Morgunblaðið - 28.12.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 28.12.2018, Síða 4
Morgunblaðið/Árni Sæberg Sjúkraflutningar Fjórir voru fluttir með þyrlu til Reykjavíkur í alvarlegu ástandi eftir slysið í gær. Ljósmynd/Adolf Ingi Erlingsson Banaslys Erfiðar aðstæður voru á vettvangi slyssins. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Aðkoman að slysinu við Núpsvötn í gær var hræðileg og aðstæður afar erfiðar samkvæmt lýsingu við- bragðsaðila, sjúkraflutningamanna, hjúkrunarfræðinga og lækna hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Þetta kemur fram í greinargerð sem Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, sendi fjölmiðlum. Tilkynning um slysið barst til Neyðarlínunnar rétt fyrir klukkan tíu í gærmorgun og kom þá í ljós að jeppabifreið af Toyota Land Cruiser-gerð hefði verið ekið í gegn- um vegrið brúarinnar yfir Núps- vötn. Var Suðurlandsvegur lokaður í báðar áttir vegna slyssins um nokk- urn tíma í gær. Samkvæmt greinargerð Herdísar var lögreglumaður frá Kirkjubæjar- klaustri fyrstur á vettvang slyssins, en hjúkrunarfræðingur frá heilsu- gæslustöðinni þar fylgdi fljótlega í kjölfarið. Tveir af farþegunum voru ekki í bílnum þegar lögreglumaður- inn kom að slysstaðnum. Náðist fljótlega að losa tvo einstaklinga til viðbótar úr bílnum, en annar þeirra var þá þegar látinn. Hinir þrír voru rígfastir í jeppanum og mjög illa slasaðir. Í greinargerð Herdísar kemur fram að fáliðað hafi verið um tíma á vettvangi en að fljótlega hafi bæst í hóp lögreglumanna, heilbrigðis- starfsmanna, sjúkraflutningamanna og björgunarsveitarfólks ásamt slökkviliði með tækjabúnað. Tók að sögn Herdísar töluverðan tíma að koma búnaði að vettvangi slyssins, og var það að sögn lögreglu vegna árbakkanna. Þá tók umtals- verðan tíma að ná hinum slösuðu úr jeppanum, en hann var afar illa far- inn. Verulega tók á alla hlutaðeig- andi björgunaraðila að sjá hversu illa fólkið var slasað og var því boðað til sérstaks fundar með sálfræðingi í Vík í Mýrdal í gær. Níu banaslys á þremur árum Slysið í gær er níunda banaslysið á hringveginum á Suðurlandi á síð- ustu þremur árum, en tólf manns hafa látist í þeim. Þá var í gær liðið nákvæmlega eitt ár frá því að tvennt lést þegar rúta fór út af veginum vestan við Hunkubakka, með 44 kín- verska ferðamenn innanborðs. Herdís vekur athygli á því í greinargerð sinni að nauðsynlegt sé að skoða „hvernig má styrkja bjarg- ir á þessu svæði með sívaxandi um- ferð ferðamanna og fara yfir búnað og bjargir á fjölsóttasta ferða- mannasvæði á Íslandi“. Þá vakti Herdís athygli á að á sama tíma og þetta erfiða útkall var hefðu fjögur önnur erfið bráðaútköll verið hjá sjúkraflutningamönnum í umdæmi Suðurlands. „Því má lítið út af bregða til að mikið álag skapist hjá viðbragðsaðilum í framlínunni hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands,“ sagði Herdís sem þakkaði jafnframt öllum hlutaðeigandi fyrir fumlaus og fagleg vinnubrögð. Senda þurfti fjóra slökkviliðs- menn og einn sjúkrabíl frá höfuð- borgarsvæðinu á Suðurland vegna álagsins og sagði Jón Viðar Matt- híasson, slökkviliðsstjóri á höfuð- borgarsvæðinu við mbl.is í gær að ekki hefði verið vanþörf á. Sagði hann að hringt væri út eftir sérstöku kerfi þegar svona kæmi upp á og að menn væru duglegir að koma af frí- vaktinni þegar þörf krefði. Fann ekki fyrir hálku á brúnni Adolf Ingi Erlingsson leiðsögu- maður sagði í samtali við mbl.is í gær að aðkoman hefði verið hræði- leg. „Bíllinn var mjög illa farinn eftir að hafa flogið fram af brúnni og steypst þarna niður,“ sagði Adolf. Þegar hann hefði komið að hefði fernt verið utan við bílinn, eitt þeirra látið og þrjú enn föst í bílnum, tvö þeirra sennilega látin. „Þetta var bara ömurleg aðkoma,“ bætti hann við. Adolf Ingi sagði einnig að hann hefði ekki fundið fyrir neinni hálku á brúnni, en hann var á ferð með 19 ferðamenn í eigin bifreið þegar hann kom að slysstað. „Ég get varla ímyndað mér hvað hefur gerst sem verður til þess að hann missir stjórn á bílnum það harkalega að hann fari í gegnum vegriðið bara á miðri brúnni,“ sagði Adolf. Erfiðar aðstæður á vettvangi Heimild: Samgöngustofa 2017 1. júní Vest- an við Freysnes ✝ einn látinn 2016 17. september Við Sólheimasand ✝ einn látinn 2018 4. apríl Á móts við Höfðabrekku ✝ einn látinn 2016 20. júní Vest- an við Reynisfjall ✝ einn látinn 2017 27. desember Vestan við Hunku- bakka ✝ ✝ tvö látin 2018 27. desember Brú yfir Núpsvötn ✝ ✝ ✝ þrír látnir 2016 30. október Við Fagurhólsmýri ✝ einn látinn 2018 16. maí Vestan við Land- eyjahafnarveg ✝ ein látin Banaslys á Suðurlandsvegi 2016-2018 2018 11. janúar Við Bitru í Flóa ✝ einn látinn Grunnkort/Loftmyndir ehf.  Níu banaslys hafa orðið á Suður- landsvegi á síðustu þremur árum 4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018 Hafnarbraut 25 | 200 Kópavogi | Sími 554 0000 | www.klaki.is HVOLFARARKARA Handhægir ryðfríir karahvolfarar í ýmsum gerðum. Tjakkur vökvadrifinn með lyftigetu frá 900 kg. Halli að 110 gráðum. Vinsælt verkfæri í matvælavinnslum fiski – kjöti – grænmeti Veður víða um heim 27.12., kl. 18.00 Reykjavík 5 skýjað Hólar í Dýrafirði 5 súld Akureyri 2 rigning Egilsstaðir -1 skýjað Vatnsskarðshólar 6 alskýjað Nuuk -2 skúrir Þórshöfn 6 þoka Ósló 0 þoka Kaupmannahöfn 8 skýjað Stokkhólmur 0 heiðskírt Helsinki 0 súld Lúxemborg 0 þoka Brussel 2 heiðskírt Dublin 9 súld Glasgow 9 alskýjað London 5 þoka París 0 þoka Amsterdam 4 heiðskírt Hamborg 6 súld Berlín 5 súld Vín 6 heiðskírt Moskva -8 snjókoma Algarve 16 léttskýjað Madríd 11 heiðskírt Barcelona 12 léttskýjað Mallorca 16 alskýjað Róm 12 heiðskírt Aþena 7 léttskýjað Winnipeg -14 skýjað Montreal -12 léttskýjað New York 5 heiðskírt Chicago 4 rigning Orlando 24 léttskýjað  28. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:23 15:37 ÍSAFJÖRÐUR 12:08 15:01 SIGLUFJÖRÐUR 11:53 14:42 DJÚPIVOGUR 11:01 14:57 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á laugardag SV 8-15 og él, en hægari og léttskýjað A-til. Frost 0-7 stig en frostlaust S- og V-til. Á sunnudag Austanátt 5-13 m/s. Snjór N- og V-til og frost 0-5 stig, en regn S- og A-lands og 0-5 stig. Suðvestan 8-15 og él en léttskýjað norðaustan- og austantil á landinu. Heldur kólnandi, yfirleitt vægt frost í kvöld en frostlaust með suður- og vesturströndinni. Banaslysið við Núpsá Allir farþegarnir sjö voru með breskt ríkisfang en af ind- verskum ættum og fjölluðu flestir breskir fjölmiðlar um slysið á fréttavefjum sínum í gær. Breska ríkisútvarpið BBC, dagblöðin The Guardian og Daily Telegraph, ásamt sjón- varpsstöðinni Sky News voru á meðal þeirra sem fjölluðu um slysið. Var í umfjöllun miðlanna far- ið nokkuð yfir hinar erfiðu að- stæður sem voru á vettvangi slyssins auk þess sem rætt var við helstu viðbragðsaðila sem og Adolf Inga Erlingsson leið- sögumann sem var einna fyrst- ur á vettvang. Mikið fjallað um slysið ERLENDIR FJÖLMIÐLAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.