Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 54

Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 54
Bakarí / Kaffihús Starfskraftur óskast til afgreiðslustarfa í bakarí frá kl. 7:00 -15:00 virka daga. Íslensku kunnátta skilyrði og ekki yngri enn 20 ára. Uppl. sendist á : sveinsbakari@sveinsbakari.is Ertu nærandi? Við leitum að jákvæðum einstaklingi í mötuneyti okkar að Stuðlahálsi sem hefur ánægju af því að gefa svöngu fólki hollan og góðan mat að borða. STARFSMAÐUR Í MÖTUNEYTI Helstu verkefni og ábyrgð • Aðstoð við undirbúning hádegisverðar og kaffitíma • Áfyllingar og afgreiðsla • Uppvask og frágangur Í fjarveru matreiðslumanns • Matreiðsla á hádegisverði • Yfirumsjón með morgun- og síðdegiskaffi • Umsjón með mat- og veisluföngum fyrir fundi og uppákomur Hæfniskröfur • Reynsla af sambærilegu eða tilheyrandi menntun • Áhugi á heilsueflandi matargerð • Snyrtimennska áskilin • Góð framkoma og lipurð í samskiptum Viðkomandi þarf að geta leyst matreiðslumann af, meðal annars í sumarfríum og leitum við að einstaklingi sem er menntaður matráður eða hefur reynslu af eldamennsku fyrir stóran hóp. Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 18. mars nk. Umsóknir óskast fylltar út á vinbudin.is Nánari upplýsingar veitir: Thelma Kristín Snorradóttir – starf@vinbudin.is, 560 7700 ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna ÁTVR er að vera eitt af fremstu þjónustufyrirtækjum landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar. Lögð er áhersla á að vinnustaðurinn sé öruggur, heilsueflandi og skemmtilegur þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð. Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum. LAUS TIL UMSÓKNAR STAÐA SKÓLASTJÓRA REYKHÓLASKÓLA Reykhólahreppur auglýsir stöðu skólastjóra Reykhólaskóla lausa til umsóknar. Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki. Í skólanum eru um 60 nemendur. Reykhólar er sveitarfélag með um 270 íbúa og þar af býr um helmingur þeirra á þéttbýlinu á Reykhólum. Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu. Starfssvið: • Að veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróu- nar í skólastarfi • Að leiða samstarf nemenda, starfsmanna, heimila og skóla- samfélagsins í heild • Að stýra og bera ábyrgð á rekstri skólans og daglegri starfsemi Menntunar- og hæfniskröfur: • Leyfisbréf leik- og/eða grunnskólakennara • Kennslureynsla í grunnskóla er skilyrði • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og uppeldis- og menn- tunarfræða er kostur • Reynsla af störfum á sviði stjórnunar, rekstrar og þróunar- starfi er kostur • Hæfni í mannlegum samskiptum • Metnaður, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni og leiðtogahæ- fileikar Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra framtíðarsýn í skólamálum, er skapandi og metnaðarfullur. Staðan er laus frá 1. júní 2019. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Umsókn skal fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (feril- skrá), leyfisbréf til kennslu, kynningarbréf og meðmæli. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um starfið. Upplýsingar um starfið veitir Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Reykhólahrepps, í síma 430-3200 eða í gegnum netfangið sveitarstjori@reykholar.is Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2019. Umsóknum skal skilað til sveitarstjóra Reykhólahrepps á netfangið sveitarstjori@reykholar.is Samtök fjármálafyrirtækja leita að lögfræðingi Í starfinu felst fjölbreytt samstarf við aðildarfélög SFF svo sem vegna innleiðingar EES-gerða á fjármálamarkaði, gerð umsagna um þingmál og stjórnvaldsfyrirmæli og samskipti við eftirlits- og stjórnsýslustofnanir fyrir hönd aðildarfélaga. Í starfinu felst einnig þátttaka í undirbúningi stefnumótunar samtakanna í ýmsum málum og aðkoma að alþjóðlegu samstarfi. Menntunar- og hæfnikröfur: ▶ Embættis- eða meistarapróf í lögfræði. ▶ Hæfni til að koma frá sér efni í ræðu og riti, bæði á ís- lensku og ensku. Þekking á Norðurlandamáli er kostur. ▶ Sveigjanleiki, sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum. ▶ Nákvæmni, vandvirkni og metnaður. ▶ Þekking á lagaumhverfi fjármálafyrirtækja, þ.m.t. vátryggingafélaga, er kostur. ▶ Þekking á samkeppnisrétti er kostur. ▶ Starfsreynsla úr fjármálafyrirtæki þ.m.t. vátrygginga- félagi, stjórnsýslu eða á öðrum vettvangi sem nýtist í starfi er kostur. ▶ Framhaldsnám sem nýtist í starfi er kostur. Upplýsingar veitir Jóna Björk Guðnadóttir, yfir- lögfræðingur SFF, í síma 591 0400. Umsóknir berist á skrifstofu SFF í Húsi atvinnu- lífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík eða í tölvu- pósti á jona@sff.is. Umsóknarfrestur er til 15. mars nk. SFF eru heildarsamtök fjármálafyrirtækja á Íslandi. Aðildarfélög samtakanna eru 27 talsins. Tilgangur og meginverkefni samtakanna er að vera málsvari fjármálafyrirtækja og stuðla að því að starfskilyrði þeirra séu samkeppnishæf. SFF eru málsvari aðildarfélaga samtakanna gagnvart stjórnvöldum, eftirlitsstofnunum, almenningi og atvinnulífi og aðstoða þau við að byggja upp heilbrigt og traust fjármálakerfi. SFF eiga aðild að bæði Evrópsku bankasamtökunum (EBF) og Samtökum evrópskra tryggingarfélaga (IE). Hjá SFF starfa sex starfsmenn sem búa yfir margvíslegri sérfræðiþekkingu. SAMTÖK FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJA SKÓLALIÐI Fjölbrautaskólinn í Garðabæ auglýsir eftir skólaliða sem m.a. annast daglega hreinsun í skólanum og þrif á skólabrú og hefur eftirlit með umgengni nemenda í skólanum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 100% og laun eru samkvæmt stofnanasamningi FG við SFR. Leitað er að traustum og ábyggilegum starfsmanni sem hefur góða samskiptahæfni, er stundvís, sýnir frumkvæði í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum. Jákvætt viðhorf, góð samskiptahæfni og áhugi á að starfa á öflugum vinnustað eru atriði sem horft er til við ráðningu í starfið. Umsóknum skal skilað til Kristins Þorsteinssonar skóla- meistara, kristinn@fg.is, eða Snjólaugar Bjarnadóttur aðstoðarskólameistara, snjolaugb@fg.is, sem einnig gefa nánari upplýsingar. Upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans: www.fg.is 12 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 8 -7 A B 8 2 2 7 8 -7 9 7 C 2 2 7 8 -7 8 4 0 2 2 7 8 -7 7 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.