Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.03.2019, Qupperneq 102

Fréttablaðið - 02.03.2019, Qupperneq 102
ÞÓ ÞAÐ SÉ JARÐ- SPRENGJUSVÆÐI AÐ TALA UM FEGURÐ Á ÞESSUM TÍMUM ÞÁ STEND ÉG ÓHRÆDD- UR MEÐ SJÁLFUM MÉR. Hin smágerða fegurð hversdagsins Ég teymi sjálfan mig alltaf í átt að nákvæmninni, segir Þorri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Þetta fallega olíumálverk er meðal verka á sýningunni í Galleríi Fold.Þorri Hringsson sýnir ný olíumálverk í Gall-eríi Fold, en sýningin er opnuð í dag, laugardag. „Megnið eru spánnýjar my ndir, lang f lest ar málaðar á þessu ári en nokkrar eru frá árinu 2018. Myndefnið er allt frá Aðaldal,“ segir hann. Myndirnar einkennast af mik- illi nákvæmni. Þorri er spurður af hverju hann sé svo nákvæmur. „Ég veit það ekki,“ segir hann. „Ég hef reynt að gera myndir sem ein- kennast af minni nákvæmni en það gengur ekki. Ég teymi sjálfan mig alltaf í átt að nákvæmninni en það hefur líka skilað hlutum sem ég er mjög ánægður með. Það er eitt- hvað heillandi við smáatriði sem gerir það að verkum að ég geri hluti nákvæmari en þeir þyrftu að vera.“ Spurður hvort hann styðjist við ljósmyndir segir hann: „Ég mála ekki eftir ljósmyndum en í undir- búningsvinnu nýti ég ljósmyndir þegar ég er að reyna að fanga mynd- efnið.“ Þorri hefur málað náttúrumyndir í rúm tuttugu ár. „Þegar ég byrjaði vissi ég ekkert hvað ég væri að fara út í. Fólk heldur oft að það sé auð- veldasti hlutur í heimi að mála landslagsmyndir, en það er það erf- iðasta sem ég hef málað, og hef ég þó prófað alls konar hluti.“ Myndir í höfðinu Þorri er með vinnustofu í Haga í Aðaldal en þar fæddist faðir hans, Hringur Jóhannesson listmálari. Hann segist reyna að vera þar eins mikið og mögulegt sé. „Ég er farinn að þekkja ýmsa staði í Aðaldal mjög vel. Ég mála oft sömu staðina hvað eftir annað af því að fyrir mér eru þeir alltaf nýir. Ég er með ótal mynd- ir í höfðinu en það er ekki endilega þannig að ég sé að leita að náttúru- fyrirbæri til að mála, ég þekki það þegar það kallast á við myndina í höfðinu á mér.“ Loftslagsbreytingar valda breyt- ingum á náttúrunni og spurður hvort hann hafi séð breytingar á náttúrunni í Aðaldal segir Þorri: „Eins og er sé ég ekki neitt í kort- unum sem mun spilla þeirri nátt- úru sem ég hef í kringum vinnu- stofu mína í Haga. Ég sé hins vegar hraðar breytingar á náttúrunni sem eru aðallega fólgnar í því að það er að hlýna, gróðurtímabilið er lengra og á síðustu 20 árum er að myndast skógur þar sem áður voru ekki tré.“ Fegurðin í hinu sjónræna Enginn ætti að geta neitað því að mikil fegurð er í olíumálverkum Þorra. Spurður hvort fólk nefni þessa fegurð oft við hann segir hann svo vera. „Ég leita í fegurðina. Útgangspunktur minn í myndlist er fegurðin í hinu sjónræna. Án þess að ég geri lítið úr þeim krafti sem dreg- ur annað fólk að myndlist þá get ég ekki hafnað því sem dregur mig að myndlistinni sem er fegurðin. Þó það sé jarðsprengjusvæði að tala um fegurð á þessum tímum þá stend ég óhræddur með sjálfum mér. Ég viðurkenni samt að til að byrja með var ég svolítið smeykur við þetta. Ég sé kollega mína oft dubba upp lands- lagsmyndir í einhvern konsept- búning af því þeir eru smeykir um að fegurðin sé ekki nógu merkileg. Ég er búinn að vera að mála í rúm 20 ár og er að færast nær þeirri mynd sem mig langaði til að mála þegar ég var að byrja. Þetta er ekki hin upp- hafna rómantíska fegurð Ruskins og 19. aldar málaranna. Það er hin smágerða fegurð hversdagsins sem heillar mig. Þar er hverful birta, kyrrð og stemning í hinu smáa sem er svo nálægt. Fólki er svo gjarnt að sjá það ekki af því það er að horfa á fjallið sem er vissulega fallegt líka. Ég er orðinn ósmeykur við að halda fram fegurðinni sem gildi í sjálfu sér.“ Þorri Hringsson sýnir í Galleríi Fold. Er með ótal myndir í höfðinu. Leitar í fegurðina. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is CoverIceland fagnar Góu og komandi vori með sérstökum afslætti á svalalokunum ef gengið er frá samningi fyrir 15. mars. Svalalokun lengir sumarið og veitir möguleika á eigin gróðurhúsi á svölunum þínum. Auðbrekku 10, 2. hæð, 200 Kópavogi Netfang covericeland@covericeland.is Sími 7777001 LÍFIÐ ER Á FRETTABLADID.IS Líð á frettabladid.is allar um fólk, menningu, tísku, heilsu og margt eira. Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook 2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R54 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 2 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 1 2 0 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 7 -F F 4 8 2 2 7 7 -F E 0 C 2 2 7 7 -F C D 0 2 2 7 7 -F B 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 2 0 s _ 1 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.