Morgunblaðið - 13.10.2018, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
ÚR BÆJARLÍFINU
Jón Sigurðsson
Blönduósi
Haustvindar hafa hrifið með sér
fölnuð lauf af flestum trjám en birkið
má eiga það að það er fastheldið á
sín laufblöð og heldur eins lengi í
sumarið og það frekast getur og set-
ur sinn á svip á þessa litríku ártíð.
Sumarið sem er við það að
kveðja, hefur reynst Húnvetningum
ágætlega. En eins og gengur og ger-
ist í lífinu þá skiptast á skin og skúr-
ir. Skúrirnar hafa að mestu leyti ver-
ið í fljótandi formi en sólin og hið
vinnandi afl hafa séð um skinið.
Sem dæmi um skin í bæjarlíf-
inu má nefna að farið er að byggja
íbúðar- og iðnaðarhús í meira mæli
en lengi hefur sést. Tvö einbýlishús
eru í byggingu og sótt hefur verið
um leyfi til að byggja nokkrar par-
húsaíbúðir. Iðnaðarhúsnæði hefur
risið og er í uppbyggingu. Skemmst
er að minnast þess að nýtt þjónustu-
hús fyrir mjólkursöfnun í Húna-
vatns- og Skagafjarðarsýslum var
nýlega tekið í notkun að Hnjúka-
byggð 34. Í þessu 560 fermetra húsi
verður góð vinnuaðstaða fyrir mjólk-
urbílstjóra. Í því eru tvö rúmgóð
búningsherbergi með baði, ætluð
bílstjórum sem sjá um mjólkurflutn-
inga milli Selfoss og Norðurlands,
kaffistofa, skrifstofa og tvö hvíld-
arherbergi með baði, auk geymslu-
lofts. Húsinu er ætlað að rúma þrjá
til fjóra flutningabíla auk vagna með
góðri aðstöðu til að þvo þá inni og
geyma.
Uppbygging er líklega orð árs-
ins á þessu svæði því auk áður tal-
inna framkvæmda er gagnaverið
loksins komið. Búið að byggja eitt
hús og hús númer tvö er í byggingu.
Bygginganefnd bæjarins hefur ný-
lega samþykkt umsókn frá fyrirtæk-
inu BDC north ehf. um bygging-
arleyfi fyrir 4 húsum til viðbótar
undir gagnaver ásamt þjónustuhúsi.
Húsin eru öll úr límtré klædd með
yleiningum á steyptum sökkli.
Menn gæla við þá hugmynd að
gamla brúin sem var á Blöndu og
var þegar nýja brúin kom, flutt fram
að Steiná í Svartárdal verði aftur
sett upp til að tengja friðlandið
Hrútey í Blöndu við land. Að sögn
kunnugra þá er mál þetta statt á
fjármögnunarstigi. Búið er að bæta
allt aðgengi við Hrútey nú í haust og
er núna malbikaður vegur að núver-
andi brú. Gamla Blöndubrúin stend-
ur nú á búkkum skammt ofan við
skeiðvöllinn engum til gagns nema
tímans tönn en í þessari brú er fólgin
mikilvæg samgöngusaga.
Í ljósi framanritaðs þá þarf ekki
að undra að íbúum á Blönduósi hafi
fjölgað um tæp 5% frá áramótum og
eru nú í októberbyrjun 936.
En lífið er ekki bara malbik og
steypa. Eina eigum við Blöndu-
ósingar grágæs sem ber nafnið Arn-
ór. Eins og nafnið segir til um þá er
um að ræða gassa sem hefur fengið
um háls sér gervihnattasendi. Arnór
var merktur við fjölbýlishúsið á
Blönduósi um miðjan júlí og hefur
síðan þá farið víða um héraðið. Fyrst
var hann lengi í Langadal við bæina
Glaumbæ og Geitaskarð. Þaðan
flaug hann í Vatnsdalinn og dvaldi
um hríð við Sveinsstaði. Frá ut-
anverðum Vatnsdal flaug Arnór aft-
ur í Langadalinn í kornið á Holta-
stöðum en síðustu daga hefur
gassinn dvalið við bæinn Grund í
Svínadal og hefur fram til þessa
sloppið fram hjá byssukjöftum skot-
veiðimanna. Arnór er þriðja gæsin á
Blönduósi sem fengið hefur gervi-
hnattasendi á jafn mörgum árum.
Árið 2016 var Blanda merkt og
komst hún yfir hafið en gaf upp önd-
ina í Skotlandi annan dag jóla. Í
fyrra var gæsin Linda merkt og féll
hún fyrir höglum í Langadal um
haustið en fram hjá þeim hafði hún
sloppið 17 undangenginn ár. Von-
andi kemst Arnór gassi yfir hafið og
heim í vor og getur sagt okkur ferða-
sögu sína.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Sólarlag Októbersólin að hverfa bak við Brekkuna á Blönduósi. Sumarið reyndist Húnvetningum ágætlega.
Uppbygging orð ársins
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Sigríður Á. Andersen dómsmála-
ráðherra hefur lagt fram laga-
frumvarp um breytingu á ýmsum
lögum vegna afnáms ákvæða um
uppreist æru. Lögin eiga að taka
gildi 1. janúar nk.
Sigríður sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að það væri
fyrst og fremst nauðsyn á því að
frumvarp af þessum toga yrði að
lögum. „Ef það gerist ekki þá tek-
ur sig upp aftur ákvæðið í hegn-
ingarlögum um heimild til þess að
veita uppreist æru. Það þarf að
vera annaðhvort við lýði, heimild
til þess að veita uppreist æru, eins
og var hér áður fyrr, eða þá með
þeim hætti sem nýja frumvarpið
gerir ráð fyrir, að menn geti öðl-
ast á nýjan leik borgararéttindi,
sem hafa fallið niður þegar menn
fá refsidóma. Að ákveðnum tíma
liðnum, frá því að refsingu lauk,
öðlast menn réttindin til ákveð-
innar atvinnuþátttöku og kjör-
gengi á ný. Það er því mikilvægt
að þetta nái fram að ganga, með
einum eða öðrum hætti,“ sagði
Sigríður.
Samráð við lögmenn og fanga
Ráðherra segir að samráð hafi
verið við Lögmannafélag Íslands
og Afstöðu, félagi fanga, þegar
frumvarpið var samið.
Í greinargerð með frumvarpinu
segir að með lögunum og þeirri
heildarendurskoðun sem nú fari
fram sé horfið endanlega frá því
að stjórnvöld taki ákvarðanir um
uppreist æru.
Lagt er til að horfið verði frá
því að skilyrði fyrir starfi eða
embætti verði þau að viðkomandi
hafi óflekkað mannorð eða hafi
ekki gerst sekur um refsivert at-
hæfi sem megi telja svívirðilegt að
almenningsáliti, en jafnframt að
hæfisskilyrði í tiltekin embætti
réttarvörslukerfisins og til veit-
ingar málflutningsréttinda verði
þyngd.
Orðrétt segir í greinargerðinni:
„Þá verður að öllum líkindum til-
efni til þess að endurskoða í kjöl-
farið þær kröfur sem gerðar eru
til ýmissa annarra stétta og emb-
ætta, svo sem endurskoðenda, rík-
isskattstjóra og félagsdóms, auk
þess sem rétt er að huga að því
hvort rétt sé að skilgreina nánar í
lögum hæfisskilyrði til dæmis heil-
brigðisstarfsmanna eða presta.“
Með 1. grein frumvarpsins er
lagt til að 84. og 85. grein al-
mennra hegningarlaga sem fjalla
um uppreist æru verði felldar
brott úr lögunum. Þannig verði
horfið frá því að fjalla um missi
æru einstaklinga í íslenskri lög-
gjöf og endurveitingu æru með
stjórnvaldsákvörðun, enda þyki
slíkt fyrirkomulag úrelt og ekki í
takti við nútímahugmyndir í refsi-
pólitík.
Í stað tilvísana í lögum til
óflekkaðs mannorðs, er lagt til
samkvæmt greinargerðinni með
frumvarpinu, að kveðið verði á um
að einstaklingar, sem ber að hafa
óflekkað mannorð, samkvæmt nú-
gildandi lögum, til að njóta tiltek-
inna atvinnuréttinda, fái ekki að
sinna starfinu fyrr en fimm ár eru
liðin frá því afplánun lauk að fullu.
Fyrirkomulagið
sagt þykja úrelt
Afnám ákvæða um uppreist æru
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nauðsyn Ráðherra segir nauðsyn-
legt að frumvarpið verði að lögum.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er fyrir löngu orðinn einn vinsælasti
staður barnafjölskyldna á landinu. Má þar oft um helgar sjá forvitin börn
ásamt foreldrum sínum virða fyrir sér fjölbreytt dýralíf. Meðal þess sem
fyrir augu ber eru nokkrir selir, þeirra á meðal sá sem hér sést á sundi, en
dýrin þykja heillandi og getur verið mikið fjör í selabúrinu þegar dýrahirð-
ar kasta til þeirra fiski og öðru góðmeti.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sundgarpur heillar augað