Morgunblaðið - 28.12.2018, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018
Hefðbundin heyrnartæki hækka talmál frá einum viðmælanda sem snýr að þér og loka
á önnur hljóð. Nýju Opn heyrnartækin skanna hljóðumhverfið 100 sinnum á sekúndu til
að aðgreina talmál frá hávaða og koma jafnvægi á hljóð í kringum þig. Þannig verður
hljóðmyndin eðlilegri og þú nýtur þess betur að hlusta og taka virkan þátt í samræðum.
Prófaðu nýju Opn heyrnartækin í 7 daga
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Hefðbundin heyrnartæki Nýju Opn heyrnartækin
Tímapantanir í síma 568 6880
www.heyrnartaekni.is
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skipulagsyfirvöld í Reykjavík aug-
lýsa nú til kynningar breytt deili-
skipulag vegna Bríetartúns 3-5.
Umrædd lóð er austan við hús
Frímúrarareglunnar á Íslandi. Með
breytingunum er hæðarheimildum á
byggingarlóðinni breytt „þannig að
þær verða allt að 5 hæðir og inn-
dregin hæð á hluta reitsins“ í staðinn
fyrir 3 hæðir og inndregna hæð.
Eiríkur Finnur Greipsson, erind-
reki Frímúrareglunnnar, segir
engar tímasetningar hafa verið
ákveðnar í þessu efni. Næstu skref
verði ákveðin á nýju ári.
Hann segir hugmyndir um að hafa
atvinnuhúsnæði í byggingunni.
Hótelrekstur komi til greina. Hins
vegar hafi ekkert verið ákveðið varð-
andi notkunina og þá m.a. hvort regl-
an muni nota húsnæðið/hótelið. Þá sé
m.a. órætt hvort reglan fjármagni
uppbygginguna og eigi bygginguna.
Hæpið sé að reglan taki allt þetta
húsnæði undir starfsemina.
Fram kemur í lýsingu að áætlað er
að nýbyggingin muni hýsa starfsemi
hótels og þjónustu tengda því.
Sé aðgreind frá Regluheimili
„Byggingin skal greinilega að-
greind frá Regluheimili með inn-
dreginni tveggja hæða tengibygg-
ingu … Á fyrstu hæð, í rýmum sem
snúa að götu skal vera starfsemi svo
sem þjónustu- og veitingarekstur
[og] mögulegt er að hafa gistiher-
bergi í rýmum sem snúa alfarið að
bakgarði. Á hæðunum fyrir ofan
verður gistirými hótels.“ Þá kemur
fram í kynningu að markmið þessara
breytinga á deiliskipulaginu sé „m.a.
að stuðla að þéttingu byggðar til
styrkingar miðborginni og veita
fyrirtækjum og stofnunum á svæð-
inu svigrúm til aukinnar uppbygg-
ingar og stækkunar“. Þá sé „lögð rík
áhersla á að auka umhverfisleg gæði
svæðisins með metnaðarfullum
byggingum og útirýmum“. Mögulegt
verður að hafa allt að 66 bílastæði í
kjallara. Gönguleiðir verða við húsið.
Með þessari uppbyggingu breytist
ásýnd Bríetartúns. Götumyndin
breytist svo enn frekar þegar byggð-
ur verður 86 íbúða turn á horni
Bríetartúns og Katrínartúns. Þar
eru nú skrifstofuhús, sem hýstu m.a.
WOW air, en þau verða rifin. Þá er
rætt um 100 íbúðir á Sætúnsreit,
norðan við Höfðatorg, en þar er nú
m.a. Vegagerðin. Loks eru mögu-
leikar á þéttingu byggðar á bílastæði
norðan við Lögreglustöðina, gegnt
Regluheimilinu. Hefur slíkum bíla-
stæðum fækkað jafnt og þétt í mið-
borginni á síðustu árum.
Viðbygging við Frímúrarahúsið
Breytt deiliskipulag aðliggjandi lóðar kynnt Rætt um hótel Heimilt að byggja allt að 5 hæða hús
Fyrirhuguð viðbygging við Frímúrarahúsið
Bríetartúni 3-5 í Reykjavík
Gönguleið að BorgartúniNúverandi hús
Frímúrarareglunnar
á Íslandi
Fyrirhuguð
nýbygging
B R
Í E
TA
R T
Ú N
B R
Í E
TA
R T
Ú N
B O
R G
A R
T Ú
N
RAUÐARÁR-
STÍGURMorgunblaðið/Hari
Reiturinn Áformað er að byggja yfir bílastæði austan við hús Frímúrara.