Fréttablaðið - 02.03.2019, Side 28

Fréttablaðið - 02.03.2019, Side 28
Fyrirferð RÚV og sam-félagsmiðlar eru stór hluti þess vanda sem einkareknir fjölmiðlar standa frammi fyrir. L i l j a A l f r e ð s d ó t t i r menntamálaráðherra hefur boðað aðgerðir til þess að létta undir með þessum miðlum sem margir róa líf- róður. Blaðamaður tók þrjá þing- menn og fyrrverandi blaðamenn tali, til þess að grennslast fyrir um álit þeirra á fjölmiðlafrumvarpi ráðherrans, sem nú liggur í sam- ráðsgátt stjórnvalda. Þar er gert ráð fyrir því að einkareknir fjölmiðlar geti sótt um styrki í formi endur- greiðslu á allt að 25 prósentum af rekstrarkostnaði ritstjórnar. Fyrir styrkveitingunni eru sett skilyrði svo sem að efni fjölmiðils sé fjöl- breytt og fyrir allan almenning, byggist á fréttum, fréttatengdu efni og samfélags umræðu. 50 milljóna króna þak verður sett á hámarks- fjárhæð styrkja . Hvernig líst ykkur á hugmyndir Lilju? Óli Björn: Eigum við ekki að orða þetta kurteislega? Ég held að ráðherra geri sér grein fyrir því að staðan er alvarleg og að það sé nauðsynlegt að grípa til aðgerða. En eins og frumvarpið lítur út er þetta ekki besta leiðin, sennilega sú versta. Vandinn í þessu öllu er sá að á meðan menn taka ekki grund- vallarákvarðanir um að reyna að jafna samkeppnisstöðu á fjölmiðla- markaði með því að taka á Ríkisút- varpinu eru menn að finna ein- hverjar leiðir, millifærslusjóði sem er eins óheilbrigt og hægt er. Ekki í aðdáendaklúbbnum En Lilja segir á móti að með þessum hætti séu ýmsar greinar styrktar, b ó k a ú t g á fa , k v i k m y n d a g e rð, nýsköpun og svo framvegis? Óli Björn: Á meðan menn hafa ekki burði, og þá er ég ekki að tala um ráðherrann sérstaklega, til þess að horfast í augu við fyrirferð Rík- isútvarpsins þá er til lítils að vinna. Nú er ég ekki í aðdáendaklúbbi Ríkisútvarpsins og raunar ekki talsmaður þess að ríkið sé að vasast í fjölmiðlarekstri yfir höfuð, þó ég skilji rökin fyrir því. En ef menn vilja á annað borð að ríkið standi í fjölmiðlarekstri, reki Ríkisútvarp, þá skulum við skilgreina það hlut- verk og umsvifin með þeim hætti að þau skekki ekki stöðu sjálfstæðra fjölmiðla. Þinn flokkur hefur oft haldið utan um málaf lokkinn, en ekki tekið á þessu? Óli Björn: Einhver myndi halda því fram að í tíð Sjálfstæðisflokks- ins, eiginlega allt frá því þegar Ríkisútvarpinu er breytt í opin- bert hlutafélag og útvarpsgjöld innleidd, þá hafi fjárhagsleg staða Ríkisútvarpsins stöðugt verið að styrkjast. Sé raunar orðin blómleg. Svo ef menn halda því fram að Sjálf- stæðisflokkurinn sé sérstakur and- stæðingur Ríkisútvarpsins þá væri það sérkennileg aðferð til þess að sýna það í verki. Ég held að það sé sanngjarnt að gagnrýna Sjálfstæðis- f lokkinn fyrir það að hafa ekki tekist á við það að móta umhverfi Ríkisútvarpsins, hlutverk þess og umsvif eins og nauðsynlegt er. Það verður hins vegar aldrei gert í pólit- ísku stríði. Var þetta ekki sæmilega dipló- matískt? spyr Óli Björn og hlær. Kolbeinn tekur orðið. „Fólk getur haft skoðanir á umfangi og eðli RÚV. Ég er sammála því að við eigum að skoða hvert á að vera hlut- verk almannaútvarps. Við erum ekki að fara að gera neitt einn, tveir og þrír. Við þurfum hins vegar að bregðast við þeirri stöðu sem er meðal almennra fjölmiðla strax. Í staðinn fyrir að fara að agnúast út í þessar tillögur, þá finnst mér að allar aðgerðir í þessu veru, sem styrkja stöðu þessara miðla, séu góðar. Það má áreiðanlega gera breytingar, en við erum að minnsta kosti komin á þann stað að hér eru komnar fram tillögur, sem beinlínis verða til þess að efla fjölmiðla. Það er frábært. Við höfum öll reynslu af fjölmiðlum, en við erum að tala um umhverfi sem við höfum aldr- ei séð áður. Áskoranir sem kalla á að við séum tilbúin að skoða allar leiðir. Óli Björn talar um milli- færslusjóð, sem er ekkert neikvætt í mínum huga. Mér finnst gott að við séum komin á það stig að geta rætt almennt um stöðu fjölmiðla og eðli. Umræðan um fjölmiðla síðustu árin hefur nánast einungis snúist um RÚV á auglýsingamarkaði og áfengisauglýsingar. Viðskiptamódel á fallandi fæti Það er verið að ræða stöðu sjálf- stæðra miðla og RÚV tekur allt súrefnið. Er það birtingarmynd vandans? Kolbeinn: Við erum búin að búa til þá stöðu að hafa búið til öfluga auglýsingasöludeild í skjóli ríkisins. Ég átta mig á því. Ég velti því fyrir mér, fyrst hún er þarna, væri leið að hluti af þeirra tekjum færi til hinna miðlanna? Ég hins vegar efast um það sem maður heyrir suma segja, að ef RÚV hyrfi af auglýsingamark- aði þá sé hægt að deila þeim tekjum niður á hina miðlana. Ég held að margir auglýsi á RÚV af því að það er RÚV. Hanna Katrín: Viðskiptamódel hefðbundinna miðla hefur verið á fallandi fæti, allt frá því að fyrstu vefmiðlarnir komu og síðan eru tveir áratugir. Stór ástæða er sam- félagsmiðlarnir, auglýsingatekjur eru að dreifast, fara úr landi. Fólk er að fara sem neytendur á fjölmiðla- umfjöllun úr landi. Allt landslagið er á f leygiferð. Ég er sannfærð um að stjórnvöld séu ekki besti aðilinn til að vera forspá um það hvernig fjölmiðlamarkaðurinn mun þró- ast. Þannig finnst mér þetta röng leið, að stjórnvöld setji skilyrði fyrir styrkjum sem við vitum ekki hvernig þroskast eða hvort standist tímans tönn. Ég hef farið í gegnum umsagn- irnar. Það eru margar athuga- semdir sem miðast vitaskuld af hagsmunum þess miðils sem á í hlut og þeir eru mismunandi. Ég vil hafa það þannig. Ég hef ekki enn séð neitt í spilunum sem segir, það er best að fjölmiðlar séu inni í þessum eða hinum rammanum, líkt og frumvarpið gerir ráð fyrir. Ég trúi því að það sé ekki hægt að fara inn í umræðu um fjölmiðla- markað án þess að ræða RÚV. Vita- skuld er markaðurinn best til þess fallinn að finna út úr því hvernig markaðurinn þróast, en það er erfitt þegar það er stofnun inni á auglýs- ingamarkaði, með sitt forskot, að keppa við einkamiðla í ójöfnum leik um tekjur. Það er ekki hægt að taka þessa umræðu með RÚV út fyrir sviga. Fátækari flóra Óli Björn: Við erum að reyna að búa til jarðveg sem tryggir fjölbreytta flóru fjölmiðla. Eins og frumvarpið lítur út, virkar það í hina áttina. Það mun verða fátækari f lóra, vegna þess að það skekkir samkeppnis- stöðu einkareknu fjölmiðlanna. Ef við teljum nauðsynlegt að ríkið komi að þessu, þá vil ég að við horf- um til skattkerfisins. Ég hef nefnt að fella niður tryggingargjald af miðl- Ekki náð takti eftir að fyrsta fréttin fór „viral“ Blaðamennska er sjúkdómur, segir Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokks. Óli Björn, Kolbeinn Proppé, VG og Hanna Katrín Friðriksson, Viðreisn, eru öll fyrrverandi blaðamenn. Sammála um að ef ekkert verði gert muni fækka í flóru sjálfstæðra fjölmiðla. Óli Björn stofnaði Viðskiptablaðið árið 1994 og ritstýrði. Hanna Katrín vann í rúman áratug á Morgunblaðinu, Kolbeinn starfaði um árabil á Fréttablaðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ SANN- GJARNT AÐ GAGNRÝNA SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN FYRIR AÐ HAFA EKKI TEK- IST Á VIÐ AÐ MÓTA UM- HVERFI RÍKISÚTVARPSINS Óli Björn Kárason Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is 2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 8 -1 3 0 8 2 2 7 8 -1 1 C C 2 2 7 8 -1 0 9 0 2 2 7 8 -0 F 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.