Morgunblaðið - 13.10.2018, Side 12

Morgunblaðið - 13.10.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ etta er búið að vera rosa- lega gaman og frábært að vinna með þessum krökkum. Ég hafði sam- band við þau og fékk þau til liðs við mig af því ég hafði trú á að þau hefðu þor til að fjalla um þessa hluti,“ segir Björk Jak- obsdóttir leikstjóri leikritsins Fyrsta skiptið sem frumsýnt verður í Gaflaraleikhúsinu á morgun sunnudag. Verkið er samið og leikið af ungu fólki sem hefur heilmikið komið við sögu í leikhúsi áður, þeim Arnóri Björnssyni, Berglindi Öldu Ástþórsdóttur, Ingu Steinunni Henningsdóttur, Mikael Emil Kaab- er og Óla Gunnari Gunnarssyni. Eins og nafnið gefur til kynna er viðfangsefnið hin ýmsu fyrstu skipti í lífi unglinga. „Þar er innifalið allt sem fylgir því að hormónin fara að kikka inn og einstaklingur fer að breytast úr barni í fullorðinn. Fyrstu blæðingar, fyrsta sjálfsfróun, fyrsti sleikurinn, fyrsta ástin og fyrsta stefnumótið. Okkur dettur stundum bara í hug kynlíf þegar við heyrum: Í fyrsta skipti. En þetta snýst um svo margt annað en kynlífið, það er í raun punkturinn yfir i-ið þegar krakkar eru búnir að upplifa öll hin fyrstu skiptin.“ Þarf líka þor og einlægni Björk segir að krakkarnir hafi verið að í allt sumar við handrits- skrifin. „Ég vildi ekki blanda mér um of inn í þeirra skrif til að byrja með, en ég bað þau um að hugsa ekki of mikið um leikritið á meðan, heldur bara láta vaða. Að því loknu hittumst við og bárum saman bækur okkar og ég bað um meira af þessu og minna af hinu. Og frá þeim kom hellingur af efni, enda eru þau skap- andi snillingar þessir krakkar.“ Björk segir að verkið hafi þróast heilmikið á sviðinu en mesta glíman hefur verið að finna jafn- vægið á milli gríns og alvöru. „Þetta þarf að vera kómískt og fyndið, af því að við erum í Hafnarfirði og fólk þarf að nenna að koma hingað í leik- hús. Það er gott og nauðsynlegt að hafa húmor að vopni þegar fjalla á um vandræðalega hluti. En það þarf líka að vera ákveðið þor og einlægni. Og okkur hefur tekist mjög vel upp,“ segir Björk og bætir við að fyrir vikið muni hún aldrei þessu vant ekki bíða með kvíðahnút eftir því að gagnrýnendur gefi út stóra dóm og segi henni hvernig leikritið eigi að vera. „Þetta er leikrit sem allir ung- lingar ættu að sjá. Ég sit hér með gæsahúð og mér finnst þetta gríðar- lega vel heppnað.“ Stór typpi og sílikonbarmar Þegar Björk er spurð að því hvort leikrit um fyrstu skipti eigi er- indi á tímum þar sem allar upplýs- ingar er hægt að nálgast á inter- netinu og hægt að gúggla mynd- bönd og allt er svo opið sem raun ber vitni, segir hún að vissulega séu krakkar mun opnari um þessi hluti heldur en hennar kynslóð var á sín- um tíma. „Félagsþroski er meiri og getan til að tjá sig er mun þroskaðri hjá krökkum í dag en þegar ég var unglingur, en á sama tíma er gríð- arlegt aðgengi að allskonar „skökk- um hlutum“, um fyrstu skiptin. Þetta leikrit er innlegg okkar til að opna umræðuna, því ég held að það sé til dæmis enn mikil skömmustu- tilfinning, sem hafi jafnvel aukist, því nú er svo mikið aðgengi að myndum af mönnum með stór typpi og konum með örmjó mitti og síli- konabarma, sem er rosalega skökk mynd af líkömum og kynfærum. Ég held að það auki skömmustutilfinn- ingu þegar búið er að ýkja þetta í yfirstærðir. Það er líka miklu meiri líkamsmeðvitund og meiri spé- hræðsla núna heldur en þegar ég var unglingur, við vorum ófeimin við að rífa okkur úr. Hlutirnir hafa batnað á ákveðnum sviðum en versnað á öðrum. Þetta eru mjög persónulegir hlutir og það var erfitt fyrir krakkana að tala um þetta vandræðalega, því allir vilja frekar segja frá fullkomnu hlutunum. En það fylgir fyrstu skiptunum ótrú- lega mikið af drepfyndnum vand- ræðalegheitum sem við eigum að hlæja að saman. Krakkarnir byggja þetta á eigin reynslu og þau vilja að aðrir unglingar komi í leikhúsið til að hlæja að þeirra sögum og spegla sínar eigin sögur í þeim. Þetta er ekki minna skemmtilegt fyrir full- orðna, ég get lofað því.“ Ljósmyndir/Mummi Lú Uppskurður Flott útfærsla er á mörgum atriðum í verkinu. Sleikdans Hér er túlkaður hinn spennandi tungukoss. Begga brjáluð Unglingar með hormón á fullu geta brjálast. Enn er mikil skömmustutilfinning Fyrsta sjálfsfróun, fyrstu blæðingar, fyrsti sleikur- inn, fyrsta ástin og fyrsta stefnumótið, eru undan- fari fyrstu kynlífsreynsl- unnar. Um allt þetta fjallar leikritið Fyrsta skiptið. Leikstjórinn Björk hefur mikla reynslu af að vinna með ungu fólki. Allir muna eftir fyrsta skiptinu. Ástin og kyn- hvötin spila stóra rullu á unglings- árunum og flestir muna eftir sömu óvissunni … Er ég nóg! nógu sæt (ur), með nógu stór brjóst (typpi) og nógu mörg like? Höfundarnir leika sjálfir í „Fyrsta skiptinu“ en þau eru ung- menni sem hafa skapað sér gott nafn í íslenskum leik- og skemmti- bransa og eru þekkt andlit hjá unglingum og ungmennum. Margir muna ef- laust eftir leikritunum Unglingurinn og Stefán rís, sem voru sýnd við miklar vinsældir í Gaflaraleikhúsinu. Björk Jakobsdóttir leikstjóri hefur sýnt að hún hefur einstakt lag á að gera frábærar sýningar fyrir ung- menni. Höfundar og leikstjóri hafa fléttað saman á grenjandi fyndinn hátt fjölda af frásögnum af „Fyrsta skiptinu“ í leik og söng til að sýna okkur að öll eigum við okkar alls- konar fyrstu skipti og það er langt frá því að vera fullkomið. Stefna Gaflaraleikhússins í nýjum íslenskum ungmennaverkum hefur verið að láta ungt fólk skrifa og leika í verkunum. Það setur allt annan tón í verkið og hittir betur í mark þegar jafningjar fjalla um veruleika ungmenna og leika ung- linga en þegar fullorðnir gera það. Frumsýning er á morgun, sunnudag, 14. okt. í Gaflaraleikhúsinu í Víkingastræti 2 í Hafnarfirði. Sýn- ingin er ætluð fyrir 12 ára og eldri. Miðasala á tix.is Nýjasta leikverk Gaflaraleikhússins: Fyrsta skiptið Allir muna eftir fyrsta skiptinu Fjör Hér gefur að líta sprellfjöruga fimmmenningana sem sömdu leikritið og leika líka öll hlutverkin í því.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.