Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2018
JAMES
La-z-boy lyftistóll. Steingrátt
áklæði. og svart leður.
St.: H: 105 × B: 103 × H: 109 cm
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
Ve
rð
og
vö
ru
up
pl
ýs
in
ga
r
ía
ug
lý
si
ng
un
ni
er
u
bi
rt
ar
m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
pr
en
tv
ill
ur
.Y
fir
st
ri
ka
ð
ve
rð
sý
ni
r
fu
llt
ve
rð
vö
ru
.
LEVI
La-z-boy hægindastóll. Dökk- eða
ljósgrátt áklæði og svart leður.
Stærð: B: 85 × D: 92 × H: 106 cm
Áklæði
95.992 kr.
119.990 kr.
LA-Z-BOY
HELGARTILBOÐ Í HÖLLINNI
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
LA-Z-BOY STÓLUM
20%
Leður
135.992 kr.
169.990 kr.
JAY
La-z-boy hægindastóll.
Dökk- eða ljósgrátt áklæði.
Stærð: B: 97 × D: 94 × H: 107 cm
87.992 kr.
109.990 kr.
DREAMTIME
Rafdrifinn La-z-boy hægindastóll.
Dökk- eða ljósgrátt áklæði.
Stærð: B: 96 × D: 103 × H: 109 cm
223.992 kr.
279.990 kr.
Áklæði
207.992 kr.
259.990 kr.
Leður
239.992 kr.
299.990 kr.
Sunnudaginn 30. september verður
fjölskyldudagur í Bíó Paradís, þar
sem verður lögð sérstök áhersla á
myndirnar Phoe-
nix, Minding the
Gap og The Stran-
ger, sem er tilvalið
fyrir unglinga og
foreldra að sjá
saman. Dagskráin
er hluti af RIFF
sem nú stendur yf-
ir en miðasölu og
dagskrá má nálgast á riff.is.
„Við viljum hafa fjölskyldudag til
þess að benda m.a. á að á RIFF megi
finna myndir fyrir ýmsa aldurshópa
og mér finnst að margar þeirra eigi
sérstakt erindi við ungt fólk, unga
fólkið getur held ég speglað sig í
þeim,“ segir Hrönn Marinósdóttir,
stofnandi og stjórnandi RIFF.
„Myndirnar eru sumar þess eðlis
að það gæti verið gott að hafa ein-
hvern fullorðinn með sér til að ræða
á undan eða eftir um efni myndar-
innar. Auk þess er bíó ódýr af-
þreying og ætti því að henta vel fjöl-
skyldum. Það er ekki endilega svo
oft sem unglingar fara með for-
eldrum eða öðrum í fjölskyldunni út
á meðal fólks en nú er lag. Bíó sam-
einar kynslóðir og myndir fjalla oft
um efni sem eiga erindi, eru
skemmtilegar og fræðandi,“ segir
Hrönn en þetta er í fyrsta skipti sem
fjölskyldudagur sem þessi er hluti af
dagskrá kvikmyndahátíðarinnar.
Hrönn svarar því aðspurð játandi
að kvikmyndir geti verið góð leið
fyrir unglinga og foreldra að tengj-
ast. Þarna geti verið góð samveru-
stund yfir poppi og það þurfi ekki að
tala mikið saman á meðan. „En svo
er kannski ástæða eftir á eins og við
kvöldmatarborðið að ræða um
myndina eða efni hennar. Mynd-
irnar geta verið góður samræðu-
grundvöllur.“
Ylva Bjørkaas Thedin fer með hlutverk Jill, dóttur Astridar sem Maria
Bonnevie leikur í norsku kvikmyndinni Føniks.
Góður samræðugrundvöllur
Sérstakur fjölskyldu-
dagur er á RIFF í fyrsta
sinn í ár en margar
myndanna á hátíðinni
eiga sérstakt erindi við
ungt fólk.
Hrönn
Marinósdóttir
Gaman er að lesa kvikmynda-
dóm Ólafs Sigurðsson um Fjöl-
skylduerjur (Love and Kisses)
sem birtist í Morgunblaðinu fyrir
hálfri öld en rýnir er vægast sagt
ósáttur við myndina. „Hér er á
ferðinni ein þeirra mynda, sem
munu vera ætlaðar unglingum
öðrum fremur. Ekki er það upp-
örvandi. Það er mjög í tízku að
gera það að dyggð að vera ung-
ur og vilja í öllu þjóna svokölluðu
ungu fólki. Einnig telur unga
fólkið sjálfsagt að það hafi leið-
togahlutverk með höndum. Ég
held að það væri rétt að skoða
þessa mynd og velta síðan fyrir
sér hvað á að gera við æskuna.
Ef þessi mynd er einhver vís-
bending um það sem æskan vill
sjá er kominn tími til að hækka
kosningaaldurinn upp í þrítugt,
banna öllum undir tuttugu og
eins árs aldri að vera úti eftir
klukkan átta á kvöldin, nema í
fylgd með fullorðnum, og gera
aðrar nauðsynlegar ráðstafanir
til að vernda slíka fáráðlinga fyr-
ir sjálfum sér.
Nú segir einhver vafalaust að
ég eigi ekki að taka svona mynd
alvarlega. Þetta sé aðeins
skemmtun. Ég get ekki annað en
tekið þetta alvarlega. Sé þetta
það sem æskan vill er hún á svo
uggvænlega lágu menningarstigi
að þörf er á að veita því athygli,“
skrifar hann.
Lokaorðin eru síðan þessi:
„Myndin er öll gerð af frábæru
kunnáttuleysi og losaraskap.
Eins einfaldur og einfeldnings-
legur og söguþráðurinn er, verð-
ur erfitt að fylgja honum, sér-
staklega af því að þrjár sögur eru
að gerast samtímis. Þetta er
með aumari augnablikum í sögu
kvikmyndanna og dapurleg um-
sögn um æskuna, að þetta skuli
henni ætlað.“
GAMLA FRÉTTIN
Hvað á að gera
við æskuna?
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Valur Freyr Einarsson
leikari
Mads Mikkelsen
leikari
Viggo Mortensen
leikari