Morgunblaðið - 28.12.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.12.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018 Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík Sími 588 0488 | feldur.is Bestu Jóla og Nýárskveðjur Björn Bjarnason fjallar umákvörðun Japana um að segja sig úr Alþjóðahvalveiðiráðinu og hefja veiðar í við- skiptaskyni út frá reynslu Íslands. Fyrst sætti alþingi sig við veiðibann ráðsins, en síðan skapaðist samstaða um að segja sig úr því: „Tilgangurinn með úrsögn úr ráðinu var að skjóta sér undan þeirri ákvörðun og jafn- framt var sagt að komið yrði á fót nýjum samtökum ríkja við Norður- Atlantshaf, NAMMCO. Innan þeirra gætu Íslendingar fengið lögmæti fyr- ir að hefja hvalveiðar að nýju.    Seint og um síðir opnuðust augu al-þingismanna fyrir því hve vitlaus úrsögnin úr [ráðinu] var. NAMMCO dugði ekki til að skapa lögmæti fyrir hvalveiðum Íslendinga að nýju. Þá var ákveðið að ganga að nýju í Al- þjóðahvalveiðiráðið, með fyrirvara gegn hvalveiðibanninu. Úrsögnin hafði þann eina kost að gera alþingi kleift að breyta fyrri samþykkt sinni. Síðan var tekin ákvörðun um að leyfa hvalveiðar, þrátt fyrir miklar hrak- spár um eyðileggingu fiskmarkaða og hræðslu í ferðaþjónustu við minni umsvif. Sagan af samskiptunum við Alþjóðahvalveiðiráðið sýnir að í hvalamálinu tók þingið tvær vitlausar ákvarðanir sem bjargað var með einni réttri að lokum.    Það verður forvitnilegt að sjáhvernig Japönum vegnar utan hvalveiðiráðsins og hvort staða þeirra þar ýtir undir kaup þeirra á hvalaafurðum héðan. Þrátt fyrir hvalveiðar Hvals hf. hefur ferða- mönnum hingað fjölgað jafnt og þétt og sé hvalveiðunum mótmælt fer ekki hátt um það. Þær skapa hins vegar vandræði í diplómatískum sam- skiptum við Bandaríkjastjórn því að hömlur eru á ferðaheimildum hátt- settra bandarískra embættismanna til hvalveiðilanda.“ Björn Bjarnason Úrsögn Japana úr hvalveiðiráðinu STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Frá því um miðjan október á þessu ári hefur inflúensa A verið staðfest hjá 37 einstaklingum. Nokkrir þeirra sem hafa greinst eru ferðamenn sem smituðust erlendis en flestir ein- staklingar hafa smitast hér á landi. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá sótt- varnalækni. „Þetta byrjar allt- af á þessum tíma árs en inflúensan er heldur fyrr á ferðinni núna en hún hefur verið, það munar kannski tveimur vikum,“ segir Þór- ólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Í viku 50 voru samtals 39 sjúkling- ar með inflúensulík einkenni sem leit- uðu til heilsugæslunnar og á bráða- móttökur. „Við vitum ekki mikið um hvað hefur gerst núna um jólin því okkar tölur byggjast á greiningum frá heilsugæslunni og spítalanum líka. Það dettur alltaf niður yfir hátíð- arnar,“ segir Þórólfur. Hann segir mun fleiri tilfelli af inflúensu A í ár en í fyrra en þá var inflúensa B algeng- ari. „Þetta er aðeins öðruvísi heldur en var í fyrra, þetta er fyrr á ferðinni, en þegar inflúensu-tímabilið í fyrra var gert upp, þá voru flestar inflúens- urnar af tegund B sem er óvenjulegt. Núna virðist þetta vera þessi H3 sem er hluti af A. Þetta virðist vera aðeins öðruvísi en það er ómögulegt að segja því þetta á eftir að fara á flug. Það er líka ekki mikið að gerast í Evrópu. Faraldurinn á eftir að skella á með þunga á næstu vikum.“ Bóluefnin virka misvel Þórólfur segir helsta mun á A og B vera hversu virkt bóluefnið gegn þeim er. „Bóluefnið hefur virkað best gegn H1 og H3 og oft verst gegn B en virkaði þó þokkalega gegn B í fyrra. Þannig að maður er oft að vona að þetta sé frekar B eða H1, þá er bólu- efnið betra.“ Þá hefur RS veiran ver- ið að láta til sín taka en samkvæmt upplýsingum frá veirufræðideild Landspítalans hefur 41 einstaklingur greinst með RS veiru. „Hún er oft erfiðust hjá litlum krökkum og getur lagst þungt á lítil börn. Það er ekki til bóluefni gegn þessari RS veiru.“ Inflúensan fyrr á ferðinni en áður  Fleiri að greinast með Inflúensu A Þórólfur Guðnason Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Ófærð II, hóf göngu sína á RÚV, ann- an dag jóla. Á samfélagsmiðlum og manna í millum hefur verið kvartað yf- ir óskýru hljóði í fyrsta þætti. „Við sannreyndum hljóðið vel og vandlega fyrir og eftir útsendingu, bæði hljóðblöndun og útsendingar- styrk og fundum ekkert athugavert. Með öðrum orðum þá er allt eins og það á að vera,“ segir Skarphéðinn Guð- mundsson, dagskrárstjóri sjónvarps, og bætir við að nær undantekningar- laust berist athugasemdir vegna hljóðs eða að samtöl heyrist ekki né skiljist nægjanlega vel þegar boðið er upp á leikið íslenskt efni. „Það virðist sem fólk eigi erfiðara með að horfa á og skilja leikið efni án texta. Það sama gerist iðulega á Norðurlöndunum þegar boðið er upp á leikið norrænt efni án texta, þá berast reglulega athugasemdir vegna hljóðs- ins og að samtöl skiljist illa. DR hefur staðfest við okkur að þeir fái reglulega kvartanir yfir þessu í dönsku leiknu þáttaröðunum og þeirra skýring er að danskir áhorfendur séu einfaldlega óvanir því að horfa á leikið efni án texta, jafnvel þótt það sé á dönsku og eigi þar með að skiljast,“ segir Skarp- héðinn og bendir á að hægt sé að velja íslenskan texta á bls 888 í textavarpinu og íslenskan texta í spilara RÚV. Kvartað yfir óskýru hljóði í Ófærð  Iðulega gerðar athugasemdir um að samtöl skiljist illa í leiknu norrænu efni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ófærð Spennandi þættir á RÚV.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.