Morgunblaðið - 10.11.2018, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2018
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
HYUNDAI TUCSONCOMFORT
4WDÁrg. 2018, ekinn 43 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur. Verð 4.590.000 kr.
Raðnúmer 380209
SUZUKI VITARA GLX 4WD
nýskr. 05/2018, ekinn 36 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur. Verð 4.190.000 kr.
Raðnúmer 258679
HYUNDAI I30WAGON CLASSIC
Árg. 2018, ekinn 22 Þ.km, bensín,
6 gíra. Verð 2.990.000 kr.
Raðnúmer 258711
HYUNDAI I30WAGON CLASSIC
Árg. 2018, ek. 23 Þ.KM, bensín, 6 gíra.
Verð 2.990.000 kr.
Raðnúmer 380126
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum
SPRENGI
TILBOÐ
Tökum ALLA*
notaða bíla uppí á
550.000 kr.
KÍKTU VIÐ FYRIR
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Ath. örfá eintök í boði!
*Allir notaðir bílar ganga sem
550.000 kr. upp í. Bílarnir þurfa að
vera á númerum og hægt að aka
þeim. Aldur, akstur og litur skiptir
ekki máli.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Búið er að brjóta og fjarlægja drop-
steina og dropstrá úr öllum þekkt-
ustu og aðgengilegustu hraunhellum
landsins, að sögn Árna B. Stefáns-
sonar, augnlæknis og hellakönnuðar.
Dropsteinar myndast því hraun-
kvika storknar í
áföngum. Frum-
stæðasti hlutinn
storknar fyrst í
einhvers konar
frauð. Inni í hálf-
storknuðu berg-
inu er fljótandi
þróaðri berg-
kvika, sem
storknar við
lægra hitastig.
Kvikan afgasar sig inni í berginu.
Gasþrýstingur blæs afgangskvik-
unni niður um hellisþakið. Við það
myndast dropstráin, blástursstrá
hraunsins, í þaki hraunhellanna og
hraundropar leka í gegn. Fyrir neð-
an stráin hlaðast upp dropsteinar á
hellisgólfinu. Þessi fyrirbæri,
dropstrá og dropsteinar, myndast
meðan hraunið er að kólna og svo
ekki meir, ólíkt dropsteinum í kalk-
steinshellum sem geta stöðugt end-
urnýjast.
Árni segir dropsteinsmyndanir
hraunhellanna vera viðkvæmustu
minjar íslenskrar náttúru. Náttúru-
verndarráð friðlýsti dropsteins-
myndanir hraunhella í ágúst 1958.
Friðlýsingin var svo ítrekuð árið
1974. Þrátt fyrir friðlýsingarnar
urðu engin lát á skemmdum, að sögn
Árna. Ásókn í hraunhellana hefur
vaxið og dropsteinsminjar hverfa
undantekningalaust úr opnum og að-
gengilegum hellum, sem almenningi
og ferðamönnum er kunnugt um.
Þrír hraunhellar hafa verið friðlýst
náttúruvætti og eru lokaðir al-
mennri umferð af verndarástæðum.
Nýlega rak lítinn dropstein á
fjörur Árna. Hann sagði mann hafa
haft samband við Hellarannsókna-
félag Íslands (speleo.is). Sá hafði
rekist á dropstein á nytjamarkaði og
keypt á 200 krónur. Honum var bent
á Árna sem formann verndunar-
nefndar félagsins og afhenti honum
gripinn. Steinninn er á platta með
máðri áletrun og hefur verið lakk-
aður. Árni fékk Sölva Sveinsson,
fyrrverandi skólastjóra, til að lesa úr
áletruninni. Hann taldi steininn vera
merktan Surtshelli. Sé það rétt var
steinninn líklega tekinn fyrir um 100
árum eða meira. Árni segir rúmlega
800 dropsteina hafa verið fjarlægða
úr efri hluta Surtshellis, sem er kall-
aður Stefánshellir.
„Samkvæmt menntaðri ágiskun
er búið að brjóta um 15 km af drop-
stráum úr lofti Stefánshellis.
Dropstrá geta verið frá nokkrum cm
og upp í tugi cm á lengd. Lengsta
þekkta dropstrá í heiminum mældist
1,65 metra langt í Kalmanshelli. Ég
held að það hafi farið í hruni í kring-
um árið 2007,“ sagði Árni.
Hann telur að brottnám dropstráa
og dropsteina hafi yfirleitt verið
óskipulagt. Fólk heillist af umhverfi
hellanna og fyllist óviðráðanlegri
löngun til að taka með sér minja-
gripi, oftast gegn betri vitund.
Nokkur hundruð dropsteinar eru
ekki lengi að hverfa þegar hver hóp-
urinn á fætur öðrum heimsækir hell-
ana. Fegurstu steinarnir hverfa
fyrst.
Skipulögð brot í Víðgelmi
Árni sagði dropsteina hafa verið
skipulega fjarlægða úr Víðgelmi á 7.
áratug síðustu aldar. „Kristján Sæ-
mundsson jarðfræðingur var þá við
jarðfræðirannsóknir í Borgarfirði
ásamt þýskum kollega. Þeir notuðu
rigningardaga til að mæla stóru hell-
ana, Víðgelmi, Surtshelli og Stef-
ánshelli. Einn daginn rákust þeir á
tvo kassa fulla af dropsteinum fjögur
til fimm hundruð metrum innan við
innganginn í Víðgelmi. Þeir tóku
kassana og eru dropsteinarnir nú í
minni vörslu. Ég hef gert afsteypur
af steinunum og get því endur-
skreytt hella. Ég setti til dæmis upp
37 dropsteina í Vatnshelli á Snæ-
fellsnesi,“ sagði Árni. „Rúmlega tvö
þúsund dropsteinar hafa sannanlega
verið brotnir og fjarlægðir úr hellun-
um, samkvæmt rannsóknum okkar
Gunnhildar Stefánsdóttur, eigin-
konu minnar. Ellefu hundruð drop-
steinar úr Víðgelmi á árabilinu 1909-
1974, mest á 6. og 7. áratugnum. Við
vitum þetta af sögunni. Ég var í sveit
í Kalmanstungu á 6. áratugnum. Þá
var talað um það í fullri alvöru að
ekki væri flókið að loka Víðgelmi til
að koma í veg fyrir stuld á drop-
steinum sem þá færðist mjög í vöxt.“
Árni kom fyrst í Víðgelmi árið 1959
og þá voru þar miklu fleiri drop-
steinar en þegar hann kom þangað
aftur árið 1991.
Fólk skili dropsteinum
Árni kvaðst ekki hafa séð drop-
steina auglýsta til sölu fyrr en í fyrra
þegar illa farinn dropsteinn var aug-
lýstur á bland.is á 123.000 krónur.
Félagi í Hellarannsóknafélaginu
kærði þetta til lögreglunnar á Akur-
eyri. Árni sagði að svo virtist sem
málið hefði týnst í kerfinu. Fróðlegt
væri að fá botn í þetta mál af því að
dropsteinar eru friðlýstir samkvæmt
lögum.
Draumur Árna er að dropsteinum
sem teknir hafa verið úr hellum
verði safnað saman. Þeir verði síðan
settir upp í sýningarhelli eða við
verndaðar aðstæður þar sem fólk
geti skoðað þessar fágætu gersemar
og saga þeirra sögð. „Eina leiðin til
að gera dropsteinshella sýnilega er
að girða myndanirnar af og hleypa
ekki fólki inn nema í fylgd leiðsögu-
manna sem bæði kunna á hellinn og
kunna að fylgjast með fólki. Rann-
sóknir hafa sýnt að allt sem hægt er
að fjarlægja hverfur í innan við
þriggja metra fjarlægð frá göngu-
stígum, jafnvel í vöktuðum og leið-
sögðum sýningarhellum.“
Árni hvetur þá sem hafa drop-
steina eða dropstrá undir höndum að
skila þeim til Náttúrufræðistofnunar
Íslands eða til hans (abstef@-
simnet.is) gegn nafnleynd.
Gersemar horfnar úr hellunum
Dropsteinar og dropstrá eru viðkvæmustu minjar íslenskrar náttúru Dropsteinsmyndanir
fjarlægðar úr þekktustu hraunhellunum Fólk er hvatt til að skila dropsteinum og dropstráum
Dropstrá og dropsteinar Myndin er úr lítt röskuðum hraunhelli sem er í mikilli hættu, að sögn Árna. Nauðsynlegt er að vernda slík náttúrufyrirbæri.
Ljósmynd/Árni B. Stefánsson
Morgunblaðið/Hari
Dropsteinn Steinninn úr Surtshelli
var seldur á nytjamarkaði á 200 kr.
Hann hefur verið lakkaður.
Árni B.
Stefánsson