Morgunblaðið - 13.10.2018, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta
Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda
og hagræða málin fyrir húsfélög
Traust - Samstaða - Hagkvæmni
eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005
Ráðgjöf
Veitum faglega ráðgjöf
til húsfélaga
Bókhald
Höfum umsjón með
bókhaldi fyrir húsfélög
Þjónusta
Veitum persónulega þjónustu
sem er sérsniðin að hverju
og einu húsfélagi
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Rúmt ár er síðan innkauparáð
Reykjavíkurborgar óskaði eftir
sundurliðun á reikningum varðandi
einstök innkaup í tengslum við
braggann í Nauthólsvík. Yfirlit frá
skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar
yfir einstök innkaup yfir 1 milljón
króna var lagt fram á fundi ráðsins
16. júní 2017. Í kjölfarið óskaði inn-
kauparáð eftir nánari sundurliðun
vegna Nauthólsvegar 100 og að þær
kæmi fram númer innkaupaferils
ásamt því hvort samningur hefði ver-
ið gerður að undangengnu formlegu
ferli á grundvelli innkaupareglna.
Óskað álits borgarlögmanns
Á fundi innkauparáðs 18. ágúst
2017 var lagt fram sundurliðað svar
frá skrifstofu eigna- og atvinnuþró-
unar. Samkvæmt fundargerð fara
fulltrúar ráðsins í kjölfarið fram á
álit borgarlögmanns um hvort samn-
ingar um framkvæmdina hafi verið
gerðir í samræmi við þágildandi
regluverk um opinber innkaup. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
voru það upphæðirnar sem fulltrúar
innkauparáðs ráku augun í. Sam-
kvæmt reikningum vegna fram-
kvæmdarinnar á fyrstu þrem mán-
uðum ársins 2017 var kostnaður
þegar orðinn tugir milljóna króna.
Borgarlögmaður hefur ekki enn
skilað álitinu sem óskað var eftir 18.
ágúst 2017. Þegar Morgunblaðið
hafði samband við skrifstofu borg-
arlögmanns kom fram að umbeðið
álit væri í vinnslu og stefnt væri að
því að leggja það fram á næsta fundi
innkauparáðs hinn 18. október, þ.e.
einu ári og tveimur mánuðum eftir
að óskað var eftir áliti. Á þeim tíma
þeim tíma hefur framkvæmdin farið
úr nokkrum tugum milljóna í yfir 400
milljónir krónur.
Hundruð milljóna hér og þar
Mestur kostnaður fór í smíða-
vinnu, eða um 125 milljónir. Þar af
eru tæpar 106 milljónir sem verk-
takafyrirtækið Smiðurinn þinn lfs.
fékk greitt frá borginni, sem er
mesti útlagði kostnaður til eins aðila.
Þegar innkauparáð setti spurningar-
merki við kostnaðinn sumarið 2017
var kostnaður hjá fyrirtækinu Smið-
urinn þinn 13 milljónir króna.
Kostnaður við múrverk er 36,4
milljónir, stálbogar sem notaðir voru
við uppbyggingu braggans kostuðu
tæpar 6 milljónir og þá voru 8,5 millj-
ónir greiddar í málningarvinnu.
Stálgluggar í braggann kostuðu
4,5 milljónir og barborð um eina
milljón. Kostnaður við að smíða bar-
borðið var um 2,5 milljónir. Þá var
kostnaður við innréttingar, hurðir og
borðplötu rúmar 4 milljónir. Þá voru
höfundarréttarvarin strá, innflutt
frá Danmörku, fyrir tæplega 800.000
krónur.
Þegar kemur að ýmiss konar frá-
gangi má telja til vinnu við loftræst-
ingu sem var um 15 milljónir, 16
milljónir í pípulagnir og rúmlega 35
milljónir í raflagnir. Allar fram-
kvæmdir við braggann hafa verið
stöðvaðar en mikil vinna er eftir í
viðbyggingunni þar sem til stendur
að opna frumkvöðlasetur.
Saga framkvæmda við Nauthólsveg 100 frá 2008 til 2018
Eldur kemur upp í tveim bröggum í Nauthólsvík og
slökkviliðið kallað til.
Skipulags-
ráð Reykja -
víkur
samþykkir
breytingu á
lóða-
mörkum í
Nauthólsvík
að beiðni
fram-
kvæmda-
og eignasviðs borgarinnar. Ekki talin þörf á grenndar-
kynningu þar sem breytingin varðar aðeins hagsmuni
Reykjavíkurborgar. Ríkið á ennþá braggann en til stendur
að borgin eignist hann.
Ríkið selur
Reykja-
víkurborg
bragg-
ann á 3
milljónir
króna.
Reykjavíkur-
borg óskar eftir
samstarfsaðilum
og leigutaka vegna
endurgerðar á
hluta braggans.
Borgin mun sjá um
endurgerðina en
henni verður hagað
eftir því sem hægt
er í samræmi við
kröfur væntanlegs
notanda, segir í
auglýsingu borgar-
innar.
Reykjavíkurborg og Háskólinn í Reykjavík
skrifa undir samning um að bragginn verði
notaður sem félagsaðstaða fyrir nemendur
og nýsköpunar- og rannsóknarsetur. Borgin
hyggst ráðast í umfangsmiklar endurbætur á
húsnæðinu, segir í fréttatilkynningu.
Lagt fram svar skrifstofu eigna- og at-
vinnuþróunar Reykjavíkurborgar varðandi
nánari sundurliðun á framkvæmdum við
Nauthólsveg 100. Innkauparáð óskar eftir
áliti embættis borgarlögmanns á svarinu.
Bragginn bistro opnaður.
23. janúar
19. júní September18. ágúst
2008 2009 2010 2014
25. september
2015
Innkauparáð
óskar eftir nánari
sundurliðun á
framkvæmdum við
Nauthólsveg 100.
Innkauparáð óskar
eftir að upplýsingar
sem sendar eru
beri með sér númer
innkaupaferils hafi
samningur verið
gerður að undan-
gengnu formlegu
ferli á grundvelli
innkaupareglna.
16. Júní
2017 2018
Reykjavíkur-
borg sækist
eftir leyfi
byggingarfull-
trúa fyrir fram-
kvæmdum.
2016
Í ljós kemur að bragginn hefur kostað yfir 400
milljónir krónur í stað hinna áætluðu 158 milljóna og
að Náðhúsið er óklárað.
Spurningarmerki sett
við samninga í júní 2017
Borgarlögmaður beðinn um álit fyrir ári um hvort samningar vegna braggans
væru gerðir samkvæmt innkaupareglum Ekkert svar borist enn
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Undiritun Borgarstjóri skrifar undir samning við HR vegna braggans 2015.