Morgunblaðið - 13.10.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 13.10.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Á fjórða hundrað gestir sátu Kötlu- ráðstefnu sem haldin var í íþróttahús- inu í Vík í Mýrdal í gær. Í dag er boð- ið upp á vettvangsferð þar sem skoðuð verða ummerki Kötlugossins sem hófst 12. október 1918. Þorsteinn Sæmundsson, jarðfræð- ingur og formaður Jarðfræðafélags Íslands, setti ráðstefnuna og sagði m.a. að gosið 1918 hefði orðið við að- stæður sem væru gjörólíkar því sem við ættum að venjast í dag. „Gosið var stórt, gerði ekki boð á undan sér og það stóð yfir í 24 daga. Í þá daga komu engar hjálparsveitir eða lög- regla til aðstoðar eða vísindamenn til að greina stöðuna. Það voru engar viðvaranir eða rýmingar, fólk þurfti einfaldlega að standa saman og bjarga því sem bjargað varð, en mikið tjón og landbreytingar urðu í þessum hamförum.“ Vísindamenn og sérfræðingar á fjölluðu um margt í tengslum við Kötlu fyrr og síðar. Magnús Tumi Guðmundsson prófessor fjallaði um breytingar á Mýrdalssandi samfara Kötluhlaupum og velti því upp hvað kynni að gerast í næsta stórhlaupi. Landbreytingar urðu á Mýrdalssandi samfara Kötluhlaupinu 1918. Þá bættust 0,6 rúmkílómetrar ofan á sandinn suðvestanverðan og Kötlu- tangi var nærri 0,2 rúmkílómetrar að stærð. Ströndin gekk fram um að minnsta kosti tvo kílómetra. Metið var mögulegt vatnsrennsli vestur til Víkur og var unnin hermun hlaups sem færi um farveg Múla- kvíslar og með Selfjalli og reiknuð setmyndun samfara því. Samkvæmt henni gæti sandurinn hækkað um 5- 10 metra í farvegi Múlakvíslar og ströndin færst utar sem næmi tveim- ur kílómetrum. Við það myndu líkur á að hlaupvatn flæddi í átt til Víkur aukast. Helgi Gunnar Gunnarsson frá verkfræðistofunni Vatnaskilum fjallaði um hermun Kötluhlaups í Mú- lakvísl og mat á rennsli til Víkur komi til Kötluhlaups af sömu stærðargráðu og kom 1918. Fram kom í máli hans að varnargarður við Víkurklett, aust- an við Vík, sem nær sjö metra hæð yf- ir sjávarmáli, myndi koma í veg fyrir að flóðið færi lengra en að varnar- garðinum. Efnahagsleg áhrif Kötlugoss Uta Reichardt fjallaði um Kötlugos á þotuöld. Hún greindi frá því að eftir gosið í Eyjafjallajökli 2010 hefðu evr- ópsk flugmálayfirvöld sett nýjar regl- ur sem miðuðu að því að draga úr kostnaði, án þess að draga úr öryggi, kæmi upp eldgos sem hefði áhrif á flugumferð. Nú væri það í höndum flugrekenda að ákveða hvort þeir flygju um svæði sem talin væru vera menguð af gosösku, að uppfylltum ströngum öryggisskilyrðum. Uta benti m.a. á að í Kötlugosinu 1918 hefði komið upp um sjö sinnum meira af gjósku en í Eyjafjallajök- ulsgosinu 2010 og öskustrókur Kötlu verið um 14 km hár eða helmingi hærri en strókurinn úr Eyja- fjallajökli. Í stóru Kötlugosi geti strókurinn orðið 20 km hár eða jafn- vel hærri. Þrátt fyrir breyttar reglur og áhættustjórnun fyrir flug má engu að síður búast við verulegri truflun á farþega- og fraktflugi komi til ösku- goss. Samkvæmt rannsókn Utu o.fl. er líklegt að öskugos í Kötlu muni hafa áhrif á lágar og miðlungsháar flugleiðir, sérstaklega flugtök og lendingar. Það gæti haft áhrif á allt að helming flugumferðar í Evrópu innan fárra daga frá upphafi eldgoss. Ólíklegt væri að flugvellirnir í Kefla- vík, á Akureyri og Egilsstöðum lok- uðust allir samtímis. Öskugos í Kötlu myndi hafa áhrif á íslenskt efnahags- líf, t.d. ferðaþjónustu og útflutning ferskfisks með flugi. Einnig gæti vöruinnflutningur truflast. Lærdómar dregnir af Kötlu  Mögulega gæti vatn úr Kötluhlaupi leitað í átt að Vík  Varnargarður við Víkurklett myndi varna því  Kötlugos á borð við það sem varð fyrir einni öld myndi hafa áhrif á flugumferð í Evrópu Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Fjölmenni Þátttakan í Kötluráðstefnunni í Vík fór langt fram úr björtustu vonum skipuleggjenda. Þar voru haldin 22 erindi um ýmislegt sem tengist Kötlu. Einnig var fjallað um hvað líklega gæti gerst þegar og ef Katla kæmi, en vísindamenn og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fylgjast grannt með þróun. Sýning Sett var upp fjölbreytt veggspjaldasýning í tengslum við ráðstefn- una og sýnd voru tæki vísindamanna og björgunarsveitarinnar í Vík. Sena ehf. hefur verið dæmt til þess að greiða kvikmyndaframleiðslufyr- irtækinu Virgo 2 ehf. tæpar 3,7 millj- ónir króna vegna dreifingarsamn- ings kvikmyndarinnar Grimmdar, sem tekin var til sýninga árið 2016. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp þennan dóm í gær. Málið er nokkuð flókið og snýst um það að umsamdar greiðslur frá Senu til framleiðenda myndarinnar hafi ekki verið í samræmi við samn- inga þar að lútandi. Félagið Virgo 2 ehf., sem framleiddi myndina og á höfundarréttinn, er í eigu Antons Inga Sigurðssonar og Ragnars Þórs Jónssonar. Félag sem er í eigu föð- urs Antons Inga, sem skrifaði hand- ritið og leikstýrði myndinni, keypti 20.000 miða á myndina fyrir 10 millj- ónir króna. Í dómnum kemur fram að faðir leikstjórans hafi viljað styrkja myndina, þar sem styrkur til gerðar hennar fékkst ekki hjá Kvikmynda- sjóði Íslands til eftirvinnslu hennar. Styrkveitingin var að sögn leikstjór- ans öðrum þræði höfð með þessu fyr- irkomulagi til að „láta líta út fyrir að meiri aðsókn hefði verið á kvikmynd- ina til að auðveldara yrði að koma henni á markað erlendis“. Morgunblaðið/Ómar Réttur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu í gær en þar er Senu gert að greiða um 3,7 milljónir króna til framleiðslufyrirtækisins Virgio 2 ehf. Faðir leikstjóra keypti 20.000 miða  Gert til að ýkja aðsókn á Grimmd Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 Við eigumAFMÆLI og þér er boðið! Kr. 5.990 Kr. 13.990 20% AFSLÁTTUR af öllum vörum og góð tilboð í gangi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.