Morgunblaðið - 28.12.2018, Page 9

Morgunblaðið - 28.12.2018, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018 Hefðbundin heyrnartæki hækka talmál frá einum viðmælanda sem snýr að þér og loka á önnur hljóð. Nýju Opn heyrnartækin skanna hljóðumhverfið 100 sinnum á sekúndu til að aðgreina talmál frá hávaða og koma jafnvægi á hljóð í kringum þig. Þannig verður hljóðmyndin eðlilegri og þú nýtur þess betur að hlusta og taka virkan þátt í samræðum. Prófaðu nýju Opn heyrnartækin í 7 daga Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880 Hefðbundin heyrnartæki Nýju Opn heyrnartækin Tímapantanir í síma 568 6880 www.heyrnartaekni.is Baldur Arnarson baldura@mbl.is Skipulagsyfirvöld í Reykjavík aug- lýsa nú til kynningar breytt deili- skipulag vegna Bríetartúns 3-5. Umrædd lóð er austan við hús Frímúrarareglunnar á Íslandi. Með breytingunum er hæðarheimildum á byggingarlóðinni breytt „þannig að þær verða allt að 5 hæðir og inn- dregin hæð á hluta reitsins“ í staðinn fyrir 3 hæðir og inndregna hæð. Eiríkur Finnur Greipsson, erind- reki Frímúrareglunnnar, segir engar tímasetningar hafa verið ákveðnar í þessu efni. Næstu skref verði ákveðin á nýju ári. Hann segir hugmyndir um að hafa atvinnuhúsnæði í byggingunni. Hótelrekstur komi til greina. Hins vegar hafi ekkert verið ákveðið varð- andi notkunina og þá m.a. hvort regl- an muni nota húsnæðið/hótelið. Þá sé m.a. órætt hvort reglan fjármagni uppbygginguna og eigi bygginguna. Hæpið sé að reglan taki allt þetta húsnæði undir starfsemina. Fram kemur í lýsingu að áætlað er að nýbyggingin muni hýsa starfsemi hótels og þjónustu tengda því. Sé aðgreind frá Regluheimili „Byggingin skal greinilega að- greind frá Regluheimili með inn- dreginni tveggja hæða tengibygg- ingu … Á fyrstu hæð, í rýmum sem snúa að götu skal vera starfsemi svo sem þjónustu- og veitingarekstur [og] mögulegt er að hafa gistiher- bergi í rýmum sem snúa alfarið að bakgarði. Á hæðunum fyrir ofan verður gistirými hótels.“ Þá kemur fram í kynningu að markmið þessara breytinga á deiliskipulaginu sé „m.a. að stuðla að þéttingu byggðar til styrkingar miðborginni og veita fyrirtækjum og stofnunum á svæð- inu svigrúm til aukinnar uppbygg- ingar og stækkunar“. Þá sé „lögð rík áhersla á að auka umhverfisleg gæði svæðisins með metnaðarfullum byggingum og útirýmum“. Mögulegt verður að hafa allt að 66 bílastæði í kjallara. Gönguleiðir verða við húsið. Með þessari uppbyggingu breytist ásýnd Bríetartúns. Götumyndin breytist svo enn frekar þegar byggð- ur verður 86 íbúða turn á horni Bríetartúns og Katrínartúns. Þar eru nú skrifstofuhús, sem hýstu m.a. WOW air, en þau verða rifin. Þá er rætt um 100 íbúðir á Sætúnsreit, norðan við Höfðatorg, en þar er nú m.a. Vegagerðin. Loks eru mögu- leikar á þéttingu byggðar á bílastæði norðan við Lögreglustöðina, gegnt Regluheimilinu. Hefur slíkum bíla- stæðum fækkað jafnt og þétt í mið- borginni á síðustu árum. Viðbygging við Frímúrarahúsið  Breytt deiliskipulag aðliggjandi lóðar kynnt  Rætt um hótel  Heimilt að byggja allt að 5 hæða hús Fyrirhuguð viðbygging við Frímúrarahúsið Bríetartúni 3-5 í Reykjavík Gönguleið að BorgartúniNúverandi hús Frímúrarareglunnar á Íslandi Fyrirhuguð nýbygging B R Í E TA R T Ú N B R Í E TA R T Ú N B O R G A R T Ú N RAUÐARÁR- STÍGURMorgunblaðið/Hari Reiturinn Áformað er að byggja yfir bílastæði austan við hús Frímúrara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.