Morgunblaðið - 28.12.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 28.12.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018 Vertu viðbúinn vetrinum LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR Nøsted Kjetting as Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Ný hönnun Ómissandi á veisluborðið Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Iceland búðir, Samkaup Kjörbúðir, Samkaup Krambúðir,Melabúðin, Nettó verslanir út um land allt. Reyktur og grafinn lax Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Stytting vinnuvikunnar án launa- skerðingar er meðal stærstu úr- lausnarefna yfirstandandi kjaravið- ræðna og er áberandi í kröfugerð verkalýðsfélaganna. VR og iðnaðar- mannafélögin vilja stytta vinnuvik- una í 35 stundir án skerðingar launa. Krafa er um að þak verði sett á fjölda yfirvinnustunda til að tryggja raunstyttingu vinnuvikunnar. Félög- in í Starfsgreinasambandinu ganga lengra og vilja stytta dagvinnutím- ann um sem nemur einum átta stunda vinnudegi í viku, þ.e. að markvisst verði stefnt að styttingu úr 40 stundum í 32 á samningstím- anum. Samtök atvinnulífsins hafa líka lagt áherslu á að samkomulag um sveigjanlegri vinnutíma geti skilað stórum ávinningi í kjarasamningum ef tekst að færa launakostnað vegna yfirvinnu inn í dagvinnugrunninn. Ljóst er að brúa þarf stóra gjá milli viðsemjenda ef takast á að tryggja raunverulega styttingu vinnuvik- unnar enda langur vinnutími og yfir- vinna með því lengsta sem þekkist í OECD-löndum. 47 ár eru liðin frá því að vinnuvik- an var stytt í 40 stundir með lögum árið 1971. Reyndin varð þó sú að raunverulegur vinnutími launafólks styttist lítið, launahlutföllin breytt- ust og stærri hluti vinnunnar færðist yfir í yfirvinnu. Nýjar og nýlegar launakannanir stéttarfélaganna meðal félagsmanna sýna að stór hluti launafólks vinnur enn langan vinnudag. Hjá Eflingu, næststærsta stéttarfélagi landsins, hefur vinnu- tíminn lengst milli ára um tæplega eina klukkustund á viku skv. nýrri launakönnun félagsins. Að meðaltali vinna Eflingarfélagar 46,8 stundir á viku og karlar vinna fimm klukku- stundum lengur en konur. Þar er vinnutíminn hvað lengstur hjá bíl- stjórum eða 54,2 stundir. Þróunin hefur þó verið önnur með- al verslunar- og skrifstofufólks í VR, stærsta stéttarfélaginu, en þar hefur vinnutíminn styst á þessu ári og er kominn undir 43 stundir á viku að meðaltali í fyrsta skipti frá því að fé- lagið lét fyrst gera launakannanir meðal félagsmanna. Langur vinnutími á hótelum og gististöðum skv. könnun Matvís Iðnaðarmenn leggja mikla áherslu á styttingu vinnutímans í kröfugerð sinni og ekki að tilefnislausu. Í launakönnun Rafiðnaðarsambands- ins kom t.a.m. í ljós að 15,5% rafiðn- aðarmanna unnu fleiri en 200 klukkustundir í einum mánuði sl. haust og þriðjungur þeirra var 176 til 200 stundir í vinnunni í mánuðin- um sem könnunin var gerð. Vinnutími launafólks er mislangur eftir starfsstéttum og greinum. Ef rýnt er t.a.m. í launakönnun sem Matvís lét gera, en félagsmenn þess eru iðnaðarmenn í matvæla- og veit- ingagreinum, kemur í ljós að meðal- vinnutími þeirra er rúmar 48 stundir á viku. Lengstur er hann á hótelum og gististöðum þar sem félagsmenn unnu að jafnaði rúmlega 50 klukku- stundir í hverri viku. 14% fé- lagsmanna í Matvís sem starfa á hót- elum og gististöðum unnu 61 eða fleiri tíma á viku og vinnuvika ríflega fjórðungs félagsmanna er á bilinu 51 til 60 stundir. 44% félagsmanna sem eru í námi eða á námssamningi í mat- vælagreinum eru í vinnunni í 51 tíma eða lengur í viku hverri. Eining-Iðja á Akureyri er þriðja stærsta stéttarfélagið innan vébanda ASÍ. Meðalvinnutími félagsmanna þess er 44,8 stundir í viku og að jafn- aði vinna félagsmenn í Einingu-Iðju tíu tíma til viðbótar í yfirvinnu í hverri viku skv. könnun félagsins. Ráðist til atlögu við langan vinnudag Morgunblaðið/Eggert Byggingarvinna Vinnutími margra launþega er langur hér á landi.  Kröfur um styttingu vinnutímans án launaskerðingar og meiri sveigjanleika eru meðal flóknustu viðfangsefna kjaraviðræðnanna  Stórir hópar launafóks vinna í meira en 50 stundir í hverri viku Ekki er reiknað með stórum tíðind- um á fyrsta sáttafundinum í kjara- deilu Eflingar, VR og Verkalýðs- félags Akraness með Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara kl. 11 í dag. Þar verður lagt mat á stöðuna, lögð fram gögn vegna yfirstandandi við- ræðna og samn- inganefndirnar kynna ríkissátta- semjara kröfu- gerðir. Er búist við um klukkustund- ar löngum fundi. Kjaraviðræður á almenna vinnumarkaðinum fara að öllum líkindum í fullan gang upp úr áramótum en alls losna 82 samning- ar í lok ársins og framundan eru annasamir mánuðir. Í lok mars renna út 152 samningar, aðallega meðal opinberra starfsmanna. Önnur félög sem eru með lausa samninga frá áramótum hafa ekki vísað kjaradeilum sínum til sátta- meðferðar en geta fengið aðstöðu hjá sáttasemjara eftir því sem húsrúm leyfir samkvæmt upplýsingum Bryndísar Hlöðversdóttur ríkis- sáttasemjara en embættið hefur undirbúið sig fyrir stíf fundarhöld á komandi ári. Bryndís segir að föstu starfsfólki embættisins verði ekki fjölgað en hún hefur tekið upp það fyrirkomulag að fá til liðs við sig um tíu manna verktakahóp sem verður henni til aðstoðar við sáttamiðlun í kjaradeilum og verða skipaðir í ein- stök mál til að tryggja virkari sátta- miðlun. Fyrirmyndir að þessu er að finna í Noregi og Danmörku. Þegar samningalotur standa sem hæst eru oft tugir jafnvel yfir hundr- að samningamenn á fundum í öllum fundarsölum embættisins. ,,Ég hef verið að byggja þennan hóp sem verður vonandi kynntur til sögunnar í byrjun nýs árs og geri ráð fyrir að halda stutt námskeið fyrir þá í jan- úar og febrúar,“ segir hún. omfr@mbl.is Tíu verktakar munu aðstoða við sáttamiðlun  82 samningar að losna  Búist við annríki hjá sáttasemjara Bryndís Hlöðversdóttir Fram kom á samráðsfundi ríkis- stjórnarinnar, aðila vinnumarkaðar- ins og fulltrúa launþega í Ráðherra- bústaðnum fyrir jól að byggja þyrfti 5-8 þúsund íbúðir til að anna eftir- spurn tekjulægri hópa. Verkefnið er á hugmyndastigi. Ari Skúlason, sérfræðingur hjá Landsbankanum, segir könnun Capacent í haust benda til að rúm- lega helmingur aðspurðra leigjenda eigi minna en 5 milljónir í eigin fé. Miðað við lánareglur dugi það til að kaupa íbúð á 25 milljónir. Slíkar íbúðir séu hins vegar ekki til. Árangurinn verið lítill Síðustu ár hafi verið reynt að stuðla að meira framboði ódýrari nýrra íbúða en með takmörkuðum árangri. Til að dæmið gangi upp þurfi milligjöf einhvers staðar frá, svo sem húsnæðisstyrki. Þá sé stór hluti nýrra íbúða sem eru að koma á markað stórar og dýrar íbúðir. Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, rifjar upp þá spá Samtaka sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu að íbú- um á höfuðborgarsvæðinu muni fjölga um 30-38 þúsund til 2025. Búið sé að skipuleggja um 7.300 íbúðir. Það sé hvergi nærri nóg. Því þurfi að auka lóðaframboð. „Burtséð frá stöðunni núna þarf að byggja íbúðir til að mæta aukinni eftirspurn frá nýjum íbúum,“ segir Sigurður sem telur aðspurður að fyrir vikið verði mikil umsvif í íbúða- byggingum á næstu árum. Spurður hvers vegna ekki hafi meira áunnist í því að stuðla að meira framboði á hagkvæmu hús- næði á síðustu árum segir Sigurður skýringuna fyrst og fremst mikla áherslu borgaryfirvalda í Reykjavík á þéttingu byggðar. Þéttingin sé sem slík góðra gjalda verð. Með hliðsjón af íbúðaskortinum hefði hins vegar mátt fara hægar í sakirnar í þéttingu byggðar. Takmarkað lóðaframboð hafi ýtt undir fasteignaverð. Milligjöf stuðli að ódýrum íbúðum  Sérfræðingur bendir á skort Ari Skúlason Sigurður Hannesson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.