Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2018, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.10. 2018
LESBÓK
4. Aðventuferð FEB
til Kaupmannahafnar
Aðrar Aðventuferðir FEB:
18.-21. nóvember: Uppselt
25.-28. nóvember: Uppselt
2.-5. desember: Uppselt
Vegna mikilla vinsælda er búið að bæta
4. ferðinni við dagana 9.-12. desember.
Verð: 119.900 kr. á mann í tvíbýli
og 142.900 kr. á mann í einbýli
Innifalið í verðinu er flug, flugvallarskattar, gisting
í þrjár nætur með morgunverði á Absalon Hotel
(4 stjörnur) og allur akstur erlendis. Einnig er
innifalinn kvöldverður á komudegi á Restaurant
Karla, skoðunarferð um gamla bæinn, heimsókn
í Jónshús, „Julefrokost“ á Restaurant Grøften og
síkjasigling með djassbandi Michaels Bøving.
Ferðirnar eru skipulagðar í samráði við
Hótelbókanir.is og Icelandair
Frekari upplýsingar fást á skrifstofu FEB í síma 588-2111
eða með tölvupósti á hotel@hotelbokanir.is
Í þáttunum rýnum við í hvaðaáhrif samfélagsmiðlar hafa á lífokkar. Langflestir Íslendingar
eru á samfélagsmiðlum og við flögg-
um lífi okkar, alla vega vissum pört-
um þess, að miklu leyti þarna. Við
vitum ansi margt um fólk án þess
jafnvel að þekkja það, heldur bara
út frá því sem það sýnir á miðlunum.
Samskiptaform hafa breyst, þetta
eru breyttir tímar og þeir hafa
þróast ansi hratt,“ segir Viktoría
Hermannsdóttir, annar stjórnenda
nýrra heimildarþátta, Sítengd – ver-
öld samfélagsmiðla, en fyrsti þátt-
urinn af sex er á dagskrá RÚV í
kvöld, sunnudagskvöld.
Viktoría segir mörgum spurn-
ingum ósvarað varðandi miðlana,
upplýsingar sem er safnað um okkur
og einnig hvaða áhrif þeir hafa á
okkur og börnin okkar. „Við reynum
að skoða þetta allt í þáttunum.“
Hún segir heim samfélagsmiðl-
anna ótrúlegan og að hann stjórni
miklu í lífi margra án þess að fólk
geri sér endilega grein fyrir því.
„Ég held t.d. að fæstir geri sér grein
fyrir því hversu miklum tíma þeir
eyði inni á samfélagsmiðlum. Við er-
um alla vega búnar að komast að
ýmsu um okkar eigin samfélags-
miðlanotkun við vinnslu þessara
þátta og sumt var erfitt að horfast í
augu við. Maður er háður þessum
miðlum að mörgu leyti og margir
ættu erfitt með að lifa án þeirra í
dag.“
Hugmyndin að þáttunum kviknaði
fyrir nokkru. „Ég var mikið að pæla
í að maður eyddi alltof miklum tíma
á þessum miðlum og bar hugmynd
undir Skarphéðin Guðmundsson
dagskrárstjóra um að skoða þennan
samfélagsmiðlaheim í heild sinni.
Ég fór svo að segja Ragnhildi Stein-
unni frá þessu og hún var með mjög
svipaða hugmynd í kollinum þannig
að við ákváðum að kýla á þetta sam-
an. Hugmyndin hefur samt þróast
mikið og auðvitað margt breyst í
millitíðinni enda er þetta ansi hrað-
ur heimur og fljótur að breytast.“
Skoða allar hliðar
Í þáttunum eru allar hliðar sam-
félagsmiðla skoðaðar, góðar og
slæmar. „Stundum er dregin upp sú
mynd að allt sé slæmt við þetta nýja
samskiptaform en það er auðvitað
margt jákvætt líka. Þó að við eyðum
kannski of miklum tíma þarna þá
gera miðlarnir okkur líka auðveld-
ara að komast í samband við fólk,
finna týnda ættingja og margar
byltingar hafa byrjað inni á hinum
ýmsu miðlum. Þarna hafa allir sinn
eigin fjölmiðil í rauninni, geta komið
skoðunum sínum á framfæri, sem er
auðvitað vandasamt að mörgu leyti
en getur verið bæði jákvætt og nei-
kvætt. Hins vegar er það auðvitað
þannig að flestir gefa bara ákveðna
mynd af sér inni á þessum miðlum,
hálfgerða glansmynd og það getur
auðvitað haft slæm áhrif.“
Viktoría segir þær búnar að læra
margt af því að gera þessa þætti;
ferlið hafi verið skemmtilegt og lær-
dómsríkt. „Síðan vill svo skemmti-
lega til að við urðum báðar óléttar á
lokasprettinum. Við komumst að því
á svipuðum tíma, hvorugt var planað
en mjög fyndið af því ég er komin
nokkrum vikum á undan Ragnhildi
en við erum samt settar á sama tíma
af því hún gengur með eineggja tví-
bura og má því ekki ganga fulla
meðgöngu. Ég sagði Ragnhildi frá
því eftir sumarfrí að ég væri ólétt og
hún missti út úr sér á móti: Ég líka!“
Viktoría Hermannsdóttir
og Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir lærðu margt
við gerð þáttanna.
Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir
Samfélags-
miðlar stjórna
lífi margra
Sítengd – veröld samfélagsmiðla nefnast heimild-
arþættir um samfélagsmiðla í umsjón Ragnhildar
Steinunnar Jónsdóttur og Viktoríu Hermanns-
dóttur, sem hefja göngu sína á RÚV í kvöld.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is