Fréttablaðið - 02.03.2019, Síða 63

Fréttablaðið - 02.03.2019, Síða 63
RARIK - Mars 2019: 167x214mm RARIK ohf • Dvergshöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 528 9000 • www.rarik.is Rafvirki, mælaumsjón á Höfn í Hornafirði RARIK ohf auglýsir eftir rafvirkja til starfa á starfsstöð fyrirtækisins á Höfn. Hér er um fjölbreytt starf að ræða við rekstur dreifikerfis fyrirtækisins. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um. • Umsjón með orkumælum • Tenging nýrra viðskiptavina • Samskipti við rafverktaka • Þjónusta við viðskiptavini • Gagnaskráning og undirbúningur verkefna Helstu verkefni • Sveinspróf í rafvirkjun • Öryggisvitund • Almenn tölvukunnátta • Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt • Hæfni í mannlegum samskiptum Hæfniskröfur Nánari upplýsingar veitir Finnur Freyr Magnússon, deildarstjóri rekstrarsviðs á Austurlandi eða starfsmannastjóri RARIK í síma 528 9000. Umsóknarfrestur er til 18. mars 2019 og skal skila umsóknum með ferilskrá á www.rarik.is/atvinna. RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa raforku auk þess að afla, dreifa og annast sölu á heitu vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200, aðalskrifstofa er í Reykjavík og um 20 starfsstöðvar eru dreifðar vítt og breitt um landið. Aðstoðarskólastjóri Laugarnesskóla Skóla- og frístundasvið Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Laugarnesskóli er grunnskóli með um 540 nemendur í 1.-6. bekk. Skólinn er Réttindaskóli Unicef og Barnasáttmálinn er lagður til grundvallar í öllu skólastarfinu. Einkunnarorð skólans lífsgleði, nám, samvinna, kærleikur og ósk eru kjarni skólastefnu Laugarnesskóla. Kennsluhættir í Laugarnesskóla einkennast af fjölbreytni þar sem skólinn reynir að koma til móts við ólíkar þarfir og áhuga nemenda. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í að stjórna og leiða faglegt starf í lýðræðislegu skólaumhverfi. Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2019. Upplýsingar um starfið gefur Sigríður Heiða Bragadóttir skólastjóri Laugarnesskóla sigridur.heida.bragadottir@rvkskolar.is. Sími 411 7444 Starfssvið • Að vera í forystu um mótun og framkvæmd faglegrar stefnu skólans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Reykjavíkurborgar. • Að leiða faglega forystu í skólanámskrárvinnu og skólaþróunarverkefnum. • Að bera ábyrgð á og stjórna daglegri starfsemi skólans í samstarfi við skólastóra. • Að vinna að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins. • Að stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk. Menntun, reynsla og hæfni • Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. • Kennslureynsla í grunnskóla. • Viðbótarmenntun í stjórnun er æskileg og/eða reynsla af stjórnunarstörfum á grunnskólastigi. • Reynsla af faglegri forystu í skólaþróunarverkefnum. • Metnaður í starfi og áhugi á skólaþróun. • Þekking, leikni og hæfni í upplýsinga- og tæknimennt • Lipurð og færni í samskiptum. • Sjálfstæði í vinnubrögðum. • Óbilandi trú á réttindum barna og áhugi á að starfa með þeim og foreldrum þeirra. Sumarstörf hjá Ísafjarðarbæ 2019 Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar - Sundlaugarverðir og vallarstarfsmaður Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar auglýsa eftir sundlau- garvörðum í sumarstörf við sundlaugarnar á Ísafirði, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. Jafnframt er auglýst eftir öflugum starfsmanni á vallarsvæðið á Ísafirði. Æskilegast er að sundlaugarverðir geti hafið störf í lok maí 2019 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% störf í vaktavinnu. Vallarstarfsmaður hefur störf 1. maí 2019 eða eftir nánara samkomulagi. Störfin eru tímabundin til loka ágústmánaðar. Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar – Yfirflokkstjóri Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir yfirflokkstjóra. Vinnuskólinn er útiskóli sem í sumar hefur aðsetur í Fjarðarstræti og Sundhöllinni, Austurvegi 9. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf í lok maí 2019 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% starf til þriggja mánaða. Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar - Almennur flokkstjóri Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar er útiskóli þar sem starfið gefur einstaka möguleika á að njóta útivistar og eiga þátt í að prýða umhverfið í Ísafjarðarbæ. Óskað er eftir ábyrgðarful- lum flokkstjórum til starfa á Ísafirði og Þingeyri. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf í lok maí 2019 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% störf til þriggja mánaða. Starfsmenn í garðyrkjudeild Ísafjarðarbæjar Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir starfsmön- num til sumarstarfa í garðyrkjudeild. Um er að ræða 100% störf við skemmtilega útivinnu á tímabilinu 14. maí til 16. ágúst eða eftir nánara samkomulagi. Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar - Sumarstarfsmenn Auglýst er eftir sumarstarfsmönnum við hin ýmsu störf hjá Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar (áhaldahúsi). Leitað er eftir starfsfólki 18 ára og eldra sem hefur áhuga á útivinnu. Starfstímabil er 14. maí til 16. ágúst og er vinnutími milli kl. 07.20 - 17.00 virka daga, nema til hádegis á föstudögum. Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar - Sumarstarfsmenn Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar óskar eftir sumarstarfsmön- num í blönduð störf við málefni fatlaðra og aldraðra. Störfin sem um ræðir eru við stuðnings- og stoðþjónustu (frekari liðveisla, félagsleg heimaþjónusta), hæfingu, sólarhringsþ- jónustu og sumarþjónustu við fötluð börn. Um er að ræða ýmist dag- eða vaktavinnu þar sem starfshlutfall er 40-100%. Starfstímabil er frá 20. maí til loka ágúst. Upplýsingamiðstöð – Sumastarfsmenn Upplýsingamiðstöð Vestfjarða á Ísafirði óskar eftir að ráða tvo sumarstarfsmenn. Í starfinu felst m.a. að veita gestum upplýsingamiðstöðvar aðstoð og upplýsingar eftir þörfum, einkum varðandi Vestfirði en þó einnig um landið í heild. Um er að ræða fullt starf í júní, júlí og ágúst. Byggðasafn Vestfjarða – Gæslumaður Byggðasafn Vestfjarða auglýsir eftir gæslumanni í Turn- húsið í 100% starf tímabilið frá byrjun maí fram til 1. ágúst 2019. Um er að ræða almenna afgreiðslu og upplýsingave- itu um sýningar safnins og safnasvæðið, auk ýmiskonar aðstoðar og þrifa. Hafnir Ísafjarðarbæjar - Skipstjóri Hafnir Ísafjarðarbæjar auglýsa laust til umsóknar 100% starf skipstjóra í sumarafleysingu frá 1. maí til 30. september. Skipstjóri fer m.a. með stjórn lóðsbáts Ísafjarðarbæjar og ber almenna ábyrgð í samræmi við skyldur skipstjóra. Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveit- arfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til og með 19. mars 2019. Frekari upplýsingar um störfin má nálgast á vef Ísafjarðar- bæjar (www.isafjordur.is) undir „Laus störf“. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störfin. - Við þjónum með gleði til gagns - ÍSAFJARÐARBÆR 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 8 -6 2 0 8 2 2 7 8 -6 0 C C 2 2 7 8 -5 F 9 0 2 2 7 8 -5 E 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.