Morgunblaðið - 13.10.2018, Qupperneq 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018
Sæbjúgu innihalda mikið kollagen og yfir 50
tegundir af næringarefnum sem hafa öll mjög
jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans
ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLA: Framleiðandi sæbjúgna er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fást á arcticstar.is
.
Arctic Star sæbjúgnahylki fást í flestum apótekum og heilsubúðum og í Hagkaupum.
Arctic Star Sæbjúgnahylki
Sæbjúgu
eru þekkt fyrir:
• Hátt prótíninnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið og mótstöðu
líkamans gegn ýmsum sjúkdómum
• Að auka blóðflæði sem minnkar líkur á blóðtappa
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla
að myndun húðpróteins
og insúlíns
Úlfur Karlsson myndlistarmaður fagnar 30 ára afmæli sínu í dag.Hann hefur haldið fjölmargar sýningar á verkum sínum og hef-ur sýnt víða erlendis. Hann verður ásamt fleiri íslenskum lista-
mönnum með verk á sýningunni Young Icelandic Art sem verður haldin í
nóvember í Kaupmannahöfn, í Bredgade Kunsthandel, í tilefni af 100 ára
fullveldisafmæli Íslands.
Málverk Úlfs eru fíguratíf og stór að vöxtum og er hann undir áhrifum
frá nýexpressjónismanum sem var í New York upp úr 1980, einnig
COBRA-hópnum, t.d. Svavari Guðnasyni og Asger Jorn. Einnig segist
hann daðra við popplist í verkum sínum.
„Ég er aðeins að fara út fyrir þægindarammann með verkunum sem
ég verð með í Kaupmannahöfn. Þau eru núna í portrettstærð en þá þarf
að nota aðra tækni en í stóru verkunum. Í stærri verkunum get ég leyft
mér fleiri mistök, ef ég get orðað það þannig.“
Áður en Úlfur fór út í myndlistina hafði hann lokið námi við Kvik-
myndaskóla Íslands og gert nokkrar stuttmyndir, t.d. myndina Eins-
konar Alaska. „Núna er ég bara að taka hreyfimyndir á símann minn, en
það er oftast vinnutengt þegar ég er að kynna málverkin mín. Svo fer ég í
bíó og fór á nokkrar á RIFF-hátíðinni. Síðan reyni ég að halda mér við,
fer í crossfit úti á Granda þar sem vinnustofan mín er og fer líka stundum
í Sundhöllina.“
Úlfur ætlar ekki að vera með sérstök hátíðarhöld í tilefni dagsins en
fer á opnun á sýningu Errós í Hafnarhúsinu í dag, en Úlfur segist líka
vera undir áhrifum frá honum.
Sambýliskona Úlfs er Tinna Hallgrímsdóttir, tónlistarkona og nemi í
iðnaðarverkfræði. Foreldrar Úlfs eru Karl Kristjánsson, læknir á Reykja-
lundi, og Steinunn Helgadóttir, myndlistarmaður og rithöfundur.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Listmálarinn Úlfur fyrir framan eitt verka sinna.
Vinnur að sýningu
í tilefni fullveldisins
Úlfur Karlsson er þrítugur í dag
K
ristín Sveinbjörnsdóttir
fæddist í Reykjavík
13.10. 1933 og ólst upp í
útvarpsstöðinni á
Vatnsendahæð. Hún
var í Kvennaskólanum í Reykjavík
1947-51 og við nám og störf í Skot-
landi og Danmörku á árunum 1951-54.
Kristín starfaði hjá Ferðaskrifstofu
ríkisins, var flugfreyja hjá Flugfélagi
Íslands um skeið, starfaði hjá bæjar-
fógetaembættinu í Keflavík, í dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu, var gjald-
keri á Hótel Loftleiðum og starfs-
maður á lögmannastofu.
Kristín vann einnig hjá Fríhöfninni
á Keflavíkurflugvelli um langt árabil.
Á árunum 1963-82 vann Kristín við
þáttagerð hjá Ríkisútvarpinu og hafði
þá m.a. umsjón með þættinum Óska-
lögum sjúklinga í 15 ár. Sá þáttur var
lengi við lýði hjá Ríkisútvarpinu og var
með þekktasta og vinsælasta útvarps-
efni síns tíma.
Kristín var í stjórn Golfsambands
Íslands 1982-85 og er fyrsta konan
sem sat í stjórn sambandsins. Hún var
sæmd gullmerki GSÍ og silfurmerki
ÍSÍ fyrir framlag sitt til golfíþrótt-
arinnar. Hún sat í stjórn Golfklúbbs
Suðurnesja 1980-86 en sjálf stundaði
hún golfíþróttina um langt árabil frá
árinu 1979.
Árið 1994 flutti Kristín austur að
Iðu í Biskupstungum þar sem henni
leið afskaplega vel. Þar bjó hún til
2016 er heilsan fór að gefa sig. Hún
flutti þá fyrst á Kumbaravog í nokkra
mánuði en fór síðan á Sólvelli á Eyr-
arbakka í ársbyrjun 2017 og býr þar
enn.
Fjölskylda
Kristín giftist Sigurði Skúlasyni, f.
15.7. 1932, d. 1996. Þau skildu.
Börn Kristínar og Sigurðar eru: 1)
Skúli Sigurðsson, f. 19.8. 1955, vél-
stjóri en kona hans er Hlíf Matthías-
dóttir matreiðslumaður og er sonur
þeirra Sveinbjörn, f. 1984, en dóttir
Skúla er Helga Kristín, f. 1977, búsett
í Svíþjóð og börn hennar eru Noel, f.
2004, Leon, f. 2006, og Magelie Krist-
ín, f. 2015, en dóttir Hlífar er Birta
Ósk Gunnarsdóttir, f. 1979, og maður
hennar er Marc Camprodon, og 2)
Kristín Sveinbjörnsdóttir, fv. dagskrárgerðarm. á RÚV – 85 ára
Með börnunum Kristín með börnum sínum þremur, Marinó Má, Skúla Sigurðssyni og Venný R. Sigurðardóttur.
Sá um þáttinn Óskalög
sjúklinga á RÚV í 15 ár
Kópavogur Símon Geir Al-
bertsson fæddist 11. mars
2018 kl. 14.36. Hann vó 3.110 g
og var 49 cm langur. Foreldrar
hans eru Ásdís Geirsdóttir og
Albert Gissurarson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is