Morgunblaðið - 13.10.2018, Page 48

Morgunblaðið - 13.10.2018, Page 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 jazz í Salnum Marc Copland 14. okt 44 17 500Salurinn.is „Þetta er í fyrsta sinn sem ég leik á tónleikum hjá Kammermúsík- klúbbnum, en til samanburðar má nefna að Bryndís Halla hefur komið þar fram alls 37 sinnum og Anna Guðný sjö sinnum frá því Kammer- músíkklúbburinn var stofnaður árið 1957,“ segir Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari sem ásamt Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara og Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara kemur fram á öðrum tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í vetur á morgun, sunnudag, kl. 16 í Norðurljósum Hörpu. Að sögn Ás- hildar þekkjast þær Bryndís Halla og Anna Guðný mjög vel úr tónlistargeiranum og starfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. „Við lékum sem tríó saman í Svíþjóð fyrir nokkrum árum og stefnum á að fara þangað aftur í tónleikaferð 2020.“ Nútímatónlistarleg uppákoma Á efnisskrá tónleikanna er, að sögn Áshildar, áhugaverð blanda íslenskrar tónlistar og evrópskrar. „Við leikum tríó í G-dúr eftir Joseph Haydn sem hann samdi 1792 stuttu eftir að hann heimsótti England þar sem flautan var mjög vinsæl,“ segir Áshildur og rifjar upp að Haydn hafi samið tvö önnur tríó á þessu tímabili þar sem flautan kom í stað fiðlunnar. „Þetta er mjög bjart og skemmtilegt verk þar sem aðaláherslan er á píanóið. Svo ætlum við að smella okkur 100 ár fram í tímann og leika tríó eftir Johann Nepomuk Hum- mel,“ segir Áshildur og bendir á að Hummel hafi verið mikið undrabarn á sínum tíma og numið píanóleik hjá W.A. Mozart þar sem hann fékk að búa frítt í tvö ár meðan hann var barn að aldri. „Hummel var eitt margra tónskálda sem féllu í risa- vaxinn skugga Beethovens en á seinni árum hafa æ fleiri opnað eyr- un fyrir vel saminni og frísklegri tónlist hans,“ segir Áshildur og rifj- ar upp að tónskáldunum tveimur hafi verið vel til vina, en að beiðni Beethovens hélt Hummel minning- artónleika um hann. „Þriðja erlenda verkið er Trois aquarelles eða Þrjár vatnslitamyndir eftir Philippe Gau- bert,“ segir Áshildur og bendir á að Gaubert hafi verið virtur flautuleik- ari og hljómsveitarstjóri í París á fyrri hluta síðustu aldar. „Sem flautukennari hafði hann líka mikil áhrif á komandi kynslóðir,“ segir Ás- hildur og bendir á að hún noti í sinni kennslu æfingabækur eftir Gaubert. „Við flytjum verk eftir þrjú ís- lensk tónskáld sem eiga eða hefðu átt stórafmæli á þessu ári,“ segir Ás- hildur og vísar þar til Jórunnar Við- ar, Þorkels Sigurbjörnssonar og Atla Heimis Sveinssonar. „Eftir Jórunni, sem hefði orðið 100 ára á þessu ári, flytjum við Dans tunglsins fyrir flautu, selló og píanó frá 1948 úr leikverkinu Grámanni í Garðshorni. Eftir Þorkel, sem hefði orðið áttræður á þessu ári, flytjum við Skiptar skoðanir frá 1973. Ég held að hann sé í verkinu að gera grín að nútímatónlist, tónlistar- mönnum og æfingaferlinu,“ segir Áshildur og lýsir verkinu sem nú- tímatónlistarlegri uppákomu. „Við höfum allar kynnt Atla Heimi vel og flutt mikið eftir hann í gegn- um árin,“ segir Áshildur, en Atli Heimir varð nýverið áttræður. „Eft- ir Atla Heimi flytjum við Tempo di tango úr sónötu fyrir selló og píanó frá 2007 og hið alþekkta Intermezzo úr tónlistinni við leikritið Dimma- limm sem var frumflutt árið 1970.“ silja@mbl.is Heiðra þrjú tón- skáld á afmælisári Kammermúsík Bryndís Halla, Anna Guðný og Áshildur leika í Hörpu.  Tríó fyrir flautu, selló og píanó Utøya 22. júlí Morgunblaðið bbbbn Metacritic 75/100 IMDb 7,8/10 Bíó Paradís 18.00 Bráðum verður bylting! Bíó Paradís 20.00 Sorry to Bother You Metacritic 81/100 IMDb 7,4/10 Bíó Paradís 22.20 Mandy Metacritic 81/100 IMDb 6,8/10 Bíó Paradís 20.00, 22.30 Kler (Clergy) IMDb 6,8/10 Bíó Paradís 15.00, 17.30, 20.00 Happy as Lazzaro Metacritic 82/100 IMDb 7,5/10 Bíó Paradís 17.40 Undir halastjörnu 16 Smárabíó 20.00, 22.00 Háskólabíó 18.30, 21.30 Borgarbíó Akureyri 21.30 Johnny English Strikes Again Metacritic 35/100 IMDb 6,7/10 Laugarásbíó 14.00, 16.00, 18.00, 20.00 Sambíóin Álfabakka 12.00, 14.00, 16.00, 18.00, 20.00, 22.00 Sambíóin Keflavík 15.00, 17.00, 19.00 Smárabíó 13.00, 14.00, 15.10, 17.20, 19.50, 22.30 Háskólabíó 15.30, 17.30, 19.30 Borgarbíó Akureyri 15.00, 17.30, 19.30 Venom 12 Metacritic 35/100 IMDb 7,1/10 Laugarásbíó 19.50, 22.15 Sambíóin Álfabakka 12.30, 14.50, 17.10, 17.30, 19.30, 20.00, 21.50, 22.25 Sambíóin Egilshöll 13.00, 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00, 22.25 Smárabíó 14.30, 16.20, 17.10, 19.00, 19.40, 22.00, 22.20 Borgarbíó Akureyri 19.30, 21.50 The Nun 16 Metacritic 46/100 IMDb 5,8/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 A Star Is Born 12 Metacritic 87/100 IMDb 8,6/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.30, 22.10 Sambíóin Egilshöll 15.10, 18.00, 20.00, 21.00 Sambíóin Kringlunni 16.45, 19.30, 22.15 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.20 Sambíóin Keflavík 21.00 Peppermint 16 Metacritic 29/100 IMDb 6,6/10 Laugarásbíó 22.15 The House with a Clock in Its Walls Metacritic 57/100 IMDb 5,9/10 Sambíóin Álfabakka 13.00, 15.20 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Kringlunni 14.50, 19.20 Sambíóin Akureyri 15.00 Mission: Impossible - Fallout 16 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 86/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Kringlunni 21.40 Mamma Mia! Here We Go Again Morgunblaðið bbbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,2/10 Laugarásbíó 14.00, 19.50 Háskólabíó 15.40 Grami göldrótti Laugarásbíó 14.00, 17.00 Smárabíó 12.50, 15.10, 17.30 Háskólabíó 15.40 Smáfótur Metacritic 58/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 12.00, 13.00, 14.10, 15.20, 17.50 Sambíóin Egilshöll 13.00, 14.00, 15.30, 17.40 Sambíóin Kringlunni 14.20, 15.00, 17.10 Sambíóin Akureyri 15.00, 17.20 Sambíóin Keflavík 15.00 Háskólabíó 16.00 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Metacritic 54/100 IMDb 6,4/10 Smárabíó 14.00 Hin Ótrúlegu 2 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 12.50, 15.20 A Simple Favor 12 Háskólabíó 20.30 Kona fer í stríð Morgunblaðið bbbbb Metacritic 81/100 IMDb 7,7/10 Háskólabíó 18.10 Þegar Magnea 15 ára kynnist Stellu 18 ára breytist allt. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Morgunblaðið bbbbn IMDb 8,7/10 Smárabíó 16.30, 19.30, 22.20 Háskólabíó 20.50 Bíó Paradís 15.00, 21.50, 22.00 Borgarbíó Akureyri 17.00 Lof mér að falla 14 First Man 12 Myndin er byggð á ævisögu James Hansen; First Man: A Life Of Neil A. Armstrong, og segir söguna af fyrstu ferðinni til tungslins. Metacritic 84/100 IMDb 6,6/10 Laugarásbíó 17.00, 22.00 Sambíóin Kringlunni 17.10, 20.00 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.20 Háskólabíó 18.00, 21.00 Night School 12 Hópur vandræðagemlinga er neyddur til að fara í kvöld- skóla í þeirri von að þeir nái prófum og klári mennta- skóla. Metacritic 43/100 IMDb 5,5/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 Sambíóin Akureyri 17.15 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.