Morgunblaðið - 28.12.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra hefur ákveðið að veita heil-
brigðisstofnunum á landsbyggðinni
um 560 milljóna króna viðbótarfjár-
veitingu fyrir rekstrarárið 2018.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá velferðarráðuneytinu. Þar
segir að aukafjárveitingunni sé fyrst
og fremst ætlað að mæta halla á
rekstri stofnananna sem að ein-
hverju leyti stafi af veikleika í
rekstri en megi einnig rekja til ófyr-
irséðra útgjalda, t.d. vegna mönnun-
arvanda og veikinda starfsfólks sem
kalli á meiri yfirvinnu og þar með
aukinn kostnað. Viðbótarfjárveiting-
in nemur að jafnaði um 3% af heild-
arfjárveitingu stofnananna á árinu.
Aukin framlög til heilbrigðisstofn-
ana skiptast á átta heilbrigðisstofn-
anir. Heilbrigðisstofnun Vesturlands
fær 98,8 m.kr., Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða fær 80 m.kr., Heilbrigð-
isstofnun Norðurlands fær 130
m.kr., Heilbrigðisstofnun Austur-
lands fær 70 m.kr., Heilbrigðisstofn-
un Suðurlands fær 110 m.kr. og Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja 71,1
m.kr.
Í fréttatilkynningu velferðarráðu-
neytisins segir að ákveðnar breyt-
ingar séu fyrirhugaðar á fjármögnun
heilbrigðisstofnana til lengri tíma lit-
ið þar sem framlög verða í auknum
mæli tengd árangri. Stefnt sé að því
að innleiða sambærilegt fjármögn-
unarkerfi fyrir heilsugæslusvið
stofnananna og notað hefur verið í
heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu
frá 2017. Einnig er áformað að
breyta fjármögnun á hjúkrunarsvið-
um stofnananna og taka upp dag-
gjaldagreiðslur líkt og á hjúkrunar-
heimilum þar sem fjárhæðirnar taka
mið af hjúkrunarþyngd íbúanna.
Stuðningur við
landsbyggðina
Sex heilbrigðis-
stofnanir fá viðbótar-
fjárveitingu 2018
Morgunblaðið/Eggert
Heilbrigðisráðherra Svandís Svav-
arsdóttir hefur í mörg horn að líta.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Um þrjú þúsund bílar fóru um
Vaðlaheiðargöng fyrsta sólarhring-
inn eftir opnun. „Við kíktum á tölur
fyrsta daginn úr þeim gjaldtöku-
myndavélum sem við erum búin að
setja upp og þá
voru sirka þrjú
þúsund sem fóru
fyrsta sólarhring-
inn. Það er að
segja frá klukkan
18 til 18,“ segir
Valgeir Berg-
mann, fram-
kvæmdastjóri
Vaðlaheiðar-
ganga. „Síðan þá
hafa menn verið í
jólafríi og svona þannig að við höfum
ekki verið að leita í tölunum. En það
hefur verið mikil umferð þarna og
mun meiri en er á þessum árstíma
um Víkurskarðið þannig að klárlega
er fólk að ferðast og skoða og kynna
sér göngin.“
Hann bætir við að ekki verði hægt
að fá almennilega mynd af umferð
um göngin fyrr en gjaldtaka hefst.
„Aðalprófsteinninn verður nátt-
úrulega þegar við hefjum gjaldtök-
una og þá verður það náttúrulega sú
umferð sem í rauninni fer um
göngin.“
Gjöld rukkuð á eiganda bíls
Gjaldtakan hefst 2. janúar og
munu myndavélar skanna bílnúmer
og senda eiganda bílsins reikning ef
ökumaður hefur ekki greitt með sér-
stöku appi innan þriggja klukku-
stunda. Þúsund krónur bætast þá
við 1.500 króna gjaldið. Bílaleigur
eru meðal þeirra sem hafa kvartað
yfir því að ekki var haft samráð við
þær um gjaldtökuna þar sem gjaldið
leggst á eiganda bílsins. Valgeir seg-
ir að um misskilning sé að ræða og
að það hafi verið rætt við Samtök
ferðaþjónustuaðila (SAF). „Já, það
var talað við SAF og þar eru nokkr-
ar bílaleigur. Þetta er allt í ferli og í
góðu tómi. Það eru ekkert allir frá
bílaleigunum þar inni [SAF] en þær
þurfa þá að sækja upplýsingar frá
sínum manni sem er þar inni.“
Hann segir að samtal sé í gangi
við bílaleigur um þessar mundir.
„Við erum að tala saman og það er
alveg ljóst að þeir vilja fá smá samtöl
og slíkt. Það verður áfram og allt
unnið í góðu tómi.“ Formleg opn-
unarathöfn Vaðlaheiðarganga verð-
ur 12. janúar. Verður unnið við
lokafrágang ganganna fram að þeim
tíma, segir Valgeir.
Vaðlaheiðargöng Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri ganganna, segir
ljóst að margir hafi verið að kynna sér göngin áður en gjaldtaka hæfist.
Þúsundir fóru um
göngin fyrsta daginn
Viðræður í gangi við bílaleigur
Valgeir
Bergmann
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
ÚTSALAOkkar frábæra
50%
AFSLÁTTUR
af öllum vörum
Söfnum í neyðarmatar-
sjóð fyrir jólin til matarkaupa
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
fyrir jólin
Guð blessi ykkur öll
Atvinna