Morgunblaðið - 10.11.2018, Síða 31
húsnæðismálum geta gagnast launa-
fólki. Það myndi verða mikil kjara-
bót fyrir launfólk að fá skattfrelsi
samþykkt á lægstu launum, t.d. 300
þús. á mánuði. Ef það skattfrelsi
næði einnig til sama lífeyris á mán-
uði yrði það mikil búbót fyrir þessa
aðila. Aðgerðir í húsnæðismálum
gagnast þeim. – Lágmarkslaun verði
það há að unnt sé að lifa sómasam-
legu lífi af þeim. Sama gildir um
lægsta lífeyri. Sá lífeyrir þarf að
vera það hár að hann nægi vel fyrir
framfærslukostnaði; það hár að eldri
borgarar og öryrkjar geti veitt sér
eitthvað. Eldri borgarar geti lifað
með reisn á efri árum. Öryrkjar
þurfi ekki að kvíða morgundeginum.
Höfundur er fv. borgarfulltrúi.
vennig@btnet.is
skipulagsaðgerðir sem stuðli að
breyttum ferðavenjum á sama tíma
og meginmarkmiðið er greiðar
samgöngur sem ýta undir nýfram-
kvæmdir með tilheyrandi aukningu
umferðar. Talað er um að skipulag
og forgangsröðun framkvæmda í
þéttbýli taki mið af umhverfis- og
lýðheilsubætandi aðgerðum án þess
að útskýra hvað í því felst. Ekkert
er minnst á orkuskipti í sam-
göngum, eingöngu að unnið verði
að orkuskiptum í ferjum.
Eftirfylgni og mat vantar
Um 50% af heildarumferð á Ís-
landi eru á höfuðborgarsvæðinu.
Þar eru stærstu möguleikarnir til
þess að minnka útblástur með sam-
starfi samgönguyfirvalda við skipu-
lagsyfirvöld um það hvernig má
skipuleggja byggð og þjónustu
þannig að ferðaþörf fólks minnki og
færist yfir á vistvæna ferðamáta.
Ekkert er minnst á þetta í sam-
gönguáætlun, né heldur á svifryk
eða heilsufarsvandamál sem því
tengjast.
Í umsögn VFÍ er meðal annars
fjallað um eflingu faglegra vinnu-
bragða og þekkingar við forgangs-
röðun verkefna. Einnig er vakin at-
hygli á að í tillögu að
samgönguáætlun er ekkert minnst
á eftirfylgni með markmiðum og
stefnumótun. Af því tilefni er spurt:
Hvernig á almenningur að meta
eftirfylgni varðandi framkvæmd
samgönguáætlunar ef hvorki eru
áform um eftirfylgni né mat á
framgangi? Hvernig á almenningur
að vita hvort samgöngur á Íslandi
uppfylli markmið um umhverfislega
sjálfbærar samgöngur eða markmið
um hagkvæmar samgöngur?
Samgönguáætlun í núverandi
formi er bæði stefnumótunarplagg
og framkvæmdalisti. VFÍ bendir á
þann möguleika að setja fram ein-
falt, skýrt og hnitmiðað skjal sem
gegni hlutverki stefnumótandi sam-
gönguáætlunar, sem síðan væri
stutt með framkvæmdaáætlun í
samgöngumálum. Í hinni síð-
arnefndu væru einstakar fram-
kvæmdir tilgreindar og áhrif þeirra
útskýrð, ásamt forgangsröðun og
tímasetningum. Þannig væri auð-
velt og gegnsætt að sjá hvaða
framkvæmdir ríma vel við stefnu-
mótunina og hverjar miður.
áætlun
» „Verkfræðingafélag
Íslands (VFÍ) leggur
til í umsögn sinni um
samgönguáætlun að
markmiðið um greiðar
samgöngur verði fellt
út“.
Höfundur er samgönguverkfræð-
ingur og framkvæmdastjóri Viaplan.
lilja@viaplan.is
MESSUR 31á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2018
AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Ragnar
Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sambands ís-
lenskra kristniboðssambanda, prédikar og
segir frá starfinu í Kapkoris í Keníu. Tekið verð-
ur við samskotum. Prestur er Svavar Alfreð
Jónsson. Kammerkórinn Hymnodia syngur.
Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Sunnudaga-
skóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón Sonja
Kro og Jón Ágúst Eyjólfsson.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Prestur er Þór Hauksson ásamt Ingunni
Björk Jónsdóttur djákna. Organisti er Krisztina
Kalló Szklenár. Kirkjukaffi í lokin.
ÁSKIRKJA | Menningardagur. Messa og
barnastarf kl. 11. Séra Sigurður Jónsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Kristný Rós Gúst-
afsdóttir djákni og Benjamín Hrafn Böðvarsson
guðfræðinemi annast samverustund sunnu-
dagaskólans. Félagar úr Kór Áskirkju leiða
messusönginn. Orgelleikari er Bjartur Logi
Guðnason. Kökubasar og nytjamarkaður
Safnaðarfélagsins í Ási frá kl. 12. Vöfflukaffi
kr. 1.000. Örtónleikar Kórs Áskirkju í kirkjunni.
Sýning á skrúða og munum kirkjunnar.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í
Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stund-
inni hafa Sigrún Ósk, Pétur og Þórarinn.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestar
eru Magnús Björn Björnsson og Toshiki Toma.
Organisti er Örn Magnússon, forsöngvari er
Marta Guðrún Halldórsdóttir. Sunnudagaskóli
á sama tíma í umsjá Steinunnar Leifsdóttur og
Steinunnar Þorbergsdóttur. Ensk bænastund
kl. 14.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11, prestur er
Gunnar Sigurjónsson, organisti er Sólveig Sig-
ríður Einarsdóttir. Félagar úr Drengjakór ís-
lenska lýðveldisins syngja. Fermingarbörn skila
söfnunarbaukum. Sunnudagaskóli í kapellu á
neðri hæð á sama tíma. Veitingar í safnaðarsal
eftir messu.
DÓMKIRKJA KRISTS konungs, Landakoti
| Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30
á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö. kl. 8, lau.
kl. 16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra Elínborg
Sturludóttir prédikar og þjónar. Sunnudaga-
skóli á kirkjuloftinu í umsjón Sigurðar og Stef-
aníu. Dómkórinn og Kári Þormar organisti.
Minnum á bílastæðin við Alþingi.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Fjölskyldguð-
sþjónusta kl. 11. Kristniboðsdagurinn. Sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson þjónar ásamt Mörtu
Andrésdóttur og Ásgeiri Ólafssyni. Organisti
verður Arnhildur Valgarðsdóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 13. Sigríður Kristín
prédikar. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir
sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar. Guðs-
þjónusta á Sólvangi kl. 15, Einar Eyjólfsson
prédikar. Kór Fríkirkjunnar leiðir söng.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskyldumessa
kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir
stundina. Fermingarbörn taka þátt. Hljóm-
sveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina
leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni
organista. Barnakórinn við Tjörnina syngur und-
ir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Fjölskyldur
fermingarbarna eru hvött til að mæta með
börnum sínum.
GLERÁRKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl.
11. Sunna Kristrún djákni, Margrét Árnadóttir
og Agnes Gísladóttir leiða stundina. Barnakór
Glerárkirkju syngur.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta á
kristniboðsdaginn kl. 11. Sr. Sigurður Grétar
Helgason þjónar. Kór Grafarvogskirkju syngur.
Stjórnandi er Hákon Leifsson. Sunnudagaskól-
inn er á sínum stað kl. 11. Pétur Ragnhild-
arson hefur umsjón með stundinni.
GRAFARVOGUR - kirkjuselið í Spöng | Sel-
messa kl. 13. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjón-
ar. Elísabet Ormslev syngur ásamt Vox Populi.
Undirleikari er Hilmar Örn Agnarsson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Efni dags-
ins er kristniboð og samskotin renna til SÍK,
Sambands íslenskra kristniboðsfélaga. Sr.
María Ágústsdóttir þjónar ásamt messuhópi og
Ástu Haraldsdóttur organista. Kvennakórinn
Cantabile frá Domus Vox syngur undir stjórn
Margrétar J. Pálmadóttur. Kaffi á undan og eft-
ir messu. Kyrrðarstund á þriðjudag kl. 12.
GRINDAVÍKURKIRKJA | Kvenfélagsmessa
þar sem kvenfélagskonur taka þátt kl. 14.
Kaffisala og ágóðinn rennur til líknarstarfa.
Rósa Dagný Baldursdóttir flytur ræðu. Ein-
söngvari er Jóhanna María Kristinsdóttir. Kór
Grindavíkurkirkju leiðir sönginn undir stjórn
Erlu Rutar Káradóttur organista. Sr. Elínborg
Gísladóttir þjónar fyrir altari.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs-
þjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur er Leifur
Ragnar Jónsson. Organisti er Hrönn Helgadótt-
ir og kór Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í
umsjá Bryndísar Böðvarsdóttur og Ágústs
Böðvarssonar. Fermingarbörn úr Ingunnarskóla
bjóða upp á Pálínuboð eftir messuna. Kirkju-
vörður er Lovísa Guðmundsdóttir og Guðný Ara-
dóttir er meðhjálpari.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Unglinga-
kór Hafnarfjarðarkirkju syngur undir stjórn
Helgu Loftsdóttur. Guðmundur Sigurðsson leik-
ur á orgel og píanó. Prestur er Jón Helgi Þór-
arinsson. Bylgja Dís og Sigríður leiða fjöl-
breytta dagskrá í sunnudagaskólanum.
Hressing á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Marteinsmessa og kristniboðsdagur.
Sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari.
Messuþjónar aðstoða. Organisti er Hörður Ás-
kelsson. Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju
syngur undir stjórn Helgu Vilborgar Sigurjóns-
dóttur sem einnig flytur ávarp og les pistil. Les-
ari er Margrét Helga Kristjánsdóttir. Barnastarf
í umsjá Ragnheiðar Bjarnadóttur og Rósu
Árnadóttur. Listsýningarspjall í forkirkju kl.
16.30. Rósa Gísladóttir og Sigríður Ragn-
arsdóttir.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Helga
Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Barnastarf í umsjá Þorgerðar Ásu
Aðalsteinsdóttur. Valskórinn syngur undir
stjórn Báru Grímsdóttur. Organisti er Kristján
Hrannar Pálsson. Samskot dagsins renna til
Sambands íslenskra kristniboðsfélaga.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Kristniboðs-
dagur þjóðkirkjunnar. Útvarpsmessa frá Hjalla-
kirkju kl. 11. Kór Hjallakirkju syngur undir
stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur organista.
Skúli Svavarsson kristniboði prédikar. Prestur
er Sunna Dóra Möller.
Sunnudagaskólinn er á sínum stað í safn-
aðarheimilinu undir stjórn Markúsar og Heið-
bjartar.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11.Translation into English. Sam-
koma á spænsku kl. 13. Reuniónes en esp-
añol. Samkoma á ensku kl. 14. English
speaking service.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn sam-
koma sunnudag með lofgjörð og fyrirbænum.
Barnastarf / fjölbreytt og skemmtilegt. Friðrik
Schram prédikar. Eftir stundina verður boðið
upp á kaffi og samfélag. Einnig verða pitsu-
sneiðar í boði á vægu verði.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Messa kl. 11.
Kjartan Jónsson sóknarprestur setur sr. Arnór
Bjarka Blomsterberg í embætti prests í Tjarna-
prestakalli (Ástjarnarkirkja og Kálfatjarnar-
kirkja). Kór Kálfatjarnarkirkju syngur undir
stjórn Elísabetar Þórðardóttur organista.
Messukaffi og samfélag á eftir.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl. 11. Kristni-
boðsdagurinn. Kór Keflavíkurkirkju mun syngja
við gítarleik Sigurðar Smára Hanssonar. Helga
Jakobsdóttir og Þórey Eyþórsdóttir eru messu-
þjónar. Sunnudagaskóli. Fermingarforeldrar
reiða fram súpu og brauð frá Sigurjónsbakaríi.
KIRKJA heyrnarlausra | Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Kristín Pálsdóttir prédikar. Táknmáls-
kórinn syngur undir stjórn Eyrúnar Ólafsdóttur.
Kirkjukaffi á eftir.
KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson,
sóknarprestur, þjónar fyrir altari. Drengir af
miðstigi í skólakór Kársness syngja undir
stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur kórstjóra.
Sunnudagaskólinn tekur þátt í guðsþjónust-
unni.
LANGHOLTSKIRKJA | Haustbasar, messa
og barnastarf kl. 11. Söngfélagið Góðir grann-
ar leiðir sönginn undir stjórn Egils Gunn-
arssonar. Magnús Ragnarsson leikur á org-
elið, Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur
þjónar. Hafdís og Sara í sunnudagaskólanum.
Léttur hádegismatur eftir messu.
Að messu lokinni hefst haustbasar kven-
félagsins en auk margra skemmtilegra muna
er kökubasar og hlutavelta.
LAUGARNESKIRKJA | Fjölskyldu stöðva-
messa kl. 11. Sr. Eva Björk, Arngerður, Emma
og Gísli taka vel á móti kirkjugestum. Ungleið-
togar og messuþjónar aðstoða við helgihaldið.
Boðið verður upp á hressingu eftir stundina í
safnaðarheimili kirkjunnar. Þá verður helgi-
stund í Hátúni 12 klukkan 13.
LÁGAFELLSKIRKJA | Kvöldguðsþjónusta
11. nóv. kl. 20. Kirkjukór Lágafellssóknar
syngur undir stjórn organistans Þórðar Sigurð-
arsonar. Sr. Arndís G. Bernhardsdóttir þjónar
fyrir altari. Kirkjuvörður er Hildur Salvör Back-
man.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Tónleikamessa kl. 20 því Kór Linda-
kirkju, sem heldur tónleika bæði í Borgarnesi
og Stykkishólmi um helgina, syngur undir
stjórn Óskars Einarssonar. Fermingarbörn eru
sérstaklega boðin velkomin ásamt fjöl-
skyldum sínum. Í tilefni af kristniboðsdeg-
inum verður fjallað um kristniboðið og sam-
skot tekin sem renna til
Kristniboðssambandsins.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Kristján Þór Sverrisson kristniboði segir frá
starfi kristniboðssambandsins. Félagar úr kór
Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn
Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur
er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnu-
dagaskólinn hefst í kirkjunni og færist svo í
safnaðarheimilið, umsjón hafa Jónína Ólafs-
dóttir, Katrín Helga Ágústdóttir og Ari Agn-
arsson. Hressing og samfélag á Torginu á eft-
ir.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Guðsþjónusta og
barnastarf 11. nóv. kl. 14.
Ath. látinna verður minnst í messunni. Séra
Pétur Þorsteinsson prédikar og þjónar fyrir
altari og meðhjálpari er Petra Jónsdóttir.
Barnastarfið á sínum stað í umsjón Heið-
bjartar og Markúsar. Gestakór heimsækir
kirkjuna (söngvinir) og mun leiða messusvör
og sálmasöng og syngja undir stjórn organist-
ans, Kristjáns Hrannars Pálssonar.
Ólafur Kristjánsson mun taka vel á móti öllum
og boðið verður upp á maul eftir messu.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós | Messa
sunnudag kl. 14. Kveikt verða ljós í minningu
látinna ástvina og sveitunga. Kirkjukór Reyni-
vallaprestakalls syngur undir stjórn Guð-
mundar Ómars Óskarssonar organista. For-
maður sóknarnefndar, Sigríður Klara
Árnadóttir, les ritningarlestra og tendrar minn-
ingarljós. Sóknarprestur þjónar.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60.
Ræðumaður Guðlaugur Gunnarsson. Barna-
starf. Túlkað á ensku.
SELFOSSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11.
Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Eyrúnar
Jónasdóttur. Stundin er í umsjón Jóhönnu Ýrar
og sr. Ninnu Sifjar. Súpa í safnaðarheimilinu
gegn vægu gjaldi að messu lokinni.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Óli og Bára leiða samveruna. Almenn guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju
leiðir söng. Organisti er Tómas Guðni Eggerts-
son.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg-
unn kl. 10. Sr. Ragnheiður Erla Bjarnadóttir tal-
ar um altaristöflur og íslenska málara. Guðs-
þjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Ása
Laufey Sæmundsdóttir þjónar. Jóna G. Kol-
brúnardóttir sópran syngur einsöng. Friðrik
Vignir Stefánsson er organisti. Leiðtogar sjá
um sunnudagaskólann. Kammerkórinn syngur.
Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu.
Leshópur um Lúther með dr. Gunnari Kristjáns-
syni á mánudagskvöld kl. 20. Stund með eldri
bæjarbúum á Skólabrautinni þriðjudag kl.
13.30. Kyrrðarstund miðvikudag kl. 12.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11
sunnudag. Prestur er Óskar H. Óskarsson í
Hruna. Organisti er Jón Bjarnason. Almennur
söngur.
SÓLHEIMAKIRKJA | Messa sunnudag kl.
14. Sr. Sveinn Alfreðsson þjónar fyrir altari og
prédikar. Organisti er Ester Ólafsdóttir. Bæn:
María K. Jacobsen. Meðhjálpari er Valdís Ólöf
Jónsdóttir. Reynir Pétur Steinunnarsson leikur
á munnhörpu fyrir messuna. Kaffi í Grænu
könnunni eftir messu.
VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa | Guðsþjón-
usta kl. 13.30. Söngkór Villingaholts- og
Hraungerðissóknar syngur, organisti er Ingi
Heiðmar Jónsson. Prestur er Ninna Sif Svav-
arsdóttir.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Henn-
ing Emil Magnússon prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt messuþjónum. Kór Vídalínskirkju
syngur og organisti er Jóhann Baldvinsson.
Sunnudagaskóli á sama tíma. Boðið upp á
kaffi og djús að lokinni messu.
VÍÐIDALSTUNGUKIRKJA | Fjölskyldumessa
kl. 14. Foreldrar og forráðamenn hvattir til að
taka börnin í kirkju. Organisti er Elínborg Sig-
urgeirsdóttir, prestur er Guðni Þór Ólafsson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Fjöl-
skylduhátíð kl. 11. Börn úr Skólahljómsveit
Víðistaðaskóla spila undir stjórn Vigdísar Klöru
Aradóttur. Hressing eftir stundina.
Orð dagsins:
Trú þín hefur gjört þig
heila
(Matt. 9)
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Neskaupstaður Norðfjarðarkirkja
Kristniboðsdagurinn
11. nóvember 2018
Kristniboðsdagur þjóðkirkjunnar er á morgun:
Dagskrá í tilefni dagsins:
Útvarpsguðsþjónusta frá Hjallakirkju, Skúli Svavarsson kristniboði
prédikar, Sunna Dóra Möller sóknarprestur þjónar fyrir altari.
Kristniboðsins er minnst í guðsþjónustum dagsins.
Kristniboðsalmanakinu 2019 er víða dreift í kirkjum landsins.
Kaffisala Kristniboðsfélags karla verður í Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58-60 kl. 14-16:30.
Samkoma í Kristniboðssalnum kl. 17. Guðlaugur Gunnarsson
kristniboði flytur hugvekju.
Þriðjudaginn 13. nóvember kl. 20: Samkoma í félagsheimili KFUM
og KFUK, Sunnuhlíð 12, Akureyri. Ragnar Gunnarsson framkvæmda-
stjóri Kristniboðssambandsins segir frá og flytur hugvekju.
Tekið er við gjöfum til kristniboðsins í kirkjum landsins.
Gjafareikningur 0117-26-002800. Kennitala 550269-4149.
Basarinn, nytjamarkaður Kristniboðssambandsins í Austurveri,
Háaleitisbraut 68, er opinn virka daga kl. 11-18 og laugardaga
kl. 13-16.
Samband íslenskra kristniboðsfélaga sik.is
...í trú, von og kærleika
Þjóðkirkjan
- kærleiksþjónustusvið