Morgunblaðið - 10.11.2018, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2018
Heimsmeistarinn MagnúsCarlsen missti af fjöl-mörgum vinningsleiðum ífjörugri fyrstu einvíg-
isskák við áskorandann Fabiano Ca-
ruana í London í gær og varð að
sætta sig við jafntefli eftir 115 leiki.
Norðmaðurinn fékk snemma betri
stöðu og gat a.m.k. tvisvar knúið fram
sigur með því að ráðast með drottn-
ingu sína inn fyrir herbúðir hvíts.
Segja má að kantpeð á h-línunni hafi
kostað hann sigurinn en með því að
leika því fram gafst Caruana tími til
að koma kóngi sínum í skjól.
Þetta heimsmeistaraeinvígi, eins
og öll önnur sem haldin hafa verið
síðustu áratugina, speglast í því
frægasta sem nokkru sinni hefur
verið haldið, einvígi Fischer og
Spasskí í Reykjavík sumarið 1972.
Tengingin hefur sjaldan verið sterk-
ari en nú, því vinni Caruana verður
hann annar Bandaríkjamaðurinn í
skáksögunni til að hampa heims-
meistaratitlinum.
Fabiano Caruana fæddist árið
1992 í Miami í Florida, sonur ítalskr-
ar móður og bandarísks föður, ólst
upp í Brooklyn-hverfi í New York,
eins og Fischer, og tók þar sín fyrstu
skref í skákinni. Árangur Caruana
gegn Magnúsi í 29 kappskákum er
ekki góður. Hann er talinn sterkari í
byrjunum en leiktækni Magnúsar
þykir frábær. Þetta er þriðja tit-
ilvörn hans. Á dagskrá eru 12 skák-
ir.
Teflt er í The College, þriggja
hæða byggingu miðsvæðis í London,
byggðri á veldisárum Viktoríu
drottningar á ofanverðri 19. öld og
andi þessa tímabils sem kennt er við
hana svífur þar yfir í hverjum krók og
kima:
London 2018; 1. skák:
Fabiano Caruana – Magnús Carl-
sen
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 g6 4.
Bxc6 dxc6 5. d3 Bg7 6. h3 Rf6 7. Rc3
Rd7 8. Be3 e5 9. O-O b6 10. Rh2 Rf8
11. f4 exf4 2. Hxf4 Be6 13. Hf2 h6 14.
Dd2 g5!?
Magnús tók drjúgan tíma á þennan
kröftuga leik sem hefur bæði kosti og
galla, veikir f5-reitinn en kemur ridd-
ara til g6 og nær góðu tangarhaldi á
e5-reitnum.
15. Haf1 Dd6 16. Rg4 O-O-O 17.
Rf6 Rd7! 18. Rh5 Be5 19. g4 f6 20. b3
Hann mátti alls ekki leika 20. Rf7
vegna 20. ... h5! 21. Rxh5 Bf7 o.s.frv.
20. .. Bf7 21. Rd1 Rf8!?
Óvænt peðsfórn. Hann átti annan
sterkan leik, 21. .. Hhg8 sem hótar 22.
... Bxh5 23. gxh5 g4 með sterkri
stöðu.
22. Rxf6 Re6 23. Rh5 Bxh5 24.
gxh5 Rf4 25. Bxf4 gxf4 26. Hg2
Hhg8 27. De2 Hxg2+ 28. Dxg2 De6
29. Rf2 Hg8 30. Rg4 De8!
Beinir skeytum sínum að h5-peðinu.
31. Df3 Dxh5 32. Kf2!
Vel leikið í tímahraki, kóngurinn
gæti átt gott skjól á e2.
32. ... Bc7! 33. Ke2?
Hann er of fljótur á sér og tíminn
var naumur. Best var 33. e5!
33. ... Dg5 34. Rh2 h5?
Óþarfi, eftir 34. .. De5! er hvítur
varnarlaus.
35. Hf2 Dg1 36. Rf1
-Sjá stöðumynd-
36. ... h4?
Alveg eins og í 34 leik virtist hann
lokaður fyrir möguleikanum 36. ..
Dg7! og síðan ryðst drottningin inn
eftir því sem verkast vill á b2, c3 eða
a1.
37. Kd2? Kb7 38. c3 Be5 39. Kc2
Dg7 40. Rh2 Bxc3 41. Dxf4 Bd4
42. Df7+! Ka6 43. Dxg7 Hxg7 44.
He2 Hg3 45. Rg4 Hxh3 46. e5!
Loksins hefur Caruana náð mót-
spili.
46. ... Hf3 47. e6 Hf8 48. e7 He8 49.
Rh6 h3 50. Rf5 Bf6 51. a2 b5 52. b4
cxb4 53. axb4 Bxe7 54. Rxe7 h2 55.
Hxh2 Hxe7
Þetta hróksendatafl er tiltölulega
einfalt jafntefli en Magnús reyndi
lengi að vinna. Eftir 115 leiki sættist
hann loks á skiptan hlut.
Önnur skák einvígisins hefst í dag
kl. 15.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
AFP
Vantar þig
ráðleggingar
við sölu eignar
þinnar?
s 893 6001
Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is
Guðbergur
Guðbergsson
Löggiltur fasteignasali
og leigumiðlari
Ólafur Stephensen
skrifar líflega grein í
Morgunblað föstu-
dagsins þar sem hann
finnur að ýmsu því
sem ég nefndi í grein
minni í blaðinu á
fimmtudag og varaði
fólk við því, meðal
annars, að taka of
mikið mark á mér
sem dýralækni. Mun-
urinn á okkur Ólafi liggur þegar
kemur að dýralækningum og dýra-
heilbrigði ekki síst í því að ég er
dýralæknir en hann ekki. Er þá
þessum hluta rökræðunnar lokið.
Einstök staða Íslands
Það sem einna helst einkennir
líf, hvort sem það er mannlíf eða
dýralíf, er að það þróast. Þetta á
ekki einungis við um það að líf-
verur eldist, heldur einnig það að
við vitkumst og þróumst í hugsun
eftir því sem tíminn líður. Fyrir
nokkrum áratugum mæltu amer-
ískir læknar með einstaka sígar-
ettutegundum í auglýsingum en sú
aukabúgrein lækna er líklega úr
sögunni. Sykurinn sem amma mín
taldi meinhollan hefur einnig hrun-
ið niður vinsældalista þeirra sem
leggja áherslu á góða heilsu.
Læknar og dýralæknar (svo því sé
haldið til haga) um allan heim hafa
af því stórar áhyggjur að við blasi
faraldur sé ekki brugðist hratt við
notkun sýklalyfja í landbúnaði. Þá
komum við að þeirri staðreynd að
Íslendingar eru sem þjóð í þeirri
stöðu sem flestar þjóðir heims
vildu vera í. Ég mæli því ekki við
því við Ólaf og verslunina að fara í
slagsmál við lækna og dýralækna
þegar kemur að heilbrigði manna
og dýra á Íslandi.
Hrátt kjöt er ekki eins og
hvert annað vörunúmer
Sá slagur sem Ólafur og versl-
unin eru í og hafa náð nokkrum ár-
angri í er á sviði frjálsrar versl-
unar. Þá er bara spurningin sú
hvort kjörbúðin sé rétti vettvang-
urinn fyrir matarslag. Hvort frjáls
verslun með hrátt kjöt sé bara eins
og hvert annað bókhaldsnúmer
þegar við blasir á þeim mörkuðum
sem verið er að opna að ástandið
er bara alls ekki nógu gott. Og
langt frá því.
Vakning um
allan heim
EES-samningurinn
er Íslendingum gríð-
arlega mikilvægur,
ekki síst þegar hags-
munir sjávarútvegsins
eru annars vegar. Það
að bera saman íslensk-
ar sjávarafurðir og af-
urðir verksmiðjubúa
meginlandsins er þó
eins og að bera saman
tómata og ananas. Ég lít svo á að
það sé þess virði að berjast fyrir
breytingum á EES-samningnum
til þess að vernda þá góðu stöðu
sem við höfum á sviði landbúnaðar,
dýraheilbrigðis og lýðheilsu. Um
þetta er gríðarleg vakning um all-
an heim en ekki síst á Norð-
urlöndum.
Tökum ekki áhættuna
Það erfiða við þetta mál er ekki
síst það að ef við leyfum tímanum
að leiða í ljós hvort það hafi áhrif á
lýðheilsu Íslendinga að flytja inn
hrátt kjöt þá verður okkur í Fram-
sókn engin fró í því að standa upp
eftir 20 ár og segja við Ólaf og fé-
laga: „I told you so.“
Fyrir áhugasama þá er rétt að
benda þeim á að gúgla nöfn veiru-
fræðingsins Margrétar Guðnadótt-
ur heitinnar og Karls G. Krist-
inssonar, yfirlæknis á sýkla- og
veirufræðideild Landspítalans, og
sjá hvað greinar þeirra hafa að
segja um innflutning á hráu kjöti
og sýklalyfjaónæmi. Því þótt þau
séu ekki dýralæknar hafa þau mik-
ið til málanna að leggja.
Frelsi til heilbrigðis
Eftir Sigurð Inga
Jóhannsson
Sigurður Ingi
Jóhannsson
» Læknar og dýra-
læknar (svo því sé
haldið til haga) um allan
heim hafa af því stórar
áhyggjur að við blasi
faraldur sé ekki brugð-
ist hratt við notkun
sýklalyfja í landbúnaði.
… Íslendingar eru sem
þjóð í þeirri stöðu sem
flestar þjóðir heims
vildu vera.
Höfundur er samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra og dýralæknir.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER NÆSTA
VERKSTÆÐI?
Magnús Carlsen missti
unnið tafl niður í jafntefli
Einvígi Magnús
Carlsen og
Fabiano
Caruana við
taflið í gær.