Morgunblaðið - 07.11.2018, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.11.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2018 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt ICQC 2018-20 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Tveir valinkunnir tenórsaxófónleik- arar, Chris Speed og Óskar Guð- jónsson, koma fram á tónleikum djassklúbbsins Múlans á Björtu- loftum Hörpu í kvöld klukkan 21. Ásamt þeim skipa Íslandskvartett Chris Speeds þeir Skúli Sverrisson rafbassaleikari og Matthías M.D. Hemstock á trommur. Meginhluti efnisskrár tónleikana mun byggjast á lögum eftir Speed en einnig verða flutt lög eftir þá Skúla og Óskar. Skúli og Speed hafa starfað saman um langt árabil, meðal annars í New York-hljómsveitunum Yeah, No og Pachora. Chris Speed hefur árum saman verið í hópi umtöluðustu og athyglisverðustu spunatónlistar- manna New York-borgar. Hann stendur nú á fimmtugu og hefur leikið með fjölda þekktra djass- manna á ferlinum og tekist á við hin fjölbreytilegustu verkefni, allt frá djasstónlist yfir í þjóðlagatónlist, klassík og rokk. Speed hefur á undanförnum aldarfjórðungi komið nokkrum sinnum til Íslands og leik- ið hér, meðal annars sem gestur á Jazzhátíð. Hann lék í Mengi á mánudagskvöldið var. „Þá lék ég með tríóinu mínu og þar með lauk tónleikaferð okkar um Evrópu,“ segir Speed glaðlega þeg- ar rætt er við þá Óskar um tón- leikana í Múlanum í kvöld. „Skúli Sverrisson vinur minn setti þessa tónleika í Mengi upp fyrir okkur og það var mjög gaman, fullt hús.“ Óskar segir að þar sem Speed hafi ákveðið að staldra aðeins lengur við hér á landi hafi hann stokkið á þá hugmynd að fá hann til að koma fram í Múlanum með þeim félögum Skúla og Matthíasi. „Ég hef verið gríðarlegur aðdáandi Chris síðan ég hitti hann fyrst, þegar ég var 17 ára gamall,“ segir Óskar. „Við höfum ekki spilað saman að neinu marki eða á dýptina fyrr og ég hlakka mik- ið til.“ Speed bætir við að þeir Óskar hafi þekkst lengi og talað mikið saman um tónlist. „Skúli er mikill vinur minn og einn af mínum nán- ustu meðleikurum árum saman og ég þekki Matthías líka vel en hann hljóp í skarðið í tríóinu mínu þegar við komum hér fram á Jazzhátíð fyr- ir um fjórum árum.“ Speed segir að tækifærið til að koma hér fram með þessum góðu fé- lögum og tónlistarmönnum og að leika með Óskari félaga sínum á sax- inn sé „sannkallaður draumur!“ Einstakar pælingar „Óskar er sannkallaður sálufélagi minn í saxófónleik, og á svo marg- víslegan hátt. Til að mynda í því hvernig hann talar um hljóma og hljóð og áhrifavalda. Markmiðin sem við höfum við tónlistarflutning kunna að vera á einhvern hátt ólík en mér finnst að þar sé þó um eins konar bræðrasamband að ræða.“ Þeir blásarabræður hittust fyrst snemma á tíunda áratugnum þegar Hilmar Jensson gítarleikari fékk Speed og trommarann Jim Black til að koma hingað til lands að leika með þeim Skúla. „Ég fann strax hvernig neistaði af Óskari, hann tal- aði um Wayne Shorter og ólíkar tónsmíðar og ég velti fyrir mér hvaða strákur þetta væri,“ segir Speed og brosir. „Við höfum haldið sambandi og ég get fyllilega sagt að Óskar hafi verið mér mikilvægur, til að mynda í hugmyndum sínum og nálgun við það hvernig tónlist og leikurinn getur hljómað; mér finnst hann vera einskonar tónvísinda- maður og hann hefur lagst í ein- stakar pælingar, til að mynda um uppruna hljóða og hvað myndar þau. Það hefur veitt mér inn- blástur.“ Andlegur tvíburabróðir Félagarnir segjast ætla að leika nokkur eldri lög eftir Speed og Skúla og Óskar „hendir inn“ nokkr- um eftir sig. „Innan djass- eða spunaramma eins og við munum bjóða upp á þá verða einhverjar lag- línur og form og svo spunnið út frá þeim. Ætli um tuttugu prósent verði ekki laglínur og hitt spinnum við,“ segir Óskar. „En á æfingu í dag,“ sagði hann í gær, „neglum við niður hvernig fyrirkomulagið verður …“ Þegar spurt er um hvernig sam- bandið verði milli þeirra saxófón- leikaranna á sviðinu í kvöld, hvort það mótist af samkeppni eða vina- legum og einlægum samruna, þá brosa félagarnir. „Keppni blásara á sviðinu er auðvitað þekkt í djasssög- unni,“ svarar Speed. „Hjá okkur verður þetta ekki eins og þekktist um miðja síðustu öld, þar sem menn léku kannski blús í tuttugu mínútur, skiptust á sólóum og reyndu að kveikja hver í öðrum á sem hressi- legastan hátt! Við erum meira eins og tveir söngvarar sem reyna að tengjast og vinna saman. Hefðin með tveimur blásurum í djass- sveitum er orðin löng, Ornette Cole- man og Dewey Redman eða Cole- man Hawkins og Ben Webster. Þá erum við að tala um klassísk stefnu- mót í djassinum. En við Óskar erum við Óskar! Við munum byggja á fal- legum lagasmíðum, til að mynda gullfallegum laglínum Skúla …“ Óskar bætir við að tónleikarnir verði melódískir og spennandi á sama tíma. „Góðar laglínur með fal- legum hljómi er nokkuð sem mér finnst gríðarlega eftirsóknarvert,“ segir hann. „Og ég verð að hnykkja á hvers konar upplifun það er fyrir mig að geta komið fram með Chris, því hann hefur verið gríðarlega mikilvægur áhrifavalduir á mína tónlist. Hann er guðfaðir þess hvernig ég hljóma þegar ég blæs! Þegar ég sá Chris spila hér með félögum sínum, þegar ég var bara unglingur, þá breytti það öllum mín- um hugmyndum um tónlist! Og hvernig ég gæti tengt tónlist míns eigin tíma inn í þá tónlistartegund sem kölluð er djass. Þeir sýndu mér leiðina – hafa haldið áfram að gera það, og fyrir mér er það einfaldlega draumur að geta verið á sviði með þessum þremur hljóðfæraleikurum sem hafa allir haft gríðarleg áhrif á mig: Chris sem er andlegur tvíbura- bróðir í djassleik, Matthías ná- granni minn sem kynnti mig fyrir svo mörgu í tónlistinni sem ég þekkti ekki og svo var Skúli sá fyrsti í tónlist sem ég kynntist sem talaði ekki um tónlist með tungumáli tón- listarskólanna heldur með tungu- máli mennskunnar,“ segir Óskar. Morgunblaðið/Einar Falur Blásarar „Við erum eins og tveir söngvarar sem reyna að tengjast og vinna saman,“ segja Óskar Guðjónsson og Chris Speed um samleikinn. Bræðrasamband djassblásaranna  Íslandskvartett Chris Speeds í Múlanum í kvöld  Saxófónleikararnir Speed og Óskar Guðjónsson segjast aðdáendur hvor annars  „Er guðfaðir þess hvernig ég hljóma,“ segir Óskar um Speed Fyrir 46 árum kvikmyndaði hinn virti kvikmyndaleikstjóri Sydney Pollack rómaða gospeltónleika sálarsöngkonunnar Arethu Frankl- in í Los Angeles. Hljóðritun á tón- leikunum var gefin út á gríðar- vinsælli plötu, Amazing Grace, sem er ein söluhæsta gospelplata allra tíma. En kvikmynd Pollacks átti eftir að verða ein frægasta kvik- mynd sögunnar sem aldrei var sýnd – þar til nú, að ættingjar Franklin hafa samþykkt að hún verði frum- sýnd í New York á mánudaginn kemur, þrátt fyrir að Franklin sjálf hafi höfðað mál til að koma í veg fyrir sýningar á henni. Vegna vandamála við tökur árið 1972 gekk afar illa að klippa mynd- ina. Notaðar voru fimm 16 mm tökuvélar og Pollack var eftir tón- leikana með um 20 klukkustundir af filmu en hann hafði ekki notað klapptré og illa gekk að láta hljóð falla að mynd. Samkvæmt The New York Times gáfust framleiðendur Warner Bros upp á verkefninu þegar klipping á myndinni gekk illa, Pollack fór að leikstýra öðrum verkefnum og film- urnar söfnuðu ryki. Það var svo ár- ið 2007 sem framleiðandi að nafni Alan Elliott fékk Warner Bros til að selja sér filmurnar og réttinn að myndinni og með hjálp stafrænnar tækni gekk að fella hljóð og mynd saman, svo kvikmyndin var tilbúin árið 2010. En þegar leið að frum- sýningu höfðaði Franklin mál til að stöðva sýningar; hún kvaðst stolt af tónlistinni en leiddar eru að því lík- ur að hún hafi sætt sig illa við það að æskan sem birtist í kvikmynd- inni var ekki lengur til staðar. Eftir andlát Franklin fékk Elliott að sýna ættingjum hennar myndina og samþykktu þeir að hún yrði tek- in til sýningar. „Aðdáendur hennar verða að sjá þessa kvikmynd, hún er bæði falleg og gleðileg,“ er haft eftir frænku Franklin. Og Elliott segir snilld Franklin blómstra í hverjum einasta ramma. Mynd um Franklin sýnd 46 árum seinna  „Er bæði falleg og gleðileg“ AFP Sálardrottningin Aretha Franklin vildi ekki láta sýna kvikmyndina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.