Morgunblaðið - 13.10.2018, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 13.10.2018, Qupperneq 52
Upplýst hefur verið að höfundar Áramótaskaupsins í ár eru Ilmur Kristjánsdóttir, Jón Gnarr, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Katrín Hall- dóra Sigurðardóttir, Sveppi og Arn- ór Pálmi Arnarson sem einnig leik- stýrir, annað árið í röð. Segist hann hæstánægður með hópinn og hand- ritavinnan gangi vel. Tökur hefjast um miðjan nóvember. Höfundar Áramóta- skaupsins þetta árið LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 286. DAGUR ÁRSINS 2018 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.108 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Þrátt fyrir góða frammistöðu karla- landsliðsins í fótbolta gegn heims- meisturum Frakka í fyrrakvöld er viðbúið að Erik Hamrén landsliðs- þjálfari gerir nokkrar breytingar á liðinu fyrir leikinn við Sviss í Þjóða- deildinni sem fram fer á Laugar- dalsvellinum annað kvöld. Hamrén segir að sér sé ekki létt þrátt fyrir góð úrslit í Guingamp. »1 Má búast við breyt- ingum fyrir Svissleik Í tilefni af aldarafmæli lýðveldisins Eistlands verður Sinfóníuhljóm- sveit Norðurlands með hátíðar- tónleika í Menningarhúsinu Hofi á morgun, sunnudag, kl. 16. „Hinn virti hljómsveitarstjóri Erki Pehk frá Eistlandi, stjórnar hljómsveit- inni þegar flutt verða m.a. meist- araverkin Spiegel in Spiegel eftir Arvo Pärt, The Girl and the Dragon eftir Risto Laur og Kreegi Vihik eft- ir Tõnu Kõrvits fyrir kammerkór og strengjasveit,“ segir í tilkynningu. Kammerkórinn Hljómeyki syngur, um einsöng sér Tiiu Laur ogeinleikarar eru píanóleikarinn Risto Laur og sellóleikarinn Indrek Leivate- gija. Heiðra tónlistararf Eistlendinga í Hofi ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Forvitni barnsins hefur alltaf fylgt mér og það tel ég mikilsverðan eiginleika. Listin mun fylgja alveg fram í rauðan dauðann. Það er mér bókstaflega meðfætt að teikna og skapa myndir. Og með því móti dreg ég upp myndir úr lífinu og reyni að finna svör. Að finna er vinna og ég sest oft hér við borðið mitt og dreg upp skissur þótt mátturinn sé óneit- anlega orðinn lítill,“ segir Tryggvi Ólafsson listmálari. Útlínur og þrykk Í gær var á Droplaugarstöðum við Snorrabraut í Reykjavík, hjúkr- unarheimili aldraðra, opnuð sýning á 16 litografíuverkum eftir Tryggva og eru þau flest unnin á allra síðustu árum. „Ég hef alltaf verið starf- samur. Listaverk verða aldrei til með því að bíða eftir andanum, ég dreg upp skissur, þá eftir fyr- irmyndum til dæmis úr dagblöð- unum. Mér finnst gaman að sjá ver- öldina í deiglu myndanna og vinna út frá þeim. Þegar útlínur myndanna eru svo komnar eru þær skannaðar inn í tölvur og litnum þrykkt á papp- írinn af vinum mínum í prentsmiðju Guðjóns Ó.; þeim Jóhanni Krist- inssyni og Ólafi Stolzenwald. Það eru miklir snillingar,“ segir lista- maðurinn. Hormónarnir virka enn Í áratugi bjó Tryggvi og starfaði í Kaupmannahöfn en hélt þó alltaf sterkum tengslum við Ísland, meðal annars með því að halda sýningar reglulega. Þá hefur Tryggvi alltaf haldið góðu sambandi við fólk á æskuslóðum sínum austur í Nes- kaupstað. Þar í bæ er starfrækt myndlistarsafn undir nafni Tryggva, Tryggvasafn. Það á fjölda mynda eftir hann og efnt er til reglulegra sýninga á þeim. Allt hefur þetta og fleira gert Tryggva að ástsælum listamanni, og sýningar á verkum hans eru alltaf í frásögur færandi. Í kjölfar slyss sem Tryggvi lenti í árið 2007 fluttu þau Gerður kona hans heim til Íslands. Fyrir tveimur og hálfu ári fluttist Tryggvi svo á Droplaugarstaði. „Ég er í hjólastól og hendur eru krepptar sem setur mér takmörk í öllu starfi. Eftir að ég slasaðist sneri ég mér alfarið að grafíkinni en auðvitað voru viðbrigði að geta ekki lengur unnið með pensil eins og ég hafði svo lengi gert. En að mörgu öðru leyti er ágætt lífsmark með mér; hormónarnir virka enn og fara aldrei í sumarfrí. Skárra væri það nú,“ segir Tryggvi og brosir. Við þetta er svo að bæta að í skrá sýn- ingarinnar á Droplaugarstöðum seg- ir að mikill skáldskapur sé í verkum Tryggva og þau ljóðrænni en áður. „Ekki síst á allra síðustu tímum hef- ur mátt finna meiri skáldskap í verk- unum,“ segir í skrá sýningarinnar. Verkin þar eru öll til sölu og sum seldust raunar strax í gær. Morgunblaðið/Eggert Sýning Listin mun fylgja alveg fram í rauðan dauðann, segir Tryggvi Ólafsson listmálari við opnunina í gær. Veröld í deiglu mynda  Litografíur á Droplaugarstöðum  Sextán myndir og nokkrar eru seldar  Tryggvi er ástsæll listamaður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.