Morgunblaðið - 13.10.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Lækkun á gengi krónunnar hefur
áhrif á kostnaðaráætlanir við nýjan
Landspítala til hækkunar. Meðal
annars hefur verð innfluttra bygg-
ingarefna hækkað í krónum.
Gunnar Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri Nýs Landspítala ohf.
(NLSH), staðfestir þetta. Breyting-
ar á verðlagi, og þar með bygging-
arvísitölu, hljóti að hafa áhrif.
Munu verða nákvæmari
Gunnar segir fullnaðarhönnun
sjúkrahússins ekki lokið, en með
framgangi hönnunar verða kostnað-
aráætlanir sífellt nákvæmari. Nýrri
áætlun verði skilað af hálfu félagsins
til velferðar- og fjármála- og efna-
hagsráðuneytisins í janúar.
„Ráðgjafarnir birta okkur nýjar
áætlanir fljótlega. Það má ætla að
þær taki mið af breytingum á verð-
lagi og þróun byggingarvísitölu.“
Tengist fjármálaáætlun
Kostnaðaráætlanir í Hringbraut-
arverkefninu tengjast vinnu ráðu-
neytanna við fjármálaáætlun fyrir
árin 2020 til 2024, sem verður lögð
fram næsta vor á Alþingi.
Fram kom í svari Svandísar Svav-
arsdóttur heilbrigðisráðherra við
fyrirspurn þingmanns í sumar að
kostnaður við meðferðarkjarnann sé
áætlaður 55 milljarðar króna, án vsk.
Ingólfur Bender, aðalhagfræðing-
ur Samtaka iðnaðarins, segir veikara
gengi krónunnar auka kostnað við
framkvæmdir. Jafnframt muni verð-
bólga aukast og það draga úr vexti
kaupmáttar og eftirspurnar.
„Hversu mikið kostnaðurinn eykst
er erfitt að segja. Undirrótin [að
veikingu krónunnar] er breyttar
væntingar um þróun efnahagsmála.
Sá þáttur er líka að bremsa af fram-
kvæmdir. Það bætist við áhrifin af
því að búist er við hægari vexti í
þessari grein hagkerfisins.“
Ingólfur segir þessa þróun minna
enn og aftur á hversu sveiflukennd
starfsskilyrði iðnaðurinn og atvinnu-
lífið allt býr við hér á landi.
„Það er erfitt fyrir okkar fyrir-
tæki, sem eru að reyna að fjárfesta
og auka innlenda verðmætasköpun í
þessu umhverfi, þegar starfs-
umhverfið er eins og jójó. Einn dag-
inn er fyrirtæki arðsamt og næsta
dag ekki, vegna þessa sveiflukennda
efnahagsumhverfis. Þetta þarf ekki
að vera svona. Hagstjórnina þarf að
bæta,“ segir Ingólfur.
Hann bendir á að raungengi
krónu hafi að undanförnu verið
sögulega hátt. Þótt gengið hafi
lækkað sé raungengið enn sögulega
hátt.
Gerir meðferðarkjarnann dýrari
Kostnaður við nýjan meðferðarkjarna verður endurmetinn til hækkunar vegna veikingar krónunnar
Hagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir neikvæð áhrif lægra gengis bætast við kólnun í hagkerfinu
Tölvumynd/NLSH
Við Hringbraut Framkvæmdir við meðferðarkjarna eru að hefjast.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég hef á tilfinningunni að það sé víða
pottur brotinn í borginni,“ segir
Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins.
Björn situr í
innkauparáði
borgarinnar og
hefur þar gert at-
hugasemdir við
ýmislegt er snýr
að bragganum
umdeilda við
Nauthólsvík og
fleiri innkaupum í
tengslum við
framkvæmdir. Í
bókun frá fundi
innkauparáðs frá því í september seg-
ir Björn að „ískyggilegt“ sé að fara yf-
ir yfirlit frá skrifstofu eigna- og at-
vinnuþróunar Reykjavíkurborgar
varðandi innkaup yfir eina milljón
króna á öðrum ársfjórðungi í ár.
„Athygli vekja m.a. kaup af Verkís
hf. vegna Varmahlíðar, Perlunnar,
upp á u.þ.b. 27 milljónir kr. Þá eru
innkaup af fjölda verkfræðistofa, m.a.
upp á 5 milljónir án útboðs keypt af
Mannviti vegna breytinga á Umferð-
armiðstöðinni. Enn fremur kemur í
ljós kostnaður við þróunarverkefni
eins og VSÓ – vegna ráðgjafar upp á
23 milljónir kr. og fjölmargt fleira.
Enn fremur kemur í ljós að Yrki arki-
tektar fá greiðslu vegna sölu bygging-
arréttar upp á 18 milljónir kr. og Ark-
ís arkitektar vegna sölu
byggingarréttar upp á 12 milljónir,“
segir meðal annars í bókun Björns en
gerðar eru athugasemdir við að
kostnaður sé „óútskýrður“ og „allur
án útboðs“.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Björn að yfirlit yfir fyrstu sex mánuði
ársins sýni að tæpar 100 milljónir
króna hafi farið í braggann án útboðs.
„Manni var nóg boðið við það. Svo
liggur það fyrir að Reykjavíkurborg
er að versla mikið við hönnuði, verk-
fræðinga og arkitekta. Rammasamn-
ingur við þá rann út fyrir þremur ár-
um. Nú skrifa þeir sína reikninga
eftir taxta sem felur í sér hærri kostn-
að en ef rammasamningur væri fyrir
hendi. Við erum búin að fara fram á
það í ráðinu að gerður verði nýr
rammasamningur og þessi verk fari í
útboð. Við því hefur ekki verið orðið.“
Björn furðar sig á þessari meðferð
með almannafé og telur hægan vanda
að standa betur að framkvæmdum.
„Þessi mál hafa öll komið inn á borð
borgarstjórnar og borgarráðs. Og
auðvitað borgarstjóra. Skrifstofa
eigna- og atvinnuþróunar heyrir und-
ir borgarstjóra. Ég tel ábyrgðina al-
veg skýra.“ »20
Telur borgina of-
greiða innkaup
Þrjú ár síðan rammasamningur rann út
Björn
Gíslason
Þorsteinn Ásgrímsson Melén
Helgi Bjarnason
Framkvæmdastjóri H&M á Íslandi
og í Noregi segir fatakeðjuna mjög
ánægða með árangur fyrsta ársins á
Íslandi. Hann vill þó ekki segja til
um hvort verið sé að skoða opnun
fleiri verslana hér á landi. „Íslenski
markaðurinn er mjög spennandi en
við einbeitum okkur nú að þessum
þremur búðum,“ segir Dirk Roenne-
fahrt sem tók við starfinu fyrir
tveimur mánuðum.
Verslanakeðjan opnaði í gær
verslun á Hafnartorgi og er hún rek-
in undir merkjum H&M og H&M
Home. Síðarnefnda verslunin er
með húsbúnað. Fyrir voru versl-
anirnar í Smáralind sem opnuð var í
ágúst á síðasta ári og í Kringlunni.
Roennefahrt segir að þriðja versl-
unin sé mikilvægur áfangi svo keðj-
an geti haldið áfram með „velgengn-
issögu sína“ á Íslandi.
Biðraðir við opnun
Nokkur spenningur myndaðist
vegna verslunarinnar. Um 100 við-
skiptavinir biðu eftir opnuninni á há-
degi í gær og streymdu inn þegar
dyrnar voru opnaðar.
Verslunin er í 2.400 fermetra
rými, á tveimur hæðum.
Fleiri „spennandi“ verslanir
Með verslun H&M er fyrsti áfangi
Hafnartorgs tekinn í notkun. Reginn
er eigandi alls verslunarhúsnæðis
við torgið og leggur áherslu á að
skapa þar einstakt verslunar- og
þjónustusvæði til framtíðar með ið-
andi mannlífi og lifandi göngugötum,
eins og segir í tilkynningu fyrirtæk-
isins. Tekið er fram að á næstunni
muni fleiri „spennandi alþjóðlegar
verslanir“ opna dyr sínar á Hafn-
artorgi auk þess sem um 1.100 bíla-
stæði muni bætast við í kjallara und-
ir svæðinu með tengingu við
bílakjallara Hörpu.
Stefnt er að því að Hafnartorg
verði að fullu komið í rekstur um
miðjan apríl á næsta ári.
Morgunblaðið/Hari
Opnað Fyrstu gestirnir storma inn með bros á vör í nýja verslun H&M á Hafnartorgi um hádegisbilið í gær.
Íslenski markaðurinn er
sagður mjög spennandi
Fyrsti áfangi Hafnartorgs í notkun með verslun H&M
Röðin 100 væntanlegir viðskiptavinir biðu í röð við dyr H&M við opnunina.