Morgunblaðið - 13.10.2018, Síða 43
Venný Rannveig, f. 11.5. 1959, starfs-
maður hjá Keili – miðstöð vísinda
fræða og atvinnulífs, en maður hennar
er Elías Kristjánsson tollfulltrúi og
eru synir þeirra Arnar Már, f. 1979, en
kona hans er Aldís Hilmarsdóttir og
synir þeirra Axel, f. 2007, og Kjartan,
f. 2009, Atli, f. 1984, og Alfreð, f. 1990,
en sonur Elíasar er Jón Alexander, f.
1974.
Annar maður Kristínar var Magnús
Blöndal Jóhannsson, f. 8.9. 1925, d.
2005, tónskáld. Þau skildu.
Sonur Kristínar og Magnúsar Blön-
dal er Marinó Már, f. 5.8. 1971, lengi
lögreglumaður og nú starfsmaður
Seðlabankans en kona hans er Sonja
Kristín Sverrisdóttir flugfreyja og
börn þeirra eru Kristján Jökull, f.
2002, og Laufey Kristín, f. 2004, en
dóttir Sonju er Elísa Ósk Gísladóttir f.
1991.
Kristín var gift Þorgeiri Þorsteins-
syni, f. 28.8. 1929, d. 2013, sýslumanni
á Keflavíkurflugvelli. Þau skildu 1994.
Systkini Kristínar: Agla, f. 16.4.
1935, d. 1965 í Síle; Úlfar, f. 12.3. 1940,
trételgja, en kona hans var Kristín
Steingrímsdóttir meinatæknir og
eignuðust þau þrjú börn, Sveinbjörn,
Öglu Rögnu og Gunnar Stein; Helgi, f.
31.1. 1949, fyrrverandi bóndi en kona
hans var Hólmfríður Björg Ólafsdóttir
sem lést 2002 en börn þeirra eru Egill
Óli og Rannveig Góa en sonur Helga
er Ívar Örn og dóttir Bjargar Gunnur
Jónsdóttir.
Foreldrar Kristínar voru Svein-
björn Egilsson, f. 28.11. 1907, d. 10.4.
1987, útvarpsvirkjameistari frá Múla í
Biskupstungum, og Rannveig Helga-
dóttir, f. 2.11. 1907, húsfreyja. Þau
bjuggu á Óðinsgötu 2 í Reykjavík allan
sinn búskap, til æviloka.
Í dag ætlar Kristín að fagna afmæl-
isdegi sínum með nánustu ættingjum
og vinum á Sólvöllum. Dagskrárgerðarkonan Kristín við þáttagerð á Ríkisútvarpinu á árum áður.
Kristín
Sveinbjörnsdóttir
Marie Katrine Nissen
húsfreyja í Rvík
Sigurður Jónsson
beykir í Rvík, síðar fangavörður
Kristín Sigurðardóttir
húsfreyja í Rvík
Helgi Helgason
verslunarstjóri og leikari í Rvík
Rannveig Helgadóttir
húsfreyja í Rvík
Rannveig Sesselja Magnúsdóttir
húsfreyja í Móakoti
Helgi Guðmundsson
b. í Móakoti á Álftanesi
Þuríður Þorgilsdóttir
vinnukona á Klausturhólum í Grímsnesi
Jón Jónsson
b. í Stíflisdal í Þingvallasveit
Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja í Rvík
Egill Sveinsson
trésmiður, fæddur í Múla í Neðradal í Biskupstungum
Guðrún Egilsdóttir
húsfreyja í Rvík, frá
Múla í Biskupstungum
Sveinn Jónsson
húsb. í Rvík
Úr frændgarði Kristínar Sveinbjörnsdóttur
Sveinbjörn Egilsson
útvarpsvirkjameistari í Rvík
Afmælisbarnið Kristín Sveinbjörns-
dóttir, fyrrum þáttagerðarkona.
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018
Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt
Nýjar vörur
Laugardagur
95 ára
Kristín Sveinsdóttir
Magnús Kristinsson
90 ára
Hilmar Þorkelsson
85 ára
Árný Sigurlína
Ragnarsdóttir
Dagur Þorleifsson
Helgi Kristmann
Haraldsson
Jóhanna Rannveig
Sigurðardóttir
Kristín Sveinbjörnsdóttir
80 ára
Brandur Jónsson
Elfar H. Þorvaldsson
Hanna Gréta Halldórsdóttir
Jón Jónsson
75 ára
Carl Jóhann Spencer
Friðgeir V. Hjaltalín
Guðrún Jóna
Kristjánsdóttir
Sigríður B. Skaftfell
70 ára
Auður Marinósdóttir
Ármann Ólafsson
Guðrún Ása Ásgrímsdóttir
Guðrún Lilja Ingvadóttir
Gunnar Bergmann
Salómonsson
Gunnar Guðmundsson
Ingvi Árnason
Jóna Jónasdóttir
Jón Tryggvason
Vilborg R. Schram
60 ára
Annette Mönster
Áslaug Einarsdóttir
Edda Maggý Rafnsdóttir
Einar Halldór Einarsson
Gísli Baldur Hauksson
Gunnar Halldór
Gunnarsson
Gunnhildur Þórðardóttir
Inga Dóra Konráðsdóttir
Jóhanna Waagfjörð
Jónína Waagfjörð
Jón Tómas Svansson
Katrín Sigmarsdóttir
Maria Baranowska
Roma Jarmolaviciene
50 ára
Bernharð Guðmundsson
Bjarney Anna Björnsdóttir
Brynjar Kristjánsson
Dainantas Satrauskas
Elías Ólafsson
Erlingur Elías Jónasson
Halldóra Þórdís Jónsdóttir
Jaroslaw Piotr Jasinski
Radoslaw Roman Kobus
Steinþór Auðunn Ólafsson
40 ára
Alma Olsen
Arnar Óskar Egilsson
Ágúst Manuel Rivera
Berglind Eva Gísladóttir
Bjarki Már Árnason
Brynjar Sverrisson
Davíð Friðgeirsson
Davíð Harðarson
Hafþór Bjarni Helgason
Hildur Bjarnadóttir
Hólmfríður Jensdóttir
Hrefna Jensdóttir
Jón Valdimar Kristjánsson
Luzia Elizangela Silva
Oliveira
Sigurbjörg Erlingsdóttir
Þóra Jensdóttir
30 ára
Anna Threza Ugay Hubac
Arna Reynisdóttir
Eyrún Björgvinsdóttir
Halldís Hörn Sævarsdóttir
Halldór Jónasson
Katarzyna Kostucha
Kristinn Reyr Þórðarson
Ragnheiður Ólafsdóttir
Robert Slawomir Waledzik
Stella Stefánsdóttir
Úlfur Karlsson
Vigdís Birta Haraldsdóttir
Sunnudagur
90 ára
Hulda Axelsdóttir
85 ára
Jónatan Þórisson
80 ára
Guðni Benediktsson
Hörn Harðardóttir
Sveina María Sveinsdóttir
75 ára
Hlín P. Wium
Pétur Stefánsson
Solveig Theodórsdóttir
70 ára
Björn Sigurðsson
Guðfinna Guðlaugsdóttir
Hannes Kristjánsson
Indiana Jóhannsdóttir
Kristín Guðmundsdóttir
Sigurður Páll Ásólfsson
Úndína Bergmann
Sveinsdóttir
60 ára
Anna Margrét
Aðalsteinsdóttir
Gunnar Örn Jónasson
Ingileif Sigfúsdóttir
Jón Gunnar Snorrason
Óttar Halldór Sveinsson
Sigmundur G. Sigurjónsson
Þóra Geirsdóttir
Þórunn Linda Beck
Þuríður Einarsdóttir
50 ára
Anna Kristín Árnadóttir
Elvar Hólm Hjartarson
Emilía Petra Jóhannsdóttir
Hrafnhildur V.
Kjartansdóttir
Ingi Björgvin Karlsson
Ingþór Kristmundur
Sveinsson
Juan Diego Londono Arias
Linda Björk Gunnarsdóttir
Ólafur Þór Guðbjörnsson
Piotr P. Szlapczynski
Sigurður Karl Kristjánsson
Sigurlaugur B. Ólafsson
Svanur F. Gunnarsson
Þorbjörg Kristjánsdóttir
Þorkell Lárus Þorkelsson
Þorsteinn G. Þorsteinsson
40 ára
Andrzej B. Kapszukiewicz
Benedikt Jón Sigmundsson
Erna Sif Auðunsdóttir
Grace Capao Valle
Páll Jóhann Úlfarsson
Sigurður S. Guðmundsson
Sindri Óskarsson
30 ára
Antoine Patrice Trota
Hjalti Ragnarsson
Joaquim M.De O.C. Teixeira
Kelly James Clayton
Kristjana Pétursdóttir
Kristján Sigurólason
Magnús Dan Ómarsson
Sebastian Goderski
Sergejs Bazarovs
Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir
Sæþór Jóhannsson
Tryggvi E. Mathiesen
Wioleta Anna Ujazdowska
Þráinn Kolbeinsson
Til hamingju með daginn
Steinn Steinarr fæddist áLaugalandi í Nauteyrar-hreppi 13.10. 1908, þar sem
foreldrar hans, Kristmundur Guð-
mundsson og Etelríður Pálsdóttir,
voru í húsmennsku. Skírnarnafn
Steins var Aðalsteinn Kristmunds-
son. Eftir hreppaflutninga leystist
fjölskyldan upp og Steinn ólst upp
hjá vandalausum á Miklabæ í
Saurbæ.
Steinn naut farkennslu, m.a. hjá
Jóhannesi úr Kötlum, en kynntist
einnig Stefáni frá Hvítadal sem varð
nágranni þeirra í Miklagarði. Stefán
og Steinn voru alla tíð miklir mátar.
Steinn fór til Reykjavíkur haustið
1926 og var lengi margt á huldu um
líf hans þótt úr því sé nú bætt með
bókinni Maðurinn og skáldið –
Steinn Steinarr, eftir Sigfús Daða-
son, útg. 1987, ævisögu Steins í
tveimur bindum, Steinn Steinarr –
Leit að ævi skálds, eftir Gylfa Grön-
dal, útg. 2000, og 2001, og æviágripi
Steins eftir Inga Boga Bogason,
1995. Á síðustu æviárunum varð
Steinn góður vinur Matthíasar Jo-
hannessen en viðtöl hans við skáldið
eru dýrmætar heimildir um Stein.
Ljóðabækur Steins: Rauður log-
inn brann, útg. 1934; Ljóð, útg. 1937;
Spor í sandi, útg. 1940; Ferð án fyr-
irheits, útg. 1942; Tindátarnir, útg.
1943, og Tíminn og vatnið, útg. 1948.
Steinn er öðrum fremur talinn
hafa valdið formbyltingu í íslenskri
ljóðagerð, en Tíminn og vatnið, sem
þá er oft vísað til, er samt afar form-
fastur ljóðabálkur. Hann gældi ung-
ur við kommúnisma en var snemma
rekinn úr flokknum og afneitaði síð-
ar kommúnismanum eftir fræga
kynnisferð til Moskvu, 1956.
Skáldskapur Steins endurspeglar
oft lamandi tómhyggju en í miðju
svartnætti ljóða hans leiftra oft
óræð blik um mannlega reisn og
jafnvel hina innstu vitund. Kristján
Karlsson sagði réttilega í inngangi
að Kvæðasafni Steins: „Trúaður eða
trúlaus er hann í flokki hinna mestu
trúarskálda vorra.“
Merkir Íslendingar
Steinn
Steinarr