos, Once Upon a Time in Hollywood. Burt Reynolds, sem var góður vinur Dern, átti að fara með hlutverkið en tökur höfðu ekki farið fram þeg- ar Reynolds lést hinn 6. september. Dern lék hershöfðingjann Sanford Smithers í mynd Tarantinos The Hateful Eight. Once Upon a Time in Hollywood segir margar mismunandi sögur sem gerast í Los Angeles sumarið 1969 í kringum fjölda- morð Charles Manson og fylgjenda hans. Myndin, sem verður frumsýnd 26. júlí, er sannarlega stjörnum prýdd en í öðrum hlutverkum eru m.a. Leonardo DiCaprio, Brad Pitt, Margot Robbie, Al Pacino, Kurt Russell, Dakota Fanning og Lena Dun- ham. Dern fær hlutverk Reynolds Bruce Dern Við erum nokkrir sem erum íþessu og ég er ábyggilegaekki sá sem á mest þótt ég komist samt kannski þokkalega ná- lægt því. Ég er samt ekki í neinni samkeppni,“ segir Egill Helgason, sem safnar gömlum leikjum og leikjatölvum. Hann á í dag 23 leikja- tölvur og tæplega 600 leiki, ásamt fjöldamörgum fylgihlutum. „Ég byrj- aði á þessu fyrir nokkrum árum þeg- ar ég flutti með eiginkonu minni til Japan. Þar datt mér í hug að fyrst ég yrði stundum einn og ekki með öllum vinum mínum þá gæti verið gaman að eignast Super Nintendo, en það er leikjatölva sem ég átti aldrei í æsku.“ Egill ólst sjálfur upp með Nintendo NES-vélinni (sem margir Íslendingar þekkja eflaust sem „gömlu Nin- tendo“) sem bróðir hans fékk í jóla- gjöf þegar Egill var eins árs. „Ég byrjaði afskaplega ungur að spila á Nintendo vélinni og fékk svo Play- station síðar meir þegar hún var gefin út.“ segir Egill. „Það er bara eitthvað við þessa gömlu leiki sem er svo heillandi, ákveðinn einfaldleiki. Þeir halda heldur ekki jafn mikið í höndina á þér eins og leikir í dag, og eru ekki hræddir við að vera pínu ósann- gjarnir. Þar er meiri áhersla lögð á spilunina og minna á óþarfa auka- hluti.“ Harkið er heillandi „Ég nálgast tölvurnar og leikina hvar sem ég kemst í þær, bæði á netinu og í persónu,“ segir Egill. „Ég leita mik- ið á netinu, t.d á bland.is, Amazon og á íslenskum Facebook-grúppum. Ég reyni að komast hjá því að nota eBay, því þótt það sé hægt að finna nánast allt þar er maður oftar en ekki að fara að borga morðfjár fyrir vikið. Hluti af sjarmanum við þetta áhuga- mál er samt að finna hlutina, stund- um nánast á einhverri skransölu, og gera góðan díl.“ Egill heimsækir Japan reglulega til að heimsækja fjölskyldu eiginkonu sinnar, Nagisu Hirose. „Þegar ég fer út grúska ég í búðunum þar. Þar er rosalega mikið úrval, bæði í sérversl- unum og búðum sem selja notaða hluti.“ segir Egill. „Þar er líka hægt að nálgast hluti sem voru ekki gefnir út í Evrópu. Svo hefur líka komið fyr- ir að maður finni gersemar í Góða hirðinum hérna heima.“ Betra að spila gömlu leikina á gamlar tölvur „Það eru einhverjar tölvur sem hafa nánast aðeins verið gefnar út í Japan, og svo aðrar sem voru ekki vinsælar eða ófáanlegar á Íslandi. Ég upp- götvaði til dæmis PC Engine í Japan, sem var magnað. Leikjatölva sem margir vita ekki af en var í sam- keppni við Nintendo og Sega á sínum tíma. Það var heilt bókasafn af leikj- um sem ég hafði ekki heyrt af áður.“ Í dag er hægt að nálgast stóran hluta af þessum gömlu leikjum á nýrri tölvum, en Agli þykir það ekki jafn skemmtilegt. „Það er ekkert eins og að halda á upprunalegu fjar- stýringunum. Upplifunin er betri.“ segir Egill. „Það er skemmtilegt að fá gesti í heimsókn og spila saman, og þá er gaman að eiga svona mikið úrval.“ Meðal leikjaraða sem Egill heldur upp á eru Castlevania, Super Mario, Zelda og Final Fantasy. „Það er gaman að spila gamla leiki en ég hef líka mikið gaman af nýrri leikjum. Svo er sterk indísena sem heldur retróstemmningunni lifandi.“ Egill býður vinum sínum reglulega í heimsókn til að spila leiki úr safninu. Morgunblaðið/Eggert Egill Helgason safnar gömlum tölvuleikjum og leikjatölvum. Hann segir ákveðinn sjarma úr gömlu leikjunum vanta í nýja leiki. Arnar Tómas Valgeirsson arnart@mbl.is NES (Nintendo Entertainment System) er fyrsta tölvan sem Egill átti og segir hann hana vera í uppáhaldi. Grúskar í gömlum leikjum Egill hefur í dag sankað að sér tæplega 600 leikjum í safn sitt, sem stækkar enn.Í dag á Egill 23 leikjatölvur. Nýjasta vélin í safni hans er Sega Dreamcast. ’Það er ekkert eins ogað halda á uppruna-legu fjarstýringunum.Upplifunin er betri.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.