Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 Veiðiklær Ungir og fisknir menn veiða á stöng á bryggju í spegilsléttri Gömlu höfninni í Reykjavík. Höfnin var tekin í notkun fyrir rúmri öld og varð þá þungamiðja atvinnulífs í borginni. Eggert Fáum innlendum stjórnmálafréttum hef ég orðið fegnari hin síðari ár en af falli rík- isstjórnar undir stjórn míns eigin flokks, falli ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar. Ekki svo að skilja að þar sé við Bjarna að sakast. En fallinu fylgdi að forysta Viðreisnar missti öll áhrif, vonandi um aldur og ævi. Meðal almennra flokksmanna Viðreisnar er margt góðra karla og kvenna. Ég ritaði góðri vinkonu dóttur minnar heitinnar langan tölvupóst þegar hún yfirgaf Sjálf- stæðisflokkinn fyrir þennan líka flokkinn. „Þar fór góð- ur biti í hundskjaft.“ Allt hefði ég heldur viljað henni en þessi örlög (í pólitík). Marg- ir kynnu að álíta ástæðuna svik ein- stakra persóna. Þótt Þorsteinn og einkum Þorgerður hafi launað okkur tryggðina með sínum hætti er ekki svo. – En hver eru málefnin sem fara svo fyrir brjóstið á okkur sjálfstæðismönnum og gera okkur svo andsnúin Viðreisn? Evrópusambandið Meðan ég var enn að gera end- anlega upp hug minn til ESB spurði ég nokkra málsvara sam- bandsins (þá) innan míns flokks um rök fyrir aðild. Einn boðaði þó svör, en enginn svaraði afmörkuðum spurningum um áhrifin á Ísland. Sannleikurinn er sá að innan ESB, þar sem ég starfa alltaf hálft árið, öfunda allir Ísland af stöðu sinni, þ.e. utan embættiselítunnar. Á Ís- landi fyllist hluti embættiselítunnar hins vegar öfund til hinna skatt- frjálsu kollega sinna og þráir Para- dís á jörð. Um samanburð á Sovétríkjunum og ESB, lýðræðið, og skipan vald- hafanna mætti rita langt mál. Það er þó óþarft; sama fyrirkomulag gildir, enda gamlir embættismenn kommúnista þar vel gjaldgengir eins og dæmin sanna. Svo er ekki í þjóðríkjunum. Nú eru Pólverjar að setja af gamla dómara, skipaða af kommúnistum og fer hreint ekki vel í embættismenn ESB. Frelsið Viðreisn aðhyllist frelsi án tak- markana. Frelsi til að flytja inn salmonellukjúklinga. Innflutnings- frelsi á kjöti stútfullu af sýklalyfj- um, að líkindum með hag barnanna í huga. Ekkert verið að hlusta á þessa lækna. Hvað vita þeir um frelsið? Og það er ekki bara innflutnings- frelsið sem Viðreisn er hugleikið. Nú hafa fulltrúar Viðreisnar í borg- arstjórn greitt atkvæði með frelsi til að bólusetja börn ekki. Kári Stefánsson nefnir það réttilega frelsi til að setja börn annarra í hættu. Svona er frelsið nú dýr- mætt; ekkert og enginn skal setja því mörk! Evran Um grísku leiðina, gjaldmiðil Stór-Þýskalands handa Íslandi, blessaða evruna, þarf að fjalla sér- staklega. Enginn skortur er á spá- mönnum sem dásama hana. T.d. heldur einn skríbent því fram að 80-90% viðskipta Íslands séu við evrusvæðið! Sá er alþjóðlegur kaupsýslumaður, stjórnmálarýnir og ég veit ekki hvað og skrifar ann- að veifið um þetta í Morgunblaðið. Um þá stórkostlegu mynt og kosti hennar þarf því eiginlega að rita sérstaka grein þegar tími vinnst til. Eftir Einar S. Hálfdánarson » Viðreisn aðhyllist frelsi til að flytja inn salmonellukjúklinga og kjöt stútfullt af sýklalyfjum. Einar S. Hálfdánarson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Af Viðreisn Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um mannanöfn sem vakið hefur nokkrar umræð- ur, að vonum. Sam- kvæmt frumvarpinu verða flestar reglur um mannanöfn afnumdar með öllu. Stundum er því hald- ið fram að manna- nafnalögin hafi m.a. þann tilgang að vernda íslenska tungu, en það eru léttvæg rök. Málið snýst um réttindi og skyldur samfélagsins og þegna þess. Samkvæmt greinargerðinni með frumvarpinu er „lagt til að ekki verði gerður greinarmunur á eiginnöfnum og millinöfnum“. Þar sem millinöfn og ættarnöfn skarast þýðir þetta í reynd að „ættarnafna- leg“ nöfn verða heimil sem eiginnöfn. Engar skorður eru heldur reistar við inntaki, fjölda eða röð nafna. Það virðist út- breiddur skilningur að nafngiftir barna séu einkamál foreldra, en það á alls ekki við um samskipti barna og for- eldra að öðru leyti. Hér eiga þrír aðilar hlut að máli, barn, forsjármenn þess og samfélagið. Það er eðlilegt hlutverk samfélagins að standa vörð um hagsmuni barna á þessu sviði sem öðrum. En jafnframt gildir hin gullna regla að samfélagið gæti hófs í afskiptum sínum af per- sónulegum högum almennings. Í gildandi lögum er ákvæði um málfræðilegt form og ritun eigin- nafna, þó með þeirri undanþágu að hefð helgi frávik í þessum efnum. Nauðsynlegt er að afnema eða milda þetta ákvæði. Enn fremur þarf að af- nema algera kyngreiningu fornafna (sbr. „Blæ-málið“) en þó stuðla að því að hefðir séu í heiðri hafðar. Þetta er einfalt í framkvæmd með klásúlu á borð við: „Drengjum skal alla jafna gefa hefðbundin drengjanöfn og stúlkum hefðbundin stúlknanöfn. Óski forráðamenn barns þess sér- staklega er þó heimilt að víkja frá þessu.“ Það þarf líka að afnema bann við nýjum ættarnöfnum, en þetta er flóknara, kallar á skilgreiningu eða upptalningu á því hvaða nöfn séu gjaldgeng sem ættarnöfn (eins og tíðkast í öðrum löndum). Eftirfarandi skorður eru hins veg- ar nauðsynlegar (auk ýmissa tækni- legra ákvæða). Í fyrsta lagi þarf að aðgreina og skilgreina ólíkar teg- undir nafna (fornöfn, millinöfn, kenninöfn). Í öðru lagi þarf að hafa reglur um röð nafna (fornöfn fyrst, síðan hugsanleg millinöfn, síðan kenninöfn). Í þriðja lagi þarf að hafa reglur um leyfilegan fjölda skráðra (en ekki endilega gefinna) nafna. Í fjórða lagi þarf að skilgreina ættar- nafnarétt. Í fimmta lagi er mikil nauðsyn á að halda í amaákvæðið, þess efnis að nafn megi ekki vera nafnþega til ama eða minnkunar; þetta er óumflýjanleg skylda sam- félagsins gagnvart börnum og eðlileg túlkun á nafnréttinum – réttinum til að bera sæmandi nafn. Í sjötta lagi þarf tvímælalaust að hafa úrskurð- arnefnd um álitamál, eins og tíðkast á öðrum sviðum stjórnsýslu; það er afar óskynsamlegt að varpa ábyrgð í þessum efnum yfir á pólitískt kjörn- ar og misvitrar barnaverndar- nefndir. Loks er nauðsynlegt að hafa ákvæði þess efnis að fullorðnir ein- staklingar sem æskja breytinga á eiginnöfnum sínum eða millinöfnum séu óbundnir af amaákvæðinu. Alþingismönnum ætti að vera vor- kunnarlaust að komast að sam- komulagi um nauðsynlegar en hóf- legar breytingar á mannanafna- lögunum. Þegar alls er gætt er málið einfalt. Nauðsynlegar og ónauðsynlegar reglur um mannanöfn Eftir Halldór Ármann Sigurðsson » Gera þarf skynsam- legar breytingar á mannanafnalögunum en ýmsar reglur um nöfn eru þó áfram nauðsyn- legar. Halldór Ármann Sigurðsson Höfundur er fyrrverandi formaður mannanafnanefndar. halldor.sigurdsson@nordlund.lu.se

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.