Morgunblaðið - 10.11.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2018
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU
Nýir for-ystumenn í
verkalýðshreyf-
ingunni hafa gert
lítið úr varnaðar-
orðum vegna
krafna þeirra
gagnvart fyr-
irtækjum í land-
inu. Þegar bent er
á að kröfurnar séu
óhóflegar og að fyrirtækin geti alls
ekki staðið undir þeim, þá er við-
kvæðið það að þetta sé alltaf sagt
og sé að engu hafandi.
Samkvæmt því viðhorfi mætti svosem eins tvöfalda kröfurnar.
Eða tífalda þær. Hvers vegna ekki,
ef útreikningar og staðreyndir
skipta engu máli?
Og reyndar er það svo að þegaróskað er eftir útreikningum
verkalýðsforystunnar á kröfunum
þá er slíkum óskum vísað á bug.
Hingað til hefur þótt betra aðræða mál út frá staðreyndum,
en nú hentar það ekki.
Þess vegna er því miður hætt viðað viðbrögð verkalýðsforyst-
unnar við könnun Samtaka atvinnu-
lífsins, sem Morgunblaðið segir frá í
dag, verði á þá lund að einungis sé
um hræðsluáróður að ræða.
En það er ekki víst að hinn al-menni launamaður taki slík-
um upplýsingum með sama hætti.
Og verkalýðsforystan þarf að muna
það að hún var kosin með afar lágu
hlutfalli félagsmanna.
Það er ekki víst að hinn þöglimeirihluti launamanna leyfi
forystunni að kalla atvinnuleysi yfir
þjóðina þegar allar aðstæður eru til
vaxandi velmegunar.
Hinn þögli meiri-
hluti launamanna
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Leiði og legsteinn Jóns Magnús-
sonar forsætisráðherra í Hólavalla-
garði við Suðurgötu verða lagfærð
fyrir 100 ára fullveldisafmælið 1.
desember. Ríkisstjórnin og skrif-
stofa Alþingis kosta framkvæmdina
í sameiningu og leggja fram hálfa
milljón króna hvor í þessu skyni.
Lára Björg Björnsdóttir, blaða-
fulltrúi ríkisstjórnarinnar, staðfesti
þetta í samtali við Morgunblaðið.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra tók málið upp á ríkisstjórnar-
fundi í gærmorgun í framhaldi af
frétt Morgunblaðsins á miðvikudag-
inn um að ásigkomulag legsteinsins
og leiðisins væri ekki gott. Áletruð
plata á legsteininum með nafni
Jóns var fjarlægð fyrir nokkru
vegna þess að hún var farin að
brotna og legsteinninn sjálfur er
laskaður.
Jón Magnússon var forsætisráð-
herra þegar Ísland öðlaðist fullveldi
1918. Með þessari ákvörðun vilja
stjórnvöld heiðra minningu hans.
Hefur Minjastofnun verið falið að
lagfæra leiðið og legsteininn í sam-
starfi við Kirkjugarða Reykjavíkur-
prófastsdæma. Í frétt frá forsætis-
ráðuneytinu segir að legsteinn Jóns
standi við hlið legsteins Péturs
biskups Péturssonar og séu þeir
um flest nákvæmlega eins. Saman
fari þar einhverjir íburðarmestu
minnisvarðar í Hólavallagarði.
Laga leiði og leg-
stein fyrir 1. des.
Ríkisstjórnin tók af skarið í gær
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Leiði Legsteinninn er laskaður eftir
að áletruð plata brotnaði af honum.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„410 vinnuslys barna og ungmenna ár-
ið 2014 eru sláandi og eitt slys í vinnu
er einu slysi of mikið. Sem betur fer
hefur vinnuvernd fengið aukið vægi
hjá atvinnurekendum og allir gera sitt
besta í þessum efnum en betur má ef
duga skal,“ segir Halldór Benjamín
Þorbergsson, framkvæmdasjóri SA,
sem hvetur fyrirtæki til þess að gera
áhættumat um öryggi og heilbrigði á
vinnustað. Halldór er ánægður með að
vinnuslysum á vinnumarkaði hafi
fækkað í heildina eins og fram kom á
málstofu Vinnueftirlitsins og umboðs-
manns barna í fyrradag.
Ábyrgð að ráða ungt fólk
„Ég held að það sé gott að upplýsa
sveitarfélögin betur um skyldurnar
sem felast í því að ráða unga einstak-
linga í vinnu,“ segir Aldís Hafsteins-
dóttir, formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Hún telur að sambandið
þurfi að upplýsa sveitarfélögin um
skyldur er varðar lögbundið áhættu-
mat til þess að tryggja börnum og ung-
mennum öryggi og heilbrigði á vinnu-
stað og hvetja þau til þess að gera
áhættumat fyrir vinnustaði sveitarfé-
lagsins. „Það fylgir því ábyrgð að vera
með starfsfólk í vinnu og huga þarf sér-
staklega að öryggi þegar um börn og
ungmenni er að ræða,“ segir Aldís.
Vinnuvernd fengið aukið vægi
Sláandi tölur um vinnuslys barna Sveitarfélögin verði upplýst um áhættumat
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Vernd Tryggja á öryggi starfsliðs.