Morgunblaðið - 13.10.2018, Síða 39

Morgunblaðið - 13.10.2018, Síða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 ✝ María Guðna-dóttir tölvu- og kerfisfræðingur fæddist á Ísafirði 21. febrúar 1959. Hún lést á Land- spítalanum hinn 20. september 2018. Foreldrar henn- ar voru Edda Magnúsdóttir, f. 5.7. 1937, og Guðni Jónsson, f. 1.3. 1931, d. 8.10. 2001. Systkini Maríu eru Dagný, f. 1954, Selma, f. 1957, Jón Ólafur, f. 1964, og Edda Ýr, f. 1966. Stjúp- börn Maríu frá hjónabandi hennar með Guðmundi Þór Guð- mundssyni (þau skildu) eru Bergljót Gyða, f. 1985, Kolbrún María, f. 1990, og Kristján Páll, f. 1991. María ólst upp í Kópavogi frá 1960, gekk í skóla þar og varð stúdent frá Fjölbrautaskól- anum í Ármúla 1981. Hún nam tölvu- og kerf- isfræði við IONA College í Bandaríkjunum til 1986. Þá flutti hún heim og starfaði við fag sitt víða síðan. Útför hennar fór fram frá Ás- kirkju 8. október 2018 í kyrr- þey. Leiðir okkar Maríu lágu fyrst saman á Þingvöllum vorið 2002. Þar hitti ég fyrir yngri son minn, Guðmund Þór Guð- mundsson. Hann var ekki einn á ferð en í för með honum var stúlkan María Guðnadóttir sem hann kynnti fyrir mér sem vinkonu sína. Þessi vinátta leiddi síðan til hjónabands. Þau giftu sig í Dómkirkjunni að viðstöddum svaramönnum sínum tveimur en þeir voru við mæður brúð- hjónanna. Að athöfn lokinni fórum við fjögur á veitingahús- ið Jómfrúna, sem er spölkorn frá Dómkirkjunni, og fengum þar dýrindis hádegisverð þar sem ekkert var til sparað. Að því loknu hlupu brúðhjónin léttfætt út í bíl og óku sem leið liggur til Keflavíkurflugvallar og fóru í brúðkaupsferð beint til Bandaríkjanna. Við María urðum góðar vin- konur og það sem meira var, hún varð afar góð og náin vin- kona fyrri eiginkonu Guðmund- ar, Elínar Davíðsdóttur, og börn þeirra þrjú urðu líka börn Maríu. Hún kallað Elínu „móð- ur barnanna sinna“. María naut þess að bjóða gestum heim en hún var afar gestrisin og afbragðskokkur. Naut ég góðs af því og var þar tíður gestur. María var fríð sýnum og glaðleg, þéttvaxin og létt á fæti. Hún var mikill heimsborgari, hafði búið í Bandaríkjunum um árabil og talaði því ensku eins og inn- fædd. Hún var listunnandi, las mik- ið, jafnt enskar sem íslenskar bækur. Hún hafði fallega söng- rödd og söng í ýmsum kórum gegnum tíðina. Við þrjár, Elín, María og ég, sóttum oft tón- leika saman og vorum fastir gestir í óperunni. Ég og börnin vorum tíðir, nánast fastir gestir við sunnudagsborð þeirra Guð- mundar. Það var yfirleitt Guðmundur sem hringdi og hóf mál sitt gjarnan með orðunum: „Maja vildi endilega bjóða þér í mat“. Það fór því ekki milli mála hvort þeirra stóð fyrir því. Þetta voru góðir dagar. En snögglega syrti yfir, Elín féll frá langt um aldur fram árið 2014. Var hún harmdauði okkur öllum, ekki síst Maju. En um- hyggja Maju fyrir börnunum þremur var söm allt þar til yfir lauk. Maja flutti í Sóltún 28 fyrir nokkrum árum og bjuggum við nánast hlið við hlið þar sem ég bý í Mánatúni. Nýttum við ná- býlið vel, en mjög hallaði á mig í gestgjafahlutverkinu. Fyrir u.þ.b. einu ári tók Maja bylt- ingarkennda ákvörðun, seldi íbúðina sína og fluttist búferl- um til Spánar. Þar virtist hún una sér afar vel og ekkert benti til að hún flytti heim á næst- unni. Hún kom þó öðru hverju og hittumst við þá alltaf auk þess sem hún hagaði ferðum sínum gjarnan þannig að vera hér á landi þegar eitthvað var um að vera eins og stórafmæli, út- skriftir, andlát o.fl. Ég hafði sjálf stefnt að því að heimsækja Maju til Spánar fyrir næstu áramót og gert ráðstafanir í því skyni. Þótt Spánn sé gott og gjöfult land og gott heim að sækja, þá er áhugi minn á slíkri ferð horfinn með öllu, a.m.k. um sinn. Ég kveð kæra tengdadóttur með söknuði og virðingu og þakka henni samfylgdina. Blessuð sé minning Maríu Guðnadóttur. Bergljót Líndal. Það er erfitt að ímynda sér lífið án Maju frænku og hennar nærveru, hvort sem það var hláturinn hennar, bros eða viska. Maja frænka var alltaf stór hluti af lífi okkar systkina, hún passaði okkur þegar for- eldrar okkar fóru utan, var með okkur á jólum og áramótum auk þess að borða ávallt með okkur á miðvikudögum hér á árum áður. Það á eftir að taka langan tíma að venjast þeim raunveru- leika að Maja frænka sé haldin á vit nýrra ævintýra, þar sem erfitt reynist að ímynda sér næstu skötuveislu, sviðaveislu og/eða fjölskylduveislu án hennar. Maja hafði stóran persónu- leika sem einkenndist meðal annars af ákveðni, umhyggju, gleði og stóru hjarta. Takk fyrir allar samveru- stundirnar. Snert hörpu mína, himinborna dís, vo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré, sem fann ég út við sjó ég fugla skar og líka’ úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir synt á læk og tjörn, og sumir verða alltaf lítil börn. En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri’ í fjarska villtan vængjaþyt. Um varpann leikur draumsins perlu- glit. Snert hörpu mína himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. (Davíð Stefánsson) Þín systkinabörn, Skarphéðinn, Guðni Karl, Eydís Ýr og fjölskyldur. Það var virkilega sárt að frétta að Mæja frænka væri farin frá okkur. Þrátt fyrir að hafa alltaf unnið mikið var hún samt alltaf til staðar og þó svo að hún hafi dregið sig sumpart í hlé síðustu árin þá hélt hún alltaf sambandi og hrelldi okk- ur Norðurlandabúana með snöppum af góðu Spánarveðri allan síðasta vetur – tvær myndir ef veðrið var sérstak- lega vont hjá okkur. Þegar litið er til baka þá var Mæja alltaf brosandi og tókst henni alltaf að njóta sín alveg sama hvað við vorum að ræða eða hvað var að gerast. Líf hennar var þó ekki dans á eintómum rósablöð- um, greinarnar með þyrnunum voru líka víða, en allir sem kynntust Mæju elskuðu hana og þessa óendanlegu gleði sem hún dreifði meðal allra sem hún hitti. Mæja var öðruvísi en hitt „fullorðna fólkið“ sem við um- gengumst. Þrátt fyrir að vera mun nær foreldrum okkar í aldri þá virkaði Mæja alltaf eins og hún væri af okkar kyn- slóð, þess vegna fannst manni það eilítið furðulegt þegar hún sagði að hún myndi eftir sjö- unda áratugnum og myndi Mæja eflaust fara að hlæja hér, ef hún væri að lesa þetta. Hún Mæja var með ólíkindum skemmtileg og ung í anda og, að öðrum frábærum frænkum ólöstuðum, þá var hún uppá- haldsfrænka okkar allra. Því var það mjög sárt að renna í huganum yfir allt sem hún hef- ur gefið okkur fá í gegnum ár- in, bæði gleði en líka verald- legt, en hún var dugleg að kynna okkur fyrir svo mörgu amerísku, meðal annars allar bækurnar um Gretti og MAD- blöðin sem hún keypti þegar hún bjó í Bandaríkjunum. Hún lét þetta ekki frá sér því hún var hætt að hafa gaman af þessu, hún var bara búin að leggja alla brandarana á minn- ið. Elsku Mæja, við munum allt- af sakna þín. Ásdís, Ernir og Ari Brynjólfsbörn. Við Mæja höfum verið vin- konur frá því í æsku. Kópavog- urinn var okkar staður og þar var margt brallað í áhyggju- lausri æsku. Er fullorðinsárin tóku við héldum við alltaf vináttunni, ræktuðum hana og styrktum, allt til enda í lífi Mæju. Ýmislegt var gert sér til gleði og hláturs. Við fórum margar ferðir saman, innan- lands sem utan og alltaf var kátínan og gleðin bílstjórinn í vagninum okkar. En eins og gengur og gerist í lífinu þá banka stundum erf- iðleikar og áhyggjur á dyrnar. Það gerðist hjá okkur báðum. Báðar fengum við krabbamein sem þurfti að meðhöndla. Aldr- ei gleymdi Mæja mín þó stelp- unni í sér, gleðinni og hlátr- inum. Við tækluðum þennan vágest báðar með hjálp og stuðningi hvor frá annarri. Mæja var ómetanlegur vinur, bæði í gleði og sorg. Ég á henni svo margt að þakka. Móður minni var hún einstakur vinur sem ég fæ aldrei fullþakkað. Þær voru miklar vinkonur og fóru meira að segja í utan- landsferðir saman. Mæja og gamla konan og meira að segja systir mömmu minnar fékk að fara með þeim. Þannig var Mæja, góð við alla. Síðastliðið ár snéri Mæja mín spilunum sínum við á fram- tíðarborðinu. Hún pakkaði í tösku og hoppaði upp í flugvél og flutti til Spánar. Hún vildi prufa nýjar slóðir og lifa í hlýju loftslagi. Þar undi hún sér vel. Hún elskaði hitann og milda veðrið þar. Hún gaf vinum sín- um rapport nánast daglega á snappinu, hvernig veðrið var hjá henni þann daginn. Ég sakna þess. Í ágúst sl. fór ég út til Spán- ar á slóðir Mæju og setti mig strax í samband við hana. Ég heyrði það strax að Mæja mín var ekki sú sama og áður. Hún var orðin veik. Ég vitjaði hennar heim til hennar og fékk hana til að koma til Íslands, að reyna að frá lækningu þeirra meina sem hrjáðu hana. Heim til Íslands komst hún, en þá bara til að deyja. Svo mikið veik var hún orðin að ekkert var hægt að gera. Fyrst örlög hennar fóru á þann veg, þá er ég glöð í hjarta mínu að hún fékk að deyja á Ísland- inu góða, umvafin sínum nán- ustu. Ég gæti skrifað svo margt og mikið um vináttu okkar Mæju, sem aldrei bar skugga á, en ég kýs að eiga þær minn- ingar í hjartanu. Röddin henn- ar, hláturinn og söngurinn óma í gegnum allar þessar minn- ingar. Fáa þekki ég sem sungu jafn vel og hún og kunni hún alla texta. Þar var Mæja mín fremst í flokki. Ég vil þakka vinkonu minni samfylgdina, vináttuna og styrkinn sem hún hefur gefið mér í gegnum súrt og sætt í okkar lífi. Það er erfitt að kveðja góðan vin, en þannig er lífið. Lífið gefur og lífið tekur. Gleðin og sorgin eru systur og þar höfum við Mæja haldið hvor í hönd annarrar alla tíð. Megi Guð styrkja ættingja hennar alla og vini. Takk fyrir allt, Mæja mín. Við hittumst síðar. Þín vinkona, Kristín Halldórsdóttir (Stína) og fjölskylda. Ég og æskuvinkona mín Þóra höfðum löngum átt okkur þann draum að skreppa til sól- arlanda yfir dimmustu og köld- ustu vetrarmánuðina. Sá draumur varð að veruleika í febrúar 2013 en þá skelltum við okkur í vikuferð til Tenerife. Á leiðinni út hittum við þrjár eld- hressar konur, Maríu, Eddu mömmu hennar og Ellu. Svo skemmtilega vildi til að við lentum á sama hóteli og með okkur tókst mikil og góð vin- átta, sem hefur haldist alla tíð síðan. María stakk upp á við köll- uðum okkur „Tenerifetrillurn- ar“, sem við höfum gert allt frá því að við kynntumst. Þegar heim var komið hittumst við oft, borðuðum saman, sögðum sögur og hlógum mikið. Svo sorglega vildi til að Ella lést um aldur fram á vormánuðum 2014. Þá hafði ein bæst við í hópinn, Elfa, góð og náin vin- kona Maríu. María var í alla staði einstök manneskja, mikill gleðigjafi sem hugsaði um alla, hvort heldur sem var fjölskyldu eða vini. Hún var börnum Ellu vin- konu sinnar mikil stoð og stytta frá því að hún kynntist þeim. Önnur mamma þeirra og raunagóð þegar sorgin barði á dyr hjá þeim öllum. Það voru alltaf miklir kærleikar á milli hennar og þeirra. Það er oft þannig á lífsleið okkar að við kynnumst nýju fólki, það tekst mikill vinskapur og svo skilur leiðir þegar fólk fer hvað í sína áttina. María, sem var mjög vinmörg, lét það ekki gerast. Hún ræktaði sín vinasambönd, jafnvel frá æsku- árunum. Þegar ég hringdi í hana til Torrevieja í vor höfð- um við ekki hist í langan tíma. Við töluðum lengi saman og það var eins og við hefðum hist í gær. Þannig held ég að margir vina hennar hugsi til hennar, með gleði og þakklæti í huga fyrir að hafa kynnst þessari einstöku lífsglöðu konu sem var með hjartað á réttum stað. Við Þóra sendum elsku Eddu, fjölskyldu hennar og öll- um kærum vinum samúðar- kveðjur og munum minnast hennar með kærleiksríkum hugsunum og góðum minning- um. Lóa og Þóra. María Guðnadóttir Elsku Berglind. Við móðursystur þínar höfum verið í þínu lífi frá fæðingu og mikið yljar það okkur að minn- ast þín. Þú varst aðeins á fyrsta ári þegar Þóra passaði þig og Berg- þóru systur þína sumarið 1969. Alltaf varstu svo ljúf og góð og man ég þig aðallega sitjandi á stofugólfinu að dunda þér. Síðan liðu árin og þú varst fyrstu ár þín í Svíþjóð. Þú varst rúmlega fimm ára þegar þið fjölskyldan fluttuð aftur til Íslands. Þá urðu samvist- ir okkar mjög miklar. Þú fórst með okkur Vilborgu og Þóru í ýmsar ferðir. Vilborg fór með þig ótal ferðir á skíði ásamt Gunnari syni sínum í Blá- fjöll. Þú fórst með Þóru og Mika- el syni hennar í viku heimsókn til Guðfinnu til Akureyrar. Ótalin eru þau skipti sem Vilborg naut þess að hafa þig á heimili sínu í gistingu. Þú varst alltaf tilbúin að fara með okkur ef foreldrar þínir sáu sér ekki fært að koma í ferðir eins og þegar við fórum á Snæ- fellsnes með afa þínum og ömmu til að heimsækja heimabæ afa þó þú værir þá orðin 13 ára. Um tíma varst þú að vinna hjá Þóru í Lýsi og var það mjög ljúf- ur tími. Meðan þú vannst þar átt- uð þið Geir von á ykkar eldri dóttur og voruð að festa kaup á íbúð í Grafarvoginum. Mikið var gamla frænka stolt af ykkur þá. Þegar árin liðu og þú búin að eiga stelpurnar þínar báðar með honum Geir þínum þá brást það aldrei að þið komuð okkur með í árlega haustferð í Munaðarnes. Elsku Berglind okkar, við kveðjum þig með söknuði og þökkum þér fyrir ljúfar og ánægjulegar stundir. Við sendum okkar dýpstu og innilegustu samúðarkveðjur til Geirs, Lindu Maríu, Freyju og litlu ömmustelpnanna ykkar. Foreldrum og systrum sendum við innilegustu samúðarkveðjur og megi góðar vættir vera með ykkur öllum. Þínar móðursystur, Vilborg, Guðfinna og Þóra. Elsku Begga mín, þín verður sárt saknað. Það var erfitt símtal sem ég fékk laugardaginn 29. september þegar ég var á leiðinni á fótbolta- leik. Að þú hefðir orðið bráð- kvödd. Þetta var skrítinn dagur en samt svo táknrænn. Ég fagn- aði Íslandsmeistaratitli með syn- inum en syrgði þig á sama tíma. Sorglegt en samt svo fallegt því fótboltinn var það sem tengdi okkur saman á sínum tíma. Tárin runnu niður kinnar en á sama tíma var ég að fagna með syni mínum. Það sem við gerðum ekki á þessum unglingsárum, kæra vin- Berglind Guðmundsdóttir ✝ Berglind Guð-mundsdóttir fæddist 30. janúar 1969. Hún lést 28. september 2018. Útför Berglindar fór fram 11. októ- ber 2018. kona. Við vorum ekki gamlar þegar við stofnuðum fót- boltafélag hér á Álftanesi og fengum meira að segja Adidas til að styrkja okkur um búninga og fótbolta. Við buð- um Álftnesingum að koma í fótbolta með okkur tvisvar í viku. Sama ár vorum við fengnar til að spila leik á 17. júní þar sem við spiluðum leik sem hluta af hátíðarhöldunum. Í kjölfarið á þessu vildum við fá okkur þjálfara og þá var ákveðið að leita til Haukamanns- ins Kidda og fá hann til að þjálfa okkur og varð þetta grunnurinn að fótboltaliði Hauka svo í fram- haldinu. Við elskuðum fótboltann og þú varst flottur sóknarmaður. Við kepptum út um allt land í nokkur ár. Unnum aðra deildina eftir bráðabana í leik á Selfossi og komumst þá upp í efstu deild. Við hringdum alltaf inn með fréttirn- ar til að auka líkur á að það væri fjallað um kvennalið Hauka því á þessum tíma var lítið fjallað um kvennafótbolta. Við vorum mjög uppteknar af því að þarna væri jafnrétti. Mér varð því oft hugsað til þessa tíma þegar ég ákvað að láta fyrirtækið sem ég stofnaði svara ákalli um bætta umfjöllun um kvennafótbolta og styrktum við umfjöllun fotbolti.net og stofnuðum draumaliðsdeild kvenna. Við vorum einnig mjög ungar þegar við vorum komnar á fullt í ýmsar nefndir UMFB (Ung- mennafélag Bessastaðahrepps). Við stóðum fyrir ýmiss konar uppákomum, borðtennis- æfingum, skákæfingum, meira að segja fjölskyldudegi þar sem for- setinn mætti á svæðið ásamt skemmtikröftum. Á þessum tíma var ekki neinn strætó og því kom það oft fyrir að við vorum að „húkka“ far inn í Hafnarfjörð og til baka með goskassa, nammi og annað til að selja á þessum uppá- komum. Það var aldrei vesen á okkur. Við bara leystum hlutina. Begga, þú varst svo lífsglöð og það var svo gaman að vera í kringum þig. Við létum allt ræt- ast sem okkur langaði að gera. Aldrei man ég eftir því að okkur hafi orðið sundurorða. Svo flutti ég af Álftanesi í nokkur ár en flutti til baka 1994 og þá bjuggum við í húsum hlið við hlið. Eldhús- gluggar okkar sneru hvor að öðr- um. Nokkrum árum seinna flutti ég í næstu götu og þá misstum við þráðinn þrátt fyrir stutta leið á milli. Alltaf þegar við hittumst þá var það svo gott að knúsa hvor aðra. Þú varst svo góð mann- eskja. Þín verður sárt saknað en á sama tíma á ég svo yndislegar minningar um góða vinkonu sem ég veit að er komin á nýjan betri stað. Ég veit líka að þú verður með mér það sem eftir er. Þú átt alltaf stað í hjarta mínu, kæra Begga mín. Ég samhryggist fjöl- skyldu þinni og aðstandendum innilega. Þín vinkona, Brynja. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.