Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2018, Qupperneq 25
Bulgur með tómötum
Þennan rétt lærði Jean-
ette af móður sinni og er
hann vinsæll í Líbanon.
Hægt er að hafa hann
sem forrétt, meðlæti eða
aðalrétt og ég get lofað
að hann verður vinsæll!
Fyrir 4-6
3 msk. ólífuolía
1 meðalstór laukur, skorinn
smátt
1⁄4 bolli smátt skorin rauð
og/eða græn paprika
Hitið olíu í stórum
potti yfir miðlungs- til
háum hita. Þegar olían er
orðin vel heit, bætið
lauknum og paprikunni
út í og eldið þar til mjúkt,
í um þrjár mínútur.
Bætið þá tómötum og
bulgur út í og hrærið og
steikið í tvær mínútur.
Hrærið þá paprikumauk-
inu saman við. Stráið
kryddunum yfir og
hrærið. Eldið þetta áfram
í þrjár mínútur og látið
bulgur drekka í sig vökv-
ann frá grænmetinu.
Hellið þá vatninu sam-
an við, setjið lok yfir og
látið malla á lágum hita
þar til bulgur er orðið
mjúkt, í u.þ.b. tólf mín-
útur. Slökkvið undir og
bætið smjörinu saman
við.
Setjið í skál og skreytið
með grænu paprikubit-
unum.
2 bollar bulgur (best að
nota #3)
1 plómutómatur, afhýddur
og skorinn smátt
1 msk. sætt rautt papriku-
mauk
1 ½ tsk. salt
½ tsk. aleppo-pipar (eða
rauðar piparflögur)
1⁄4 tsk. negull
3 bollar vatn
1 tsk. ósaltað smjör
1⁄3 bolli smátt skorin græn
paprika, til skreytingar
21.10. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Baba ghanoush er ídýfa búin til
úr eggaldini og afar góð með
öllum miðausturlenskum mat
eða ein og sér með pítabrauði.
Fyrir 4-6
2 stór eggaldin
1⁄3 bolli tahini
3 msk. ferskur sítrónusafi
3 hvítlauksrif, skorin smátt
1 tsk. fínt salt
Til skreytingar:
2 tsk. ólífuolía
½ tsk. súmak
Ef þið eruð með gaseldavél,
kveikið þá á tveimur brennurum
og leggið sitt hvort eggaldinið
beint ofan á eldinn. Þegar hýðið
fer að dökkna og hrukkast er
eggaldininu snúið á næstu hlið,
en það tekur um tvær mínútur
á hverri hlið. Snúið nokkrum
sinnum þar til allt eggaldinið er
orðið brúnt og dálítið brennt.
Fyrir þá sem ekki eiga gas-
eldavél er hægt að steikja egg-
aldin á heitri þurri pönnu. Snúa
reglulega og láta það brenna á
öllum hliðum.
Setjið eggaldinið í skál og
breiðið yfir með plasti. Látið
það vera þar í fimm mínútur
þar til hýðið fer að losna.
Takið hýðið af með fingrum
og fjarlægið. Ef það er klístrað
er gott að láta það undir renn-
andi kalt vatn og plokka það af.
Setjið kjötið af eggaldininu í
matvinnsluvél ásamt tahíní,
sítrónusafa, hvítlauk og salti.
Maukið þar til nokkuð slétt.
Setjið baba ghanoush í skál,
hellið yfir olíunni, stráið súmak
yfir og berið fram.
Baba ghanoush
Fottoush er mjög vinsælt
salat í Líbanon, en í því er
pítubrauð sem búið er að
skera og steikja þar til
það er orðið stökkt og
gott. Hefðbundin aðferð
við að borða salatið er að
skófla því upp í pítu-
brauðið og nota til þess
fingurna!
Fyrir 4-6
FOTTOUSH SALAT
1 salathöfuð, romaine,
skorið fínt
ein gúrka, skorin langsum
og svo í litla bita
4 stórir plómutómatar,
skornir í þunnar sneiðar
3 radísur, skornar í fínar
sneiðar
½ lítill laukur, skorinn í
þunnar sneiðar
½ rauð paprika, skorin í
litla bita
½ gul paprika, skorin í litla
bita
1⁄4 græn paprika, skorin í litla
bita
1 stórt búnt vorlaukur, not-
ið aðeins græna hlutann.
Skorið í þunnar sneiðar
1 bolli steinselja (flatlaufs),
skorið smátt
1 bolli fersk mynta, skorin
smátt
3 msk. fersk timían lauf
2 hvítlauksrif, rifin
1 msk. þurrkað timían
1 msk. Sumac (krydd)
2 tsk. salt
½ tsk. rauðar piparflögur
(Aleppo ef til)
1⁄8 tsk. allrahanda krydd
1⁄3 bolli olífuolía
1⁄3 bolli ferskur sítrónusafi
2 msk. hvítvínsedik
1 msk. za’atar (miðaustur-
lenskt krydd sem er blanda
af oreganó, sumac, sesam-
fræjum, timían og salti. Fæst
meðal annars í Kryddi og
Tehúsinu).
PÍTUBRAUÐSBITAR
1 bolli canola-olía
2 pítubrauð, skorin í litla
teninga
Hitið olíu í stórum
potti yfir miðlungsháum
eða háum hita þar hún
fer að krauma. Bætið
pítubrauðsbitunum út í
og steikið og hrærið þar
til þeir verða gullinbrúnir
og stökkir. Þetta tekur
um tvær til fjórar mín-
útur. Takið bitana og rað-
ið á disk og geymið.
Byrjið á að setja salat-
blöð, gúrku, tómata, rad-
ísur, lauk, papriku, vorlauk,
steinselju, myntu og timí-
an í stóra salatskál. Rífið
hvítlaukinn yfir. Kryddið
með þurrkaðri myntu,
sumac, salti, aleppo pipar,
og allrahanda kryddi. Hell-
ið næst ólífuolíu, sítrónu-
safa og ediki yfir salati og
blandið. Stráið za’atar yfir.
Takið næst steikt pítu-
brauðið og setjið efst í
miðju salats.
Fottoush – líbanskt salat með pítubrauði
Happy Talk kertastjakar
kr. 6.900, 9.800 og 16.000 Spiladósir kr. 6.600
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST