Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018
Laugavegur 26
BY MALENE BIRGER
‘S MAX MARA
SAMSØE SAMSØE
KRISTENSEN DU NORD
FILIPPA K
GERARD DAREL
ZADIG & VOLTARE
BLANK
MARC JACOBS
ROSEMUNDE
DIESEL
HARTFORD
BILLI BI
FRUIT
STRATEGIA
PARAJUMPERS
Opið í dag frá 11-15
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Rúllukraga-
peysur
Kr. 4.990 Str. S-XXL
Litir: Lilla, grænt, blátt, svart
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Ný
peysusending
Skoðið laxdal.is/yfirhafnir
Skipholti 29b • S. 551 4422
DÚNÚLPUR
m/hettu kr.29900,-
Helgi Bjarnason
Anna Lilja Þórisdóttir
Orðræða sem hvetur til mismunun-
ar eða haturs á grundvelli kyns,
kynhneigðar, fötlunar eða kynþáttar
er ekki liðin innan háskólans. Þetta
kemur fram í yfirlýsingu sem rektor
Háskólans í Reykjavík sendi frá sér
í gær vegna fjölmiðlaumfjöllunar
um starfslok Kristins Sigurjónsson-
ar, lektors við tækni- og verkfræði-
deild háskólans. Lögmaður Kristins
segir augljóst að rektor sé að
minnsta kosti að dylgja um að Krist-
inn hafi hvatt til mismununar og
mótmælir því harðlega að hægt sé
að túlka orð hans þannig, eða hat-
ursorðræðu gagnvart konum sem
hópur nemenda ræðir um í þessu
sambandi.
„Rektor er ekki að segja með ber-
um orðum að skjólstæðingur minn
hafi hvatt til mismununar á grund-
velli kyns en ljóst er að þetta er til-
efni fréttatilkynningar hans. Í þessu
felast að minnsta kosti dylgjur um
að skjólstæðingur minn hafi gerst
sekur um mismunun. Það er að
mínu mati alger fjarstæða. Þetta
eru meiðandi ummæli um þennan
mann sem starfaði hjá skólanum og
er farinn að sæta harðræði með
uppsögn úr vinnu og hnýfilyrðum í
fréttatilkynningu rektors,“ segir
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmað-
ur Kristins.
Beri virðingu fyrir kynjum
Allir sem nema og starfa innan
Háskólans í Reykjavík þurfa að geta
treyst því að komið sé fram við þá af
virðingu og að verk þeirra séu metin
af sanngirni, segir einnig í yfirlýs-
ingu Ara Kristins Jónssonar, rekt-
ors HR, sem send var í gær. Kristni
var sagt upp störfum við skólann í
kjölfar ummæla sinna í facebook-
hópnum Karlmennskuspjallið, þar
sem hann sagði m.a. að aðgreina
ætti vinnustaði karla og kvenna og
sagði það vera vanda að konur
„træðu sér inn“ á vinnustaði þar
sem karlmenn ynnu. „Og um leið og
þær eru komnar inn, þá byrja þær
að eyðileggja hann, því allir karl-
mennirnir eiga þá að fara að tala,
hugsa og hegða sér eins og kerl-
ingar, allt annað er áreiti,“ skrifaði
Kristinn m.a. í umræddri facebook-
færslu.
Hópur nemenda við skólann sendi
einnig frá sér yfirlýsingu í gær. Þar
segir að nemendur við HR geri þá
kröfu til kennara að þeir beri virð-
ingu fyrir nemendum af báðum
kynjum og að hægt eigi að vera að
treysta því að allir hafi sömu stöðu
þegar komi að kennslu og einkunn-
um. Hatursorðræða gegn konum
eigi ekki að líðast í skólastarfi.
„Við viljum að sjónarmið nem-
enda komi fram og sem dæmi mynd-
um við ekki treysta okkur til að
mæta í tíma og fá leiðsögn frá kenn-
ara sem hefði opinberlega birt hat-
ursorðræðu gegn konum á hvaða
vettvangi sem væri. Slík orðræða er
ekki „almenn skoðun“ og fengi sem
dæmi aldrei stuðning hér á landi ef
svona væri talað um minnihlutahóp,
t.d. vegna litarhafts. Það flokkast
ekki undir málfrelsi að viðhafa hat-
ursorðræðu gagnvart konum eða
öðrum hópum,“ segir í yfirlýsingu
nemendanna og þar er ennfremur
lýst yfir ánægju með viðbrögð skól-
ans í málinu.
Uppsögn verði dregin til baka
Staðan í málinu er óbreytt.
Kristni voru gefnir tveir kostir, gera
samning um starfslok eða verða
sagt upp að öðrum kosti. Bæði skjöl-
in voru að vísu ófrágengin og óund-
irrituð. Hann tók sér umhugsunar-
frest en í bréfi sem lögmaðurinn
sendi rektor skólans í fyrradag er
starfslokasamningi í raun hafnað því
skorað er á yfirstjórn skólans að
draga áform sín til baka. Jafnframt
var minnt á að Kristinn nyti rétt-
arstöðu sem opinber starfsmaður og
hann hefði ekki fengið áminningu
vegna starfa sinna við skólann. Þá
er sagt að verði honum sagt upp
störfum muni hann leita réttar síns
við dómstóla. Rektor hafði ekki
svarað bréfinu í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Eggert
Háskólinn í Reykjavík Deilt er um starfslok lektors við skólann.
Hafnar því að mismunum
felist í orðum lektorsins
Hópur nemenda HR segir hatursorðræðu ekki málfrelsi
Vefsíða hefur verið opnuð þar sem
veittur er aðgangur gegn gjaldi að
upplýsingum um tekjur allra ein-
staklinga á árinu 2016 samkvæmt
gögnum ríkisskattstjóra.
Fram kemur á vefsíðunni, sem
hýst er undir léninu Tekjur.is, að
þar séu birtar „upplýsingar um
launa- og fjármagnstekjur allra
fullorðinna Íslendinga, samkvæmt
skattskrá ríkisskattsjóra. Skatt-
skráin sýnir skattgreiðslur ein-
staklinga, tekjuskatt, útsvar og
fjármagnstekjuskatt, vegna tekna á
árinu 2016.“ Enn fremur segir að
um árabil hafi það tíðkast að birta
upplýsingar um tekjur valinna
skattgreiðenda. Einkum þeirra
tekjuhæstu.
Tekjur Íslendinga aðgengilegar gegn gjaldi
Morgunblaðið/Kristinn
Peningar Vefurinn er hýstur undir heitinu
Tekjur.is en þar má finna laun fólks.
Landsréttur staðfesti í gær 45 daga
skilorðsbundinn fangelsisdóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur yfir karl-
manni, en sá hrinti fyrrverandi eig-
inkonu sinni á heimili hennar. Við
fallið hlaut konan áverka en mað-
urinn er einnig sagður hafa hótað
konunni lífláti.
Við ákvörðun refsingar var litið
til þess að konan hlaut ekki alvar-
lega áverka, en á hinn bóginn var
horft til þess að brot mannsins
beindust að fyrrverandi eiginkonu
hans á heimili hennar þar sem hann
var ekki velkominn auk þess sem
ung dóttir þeirra hefði orðið vitni
að því sem á heimilinu gerðist.
Þá var manninum einnig gert að
greiða konunni rúma eina milljón
króna í sakarkostnað og máls-
kostnað.
Morgunblaðið/Hanna
Réttur Dómur er kveður á um 45 daga
skilorðsbundið fangelsi var staðfestur.
Hrinti fyrrverandi
eiginkonu sinni