Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2018, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2018, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.10. 2018 HEILSA Reyndu nú að vera ekki svona leiðin-legur,“ voru viðtökurnar sem ég fékk ályftingaæfingunni núna í vikunni. Þau komu sannarlega ekki frá Ívari Guðmundssyni, þjálfaranum, enda er hann einstaklega dag- farsprúður maður. Athugasemdin kom frá æf- ingafélaga sem tekur á því með mér tvisvar í viku. Hann er gamall sjóari og talar því sjóara- mál – enga tæpitungu. En einhver kann að spyrja til hvaða leiðinda félaginn var að vísa, vonandi ekki almennra heldur frekar sértækra. Og það reyndist raunin. Honum þótti pistill minn um heilsu- átakið um liðna helgi leiðinlegur. Hann skilur ekki fólk sem nennir að notast við heilsuúr, hvað þá að fólk nenni að skrifa um þau. En sem betur fer var skætingurinn úr þessari átt ekki einu viðbrögðin við pistlinum. Margir hafa nefnilega áhuga tækninni sem fylgt hefur í kjölsoginu af heilsubyltingunni, og kannski ýtt undir hana um leið að einhverju marki. Í viðjum blessaðs sykursins Og enn kann að syrta í álinn fyrir sjóaranum „síkáta“ þegar hann les pistilinn að þessu sinni. Hann fjallar nefnilega um viðjar vanans. Eitt eiga öll þau sem ákveða að missa þyngd og ná árangri við þá iðju sameiginlegt. Öll draga þau úr sykurneyslu. Hvað sem öllu öðru líður þá hefur sykur neikvæð áhrif á líkamsvöxtinn. En þótt það hafi legið fyrir lengi þá er málið ekki endilega svo einfalt. Það er nefnilega ekkert grín að losa sig við sykurinn. Hann er ávana- bindandi og til eru þeir málsmetandi menn sem segja hann skæðara fíkniefni en flest önnur. Það hefur reyndar reynst ótrúlega auðvelt að skera niður sykurinn síðustu vikurnar. En þar hef ég haft tvennt í huga, annars vegar það að þegar sykurþörfin gerir vart við sig þá er gott að fá sér vatnsglas eða sykurlaust tyggjó og hins vegar það að maður má ekki undir neinum kringumstæðum láta undan lönguninni og fá sér dísætt bakkelsi eða sælgæti. Ef mað- ur fær sér eitt kúlusúkk, þá verða þau tíu. Ef mann langar í eina tertusneið eru meiri líkur en minni á að þær verði tvær eða þrjár. Aðstæður hafa einnig áhrif á venjur En það er ekki bara sykurinn sem erfitt getur reynst að brjótast undan. Það getur líka tekið á að brjótast út úr venjum sem tengjast til- teknum aðstæðum. Þótt ég eigi ekki að viður- kenna það þá skal þess getið hér að ég hef alla tíð fengið mér kokkteilsósu þegar ég fæ mér pitsu. Sósan sú samrýmist vissulega ekki yfir- standandi átaki. En það hefur reynst erfitt að borða heimabakaðar flatbökur á föstudögum án þess að hræra þá gömlu góðu með. Og svo er það vínið. Eins og ég kom inn á í fyrri pistli er ekki líklegt að árangur náist við að létta sig ef maður er sullandi í bjór eða víni að staðaldri. Þess vegna ákvað ég að skera það nær alfarið niður (nema einstaka sinnum – helst þegar ég er í góðra vina hópi erlendis). En það er í ákveðnum aðstæðum sem maður er vanur að skála í freyðandi gylltu eða góðu rauðvíni. Það á t.d. við um brúðkaupsveislur. Nú hef ég farið í þrjár slíkar, frá því að átakið hófst, og aðeins drukkið Pepsi Max eða Coke Zero. Í fyrstu var það nokkuð undarlegt og mér fannst það ekki ríma við aðstæður. Í 15 ár hef ég held ég ekki mætt í eitt einasta brúðkaup án þess að skála í víni. En þessi reynsla hefur opnað augu mín betur en áður fyrir því að þótt tilteknir viðburðir, brúðkaup, stórafmælis- veislur eða áramót, séu oftast tengdir við áfenga drykki, þá er það ekki ófrávíkjanlegt lögmál. Hið sama á við um sykurinn. Það er hægt að fara í barnaafmæli án þess að fá sér tertusneið. Það er meira að segja hægt að fá sér pitsu án þess að hræra saman majónesi og tómatsósu! Enn skilar staðfestan árangri Það var ánægjulegt að stíga á vigtina í vikunni. Enn þokast talan á skjánum neðar. Að þessu sinni sýndi hún 85,2 kg. Það þýðir að 7,7 kg eru farin á sex vikum. Það er sannarlega framar mínum björtustu vonum. En af raunsæi verð ég að gera ráð fyrir því að hinn skjótfengni ár- angur taki brátt enda og að nýr og erfiðari slagur hefjist í þeirri viðleitni að þoka mér nær markmiðinu, sem er 82,9 kg. Það kemur þá í ljós og kallar kannski á nýjar aðferðir og meiri ákefð. „Reyndu nú að vera ekki svona leiðinlegur“ Að brjótast úr viðjum vanans getur stundum reynst annað og meira en erfitt. Það getur jafnvel verið leiðinlegt fyrsta kastið. En þar getur lykillinn að árangri legið og þess vegna er það erfiðisins – og leiðindanna – virði. Getty Images/iStockphoto Hinn svokallaði máltíðamark- aður fer sífellt stækkandi og þar hefur fyrirtækið Eldum rétt rutt brautina síðustu árin. Ég hef nokkrum sinnum nýtt mér þjónustu þess og pantað mál- tíðir fyrir vikuna. Hráefnið er alla jafna í hæsta gæðaflokki og uppskriftirnar fjölbreyttar og maturinn góður. Hefur þá engu skipt hvort maður kaupir svo- kallaðan paleo-pakka, sígildan eða léttlagaðan. Þá hefur fyrir- tækið einnig bætt við vörulínu sína vegan- og heilsupakka. Það er eflaust vegna stóraukinnar eftirspurnar í þá veru. Það hefur reyndar ekki skemmt fyrir að oftast eru rétt- irnir mjög hollir og uppskrift- unum hefur fylgt ágætt yfirlit yf- ir næringargildi máltíðanna. Það gerir manni mögulegt að skrá með nokkuð nákvæmum hætti í Æfingafélagann (My- fitnesspal) hvað maður er að láta ofan í sig. Það hefur hins vegar unnið gegn þægindunum við skráninguna að varan hefur ekki verið strikamerkt. Strika- merkjalesarinn í Æfingafélag- anum er í raun forsendan fyrir því að maður nenni að skrá inn heilu og hálfu máltíðirnar. Þess vegna var það eins og hálfgerð himnasending þegar ég prófaði nýjustu vörulínuna í Bónus sem nefnist „20/30“ en hún er af svipuðum toga og hjá Eldum rétt. En þar er hver rétt- ur merktur með strikamerki og þar að baki er að finna heildar- næringargildi réttarins sem maður eldar. Hver réttur dugar fyrir 2 og ef maður skammtar með „sanngjörnum“ hætti á diskana þarf ekki að velkjast í vafa um næringargildi máltíðar- innar. Þessi þjónusta, sem byggist á einfaldri strikamerkingu, gerir manni lífið léttara þegar maður vill halda heimilismatarbók- haldinu í jafnvægi. LEIÐ TIL AÐ EINFALDA SKRÁNINGU Þægilegt í alla staði Pistill Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is ÞYNGD SKREFAFJÖLDI MATARÆÐI ÆFINGAR 92,9 kg 86,3 kg 85,2 kg Upphaf: Vika 5: Vika 6: 46.404 40.280 14.189 12.737 5 klst. 4 klst. HITAEININGAR Prótein 25% Kolvetni 35% Fita 40% Easy2Clean Mött veggmálning sem létt er að þrífa Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Svansvottuð betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.