Morgunblaðið - 13.10.2018, Page 32

Morgunblaðið - 13.10.2018, Page 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 Silica Renew getur grynnkað ör-hrukkur lagað húðskemmdir af völdum of mikils ss. geoSilica Renew er sink- og koparbætt, u tveggja eru lífsnauðsynleg steinefni sem uðlað að styrkingu nagla og hárs auk þess nka hárlos og klofna enda. Bætum heilsuna á með geoSilica. enew Fyrir húð, hár og neglur tituteofmineralresearch.org/mineral-elements www.geosilica.is 15% afsláttur af Renew 250 kr. af hverri sölu renna til Krabba- meinsfélagsins geo og sólarljó en hvor geta st að min innan fr R *http://ins GeoSilica kísilsteinefnið fæst í Heilsuhúsinu, öllum helstu apótekum, matvöruverslunum og í vefverslun geoSilica.is Íslenska kísilsteinefnið sem slegið hefur í gegn Það eru flestir sammála um að ný- sköpun og tenging við ferðaþjónustu séu þættir sem eflt geta íslenskan landbúnað til framtíðar. Áður en ég sneri mér að rekstri ferðaþjónustu- fyrirtækis starfaði ég hjá Matís og kom þar að mörgum verk- efnum sem snúa að vöruþróun og bættri nýtingu af- urða. Ég leyfi mér að fullyrða að mjög mikill áhugi er meðal bænda á vöruþróun og nýsköpun, þ.e. að breikka tekjugrunn sinn, fram- leiða nýjar vörur og auka verð- mæti hráefnis með því að upp- runatengja vörur og undirstrika sérstöðu. Mjög margt jákvætt og spennandi hefur gerst í þeim mál- um á undanförnum árum en það er líka margt sem hamlar. Mikilvægt er að opna á mögu- leika bænda til að vinna úr sínu hráefni, það kallar á breytingar á regluverki, ekki hvað síst á fram- kvæmd reglna um slátrun. Matís hefur lagt fram tillögu að skyn- samlegri leið í þessum efnum um örsláturhús sem gerir bændum kleift, uppfylli þeir skilyrði (sem tryggja matvælaöryggi og dýra- velferð), að slátra heima á bæ, vinna afurðir og selja þær. Land- búnaðarráðherra upplýsti á áhugaverðum morgunfundi um verðmætasköpun í landbúnaði 10. októ- ber sl. að hann hefði þegar sett af stað vinnu til að koma fót matvælaáhættumats- nefnd en það er mik- ilvægt skref til að hægt sé að opna á þennan möguleika. Eins og staðan er í dag þá er það sem ekki er leyft bannað og til að hægt sé að leyfa örsláturhús þarf einhver að hafa heim- ild til að heimila þau að upp- fylltum skilyrðum. Um leið og vöruþróun og aukin verðmætasköpun í landbúnaði er farsæl leið til að breikka tekju- grunn bænda hefur hún áhrif víð- ar. Stundum má skilja á um- ræðunni að ferðaþjónustan hafi komið bændum til bjargar og það er rétt að tekjur bænda af ferða- þjónustu eru í vaxandi mæli mik- ilvægur tekjustofn á mörgum bú- um. Hins vegar er ljóst að bændur eru nauðsynlegir ferða- þjónustunni. Án bænda væri ferðaþjónustan ekki það sem hún er í dag. Þar kemur margt til, dreifð byggð um landið er nauð- synleg forsenda þeirra innviða sem ferðaþjónustan þarf og notar, margir bændur eru virkir og leið- andi í greininni þegar kemur að afþreyingu og gistingu, auk þess sem innlend matvælaframleiðsla, t.d. skyr, lambakjöt og afurðir úr gróðurhúsum, er órjúfanlegur hluti af jákvæðri upplifun ferða- manna af landinu. Það að auka fjölbreytni og nýsköpun í landbún- aði mun því ekki aðeins koma bændum og íslenskum neytendum til góða heldur líka ferðaþjónust- unni í heild og dreifa tekjum af henni í auknum mæli til bænda og treysta þannig undirstöðu byggðar um land allt og stuðla að blómlegu lífi til sveita. Mikilvægt er að mennta- og stuðningskerfi styðji við þessa þróun, það kallar á aukið samstarf þeirra sem koma að þessum mál- um, Landbúnaðarháskóla Íslands, Matís og fleiri aðila. Það er risa- stórt tækifæri núna til að efla ís- lenskan landbúnað, gera hann arð- bærari og framsæknari. Það er eftirspurn eftir vörum beint frá búi, kúnnahópurinn hefur aldrei verið stærri, ef ekki núna þá hve- nær? Landbúnaður, frelsi og ferðaþjónusta Eftir Sigrúnu Elsu Smáradóttur »Mikilvægt er að opna á möguleika bænda til að vinna úr sínu hrá- efni, það kallar á breyt- ingar á regluverki, ekki hvað síst á framkvæmd reglna um slátrun. Sigrún Elsa Smáradóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Ice- land Exclusive Travels og fv. for- stöðumaður lausna og ráðgjafar hjá Matís. sigrun@icextravel.com Frumvarp til fjár- laga ársins 2019 var lagt fram á Alþingi þann 11. september sl. Af hálfu ríkisstjórn- arinnar voru boðaðir bjartari tímar í heil- brigðisþjónustunni þar sem auka ætti veru- lega framlag ríkisins til heilbrigðismála næstu árin. Það er rétt svo langt sem það nær. Auka á fjárveitingar til Landspítala, heilbrigðisstofnana og heilsugæslu. Einnig á að byggja ný hjúkrunarheimili og dagdvalir. Hins vegar er staðreyndin sú að fjárlög ársins 2018 og þau fjárlög sem nú hafa verið lögð fram fyrir árið 2019 fela í sér niðurskurð á núverandi rekstri nánast allra hjúkrunarheimila landsins sem og rekstri margra ann- arra veitenda heilbrigðisþjónustu eins og SÁÁ og Sjálfsbjargarheim- ilisins. Frumvarpið felur einnig í sér niðurskurð hjá rekstraraðilum dagd- valarþjónustu í landinu, hvort sem um er að ræða almennar dagdvalir eða sérhæfðar dagdvalir fyrir sér- staka sjúklingahópa eins og alzheim- er-sjúklinga. Rekstrargrundvöllur allra þessa aðila var skertur í fyrra með fjárlögum ársins 2018 og samkvæmt fyr- irliggjandi fjárlaga- frumvarpi ársins 2019 á að halda niðurskurð- inum áfram. Óskiljanlegur niðurskurður Ekki eru til staðar neinar forsendur til að skera niður í rekstri um- ræddra aðila. Það liggur fyrir að það vantar 30% upp á núverandi dag- gjöld hjúkrunarheimila til að þau geti staðið undir þeim lágmarksviðmiðum sem Embætti landlæknis hefur sett fram um mönnun hjúkrunarfræð- inga, sjúkraliða og annarra starfs- manna á hjúkrunarheimilum. Inn á þetta atriði var beinlínis komið í nú- verandi stjórnarsáttmála. Þar segir orðrétt: „Einnig verður hugað að því að styrkja rekstrargrundvöll hjúkr- unarheimila.“ Erfitt er að sjá hvernig boðaður niðurskurður á rekstr- argrunni hjúkrunarheimila samrým- ist þessum orðum. Dagdvalarrýmin standa ekki undir sér Í byrjun árs 2018 hófust viðræður milli Samtaka fyrirtækja í velferð- arþjónustu, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Sjúkratrygginga Ís- Framlög lækkuð til hjúkrunar- heimila, dagdvala, SÁÁ og fleiri Eftir Eybjörgu Hauksdóttur Eybjörg Hauksdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.