Morgunblaðið - 10.11.2018, Blaðsíða 52
Sýningin Innrás IV eftir Margréti
Helgu Sesseljudóttur verður opnuð
í Listasafni Reykjavíkur –
Ásmundarsafni við Sigtún í dag kl.
16. Meðal þess sem Margrét nýtir í
list sinni er fundið efni en einnig
notast hún við sjálfa sig til þess að
skapa skúlptúra og upplifanir. Sýn-
ingarstjóri er Sigurður Trausti
Traustason.
Innrás Margrétar
Helgu í Ásmundarsafni
LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 314. DAGUR ÁRSINS 2018
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.108 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Skagamaðurinn ungi Arnór Sig-
urðsson er í fyrsta skipti í A-
landsliðshópi karla í knattspyrnu
en Erik Hamrén valdi í gær 25 leik-
menn fyrir leikina gegn Belgíu og
Katar sem fram fara dagana 15. og
19. nóvember. Fimm leikmenn eru
forfallaðir vegna meiðsla og þá er
Ragnar Sigurðsson í leikbanni. Egg-
ert Gunnþór Jónsson gæti leikið
sinn fyrsta landsleik í sex ár. » 1
Arnór í landsliðinu
í fyrsta skipti
Bergljót Arnalds syngur einsöng
með Hörpukórnum og hljómsveit á
tónleikum í Selfosskirkju á morgun
kl. 16 undir stjórn Guðmundar
Eiríkssonar píanóleikara. Frumflutt
verður lagið Fiðrildavængir sem
Bergljót samdi fyrir Guðrúnu Laxdal,
dóttur Jóns Laxdal tónskálds og El-
ínar konu hans, en Guðrún var amma
söngkonunnar. Einnig mun
Hörpukórinn frum-
flytja útsetningu
kórstjórans á lag-
inu „Speak
Softly Love“ úr
Godfather sem
á íslensku nefn-
ist „Mæltu hljótt“.
Jafnframt syngur
Bergljót nokkur ein-
söngslög á frönsku.
Bergljót og Hörpu-
kórinn í Selfosskirkju
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég mun halda áfram að búa til kok-
teila á meðan mér finnst það
skemmtilegt. Ég held áfram á með-
an ég er hamingjusöm,“ segir Þór-
hildur Kristín Lárentsínusdóttir
sem sigraði í kokteilakeppninni
Brennivín Tikitail 2018 sem haldin
var á miðvikudagskvöld. Þórhildur
er 22 ára og hefur starfað sem bar-
þjónn meðfram námi síðustu fjögur
ár. Hún er nú á fyrsta ári í lögfræði
við Háskóla Íslands. Áður stundaði
hún nám í Kvikmyndaskóla Íslands.
Brennivín í stað romms
Kokteilakeppni þar sem íslenskt
brennivín er í aðalhlutverki er haldin
á hverju ári. Að þessu sinni fór hún
fram á Miami Cocktail Bar á Hverf-
isgötu 33. Þema keppninnar nú voru
svokallaðir Tiki-kokteilar en gerð
var krafa um að brennivín skyldi
vera í forgrunni bragðs og lyktar af
drykknum.
„Tiki-þemað kemur frá Kyrrahaf-
inu en það voru Kanar sem bjuggu
til þessa menningu á fjórða áratug
síðustu aldar. Venjulega eru Tiki-
kokteilar gerðir með rommi en þetta
var íslenska aðferðin að Tiki,“ segir
Þórhildur, sem er barþjónn á Tapas-
barnum.
„Ég bað fólkið í salnum að fara
með mér aftur til Íslands árið 1933.
Ég notaði íslenskt hráefni sem þá
var til í kokteilinn; brennivín sem ég
lét liggja í eik, mysu en í þá daga var
ekki hægt að fá lime, rabarbara-
þykkni, berjalíkjör sem við bjuggum
til sjálf – berin komu í stað ferskra
ávaxta – og rauðvín frá Torres.
Hérna fékkst auðvitað spænskt
rauðvín eftir að banninu var aflétt
þegar Spánverjar hótuðu að hætta
að kaupa af okkur fisk og Torres var
fyrsta vínið sem var flutt inn. Þenn-
an kokteil bar ég fram á eldgosi sem
ég bjó til sjálf,“ segir Þórhildur.
Fer til New Orleans
Ellefu keppendur tóku þátt í kok-
teilakeppninni á miðvikudag eftir að
dómnefnd valdi úr hópi umsækj-
enda. Dæmt var eftir bragði, lykt,
heildarhugmynd og útliti kokteilsins
ásamt fagmennsku, framreiðslu og
framsetningu keppenda. Þá þreyttu
keppendur skriflegt próf þar sem
reyndi á þekkingu þeirra á brenni-
víni og sögu þess.
Fyrir sigurinn hlýtur Þórhildur að
launum ferð á Tales of The Cocktails
í New Orleans, eina virtustu kokteil-
hátíð heims. Í dómnefnd sátu Joe
Spiegel, stofnandi Brennivín Am-
erica, Hlynur Árnason, þróunar-
stjóri brennivíns hjá Ölgerðinni, og
Kári Sigurðsson, sigurvegari keppn-
innar árið 2015.
Ljósmynd/Einar Ingi Sigmundsson
Sigurvegari Þórhildur Kristín Lárentsínusdóttir sló í gegn á Miami Cocktail Bar. Þemað var Ísland árið 1933.
Notaði rabarbara og
mysu í sigurkokteilinn
Þórhildur Kristín sigraði í kokteilakeppni brennivíns