Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 88

Fréttablaðið - 02.03.2019, Page 88
svaraði amman. Ekki er að efa að það val hefur orðið gott. Síðan ætl- aði Anna vitanlega að velja bækur fyrir sjálfa sig, enda vön að lesa mikið. Næst rakst blaðamaður á Fjólu Höskuldsdóttur sem var með fulla kerru af bókum. „Ég kaupi nokkuð af barnabókum fyrir barnabörnin og reyndar fyrir mig líka því ég þarf að lesa Fíusól, ég þarf að kynnast henni og lesa fyrir börnin,“ sagði hún. Meðal annarra barnabóka sem Fjóla keypti voru Herramennirnir skemmtilegu en hún sagðist ætla að rifja upp gömul kynni við þá. Þarna var líka Litið inn í líkamann. „Hún er fyrir börnin af því þeim finnst svo gaman að skoða og fletta f lipum,“ sagði Fjóla. Sturlunga var líka í bunkanum. „Ég þarf að lesa hana aftur og auk þess á ég hana ekki,“ sagði hún. Líkt og svo margir aðrir mætir Fjóla á bókamarkaðinn ár hvert og hefur gert síðan hún var krakki. Einmitt þannig á það að vera. Fjölmennt var á Bóka-markaði Íslenskra bóka-útgefenda þegar blaða-maður leit þar við í miðri viku. Áhugasamir kaup-endur grúfðu sig yfir bækur og gengu á milli borða í leit að lesefni. Ekki er hægt að kvarta undan úrvalinu og víst að enginn fer tómhentur heim. Blaðamaður mætti Þór Magnús- syni og Maríu Heiðdal með fulla kerru af bókum en þau voru ein- mitt nýbúin að borga þegar blaða- maður sveif á þau. „Við keyptum bæði barnabækur og fræðibækur. Ég keypti meira að segja bók um kommúnismann af því ég veit svo lítið um hann,“ sagði Þór. „Ég fór alltaf á Bókamarkaðinn þegar hann var í Listamannaskálanum og keypti sitthvað, þar fengust bækur fyrir krónu, tvær krónur og fimm krónur. Hérna eru bækur líka á gjafverði.“ „Ég keypti Pálssögu eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson og svo heklbók sem ég ætla að gefa dóttur minni,“ sagði María. Í kerrunni voru meðal annarra góðra bóka Njála og ævi- saga Hannesar Hafstein eftir Krist- ján Albertsson og auk þess barna- bækur fyrir börnin í fjölskyldunni. Að kynnast óvininum Ragna Halldórsdóttir var ákveðin í að kaupa íslensk-ítalska orðabók. „Einu sinni var ég að læra ítölsku og fór mikið til Ítalíu þannig að það er gott að eiga þessa bók.“ Hún var líka að leita að góðum krimma og ætlaði að kaupa barnabækur fyrir barnabörnin. Ragna hefur fyrir venju að fara á Bókamarkaðinn ár hvert. „Ég ólst upp við það að fara á Bókamarkaðinn og á fornbóka- sölur,“ sagði hún. Paolo Turchi varð næst á vegi blaðamanns. „Ég er að kaupa hitt og þetta sem ég á ekki. Þetta eru aðallega bækur um trúmál og guð- leysi,“ sagði hann. Guðfræði Mar- teins Lúthers og Bókin um Biblíuna voru þar á meðal. „Ég er mikill trú- leysingi en eins og allir trúleysingjar þarf ég að kynnst óvininum,“ sagði hann. Hann er líka með í kerrunni Ástarsögur Íslendinga að fornu eftir Gunnar Karlsson. „Þetta er bók sem fór fram hjá mér og nú ætla ég að lesa hana,“ sagði hann. Stefnumót við Fíusól Anna Geirsdóttir var mætt með barnabarn sitt Birki Rafn Geirsson en hann var mjög önnum kafinn við að skoða bók sem heitir Litli slökkviliðsbíllinn og mátti lítið vera að því að líta upp. Hann er að sögn ömmu sinnar mikill bílakarl. „Ég er leikskólakennari og veit að lestur skiptir gríðarlega miklu máli. Það hefur mikið uppeldislegt gildi að lesa góðar bækur fyrir börn,“ sagði Anna. Hún er spurð hvort Birkir fái sjálfur að velja sér bækur eða hvort hún velji fyrir hann. „Hann fékk að velja þessa en svo ætla ég að velja,“ ÉG KEYPTI MEIRA AÐ SEGJA BÓK UM KOMMÚN- ISMANN AF ÞVÍ ÉG VEIT SVO LÍTIÐ UM HANN. Markaður bókanna Bókaunnendur láta sig ekki vanta á hinn árlega Bókamarkað sem nú stendur sem hæst undir stúkunni á Laugardalsvelli. Bókaunnendur flykkjast vitanlega á bókamarkaðinn en þar er svo sannarlega hægt að gera reyfarakaup. Þór og María voru með fulla kerru af bókum. Þar var að finna skáld- sögur, ævisögur, fræðibækur og barnabækur. Þór man vel eftir bókamarkað- inum í Lista- mannaskálanum forðum daga. Fjóla Höskulds- dóttir hafði barnabörnin í huga við inn- kaupin en hlakk- aði um leið til að kynnast Fíusól. Paolo Turchi keypti aðallega bækur um trúmál, en sjálfur er hann staðfastur trú- leysingi. Birkir Rafn kom með ömmu sinni, henni Önnu, og valdi sér bráðskemmtilega bók um lítinn slökkviliðsbíl. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Ragna Halldórs- dóttir keypti íslensk-ítalska orðabók og mundi vitaskuld líka eftir barna- börnunum sem fá sínar bækur. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is 2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 8 -3 0 A 8 2 2 7 8 -2 F 6 C 2 2 7 8 -2 E 3 0 2 2 7 8 -2 C F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.