Morgunblaðið - 28.12.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Iðnnám opnar fólki margamöguleika. Þegar verkefnineru næg eru launin líka góð,verkefnin eru líka fjölbreytt
og svo má alltaf skapa sér fleiri
tækifæri með frekara námi,“ segir
Örn Viljar Kjartansson. „Eftir stúd-
entspróf af náttúrufræðibraut fór
ég í verkfræðinám í háskóla, en
fann mig þar ekki. Því fór ég að spá
í iðnnám og góður vinur fjölskyld-
unnar sem er pípulagningamaður
sagði mér frá sínu starfi. Það vakti
áhuga minn og þegar ég fékk svo
vinnu í faginu varð ekki aftur
snúið.“
Aukin sókn í iðnnám
Við brautskráningu frá Tækni-
skólanum – skóla atvinnulífsins rétt
fyrir jól varð Örn Viljar Kjartans-
son dúx; en hann útskrifaðist af
pípulagningabraut Byggingatækni-
skólans með einkunnina 9,17. Ágúst
Örn Jónsson semídúx útskrifaðist af
sömu braut með einkunnina 9,05 en
aðsókn í pípulagnanám í skólanum
hefur aldrei verið jafnmikil og nú.
Alls voru níu nemendur í pípu-
lögnunum brautskráðir frá Tækni-
skólanum nú fyrir jólin. Helst það í
hendur við almenna stóraukna að-
sókn í iðnnám, að sögn Hildar
Ingvarsdóttur skólameistara.
Tók nám og starf skipulega
„Ég byrjaði að vinna við pípu-
lagnir í febrúar 2016 og tók bæði
nám og starf mjög skipulega. Komst
fljótt á samning og fór í skólann
með það fyrir augum að geta lokið
öllu á sama tíma, eins og gekk upp,“
segir Örn Viljar. „Alls þurfti ég að
skila 96 vinnuvikum og náði því leik-
andi. Í bóklega sveinsprófinu sem
ég tók hjá Iðunni var farið í ýmis
tæknileg atriði, efnistöku út frá
teikningum og svo þurfti ég að
hanna snjóbræðslukerfi með þeim
stjórnbúnaði sem slíku fylgir. Verk-
lega prófið var síðan þriggja daga
dæmi, þar sem menn voru prófaðir í
ýmsu handverki, logsuðu og því að
setja upp smækkað lagnakerfi mið-
að við litla íbúð.“
Flóknar lagnir
Frá upphafi ferilsins hefur Örn
Viljar unnið hjá Kraftlögnum í Mos-
fellsbæ undir leiðsögn Sigurðar H.
Leifssonar pípulagningameistara.
Verkefnin þar hafa verið af ýmsum
toga en síðasta hálfa árið hefur allur
krafturinn farið í lagnavinnu við
Helgafellsskóla í Mosfellsbæ sem
nú er í byggingu.
„Skólinn er bygging með flókn-
um lögnum og ólíkum kerfum, svo
sem fyrir ofna, neysluvatn, frá-
rennsli, slökkvibúnað, snjóbræðslu
og svo mætti áfram telja. Í stóru
húsi má segja að reyni á allt sem
pípulagningamenn þurfa að hafa á
hreinu. Bæði eru það handverkið og
síðan ýmis tæknileg atriði; hvernig
fær maður þrýsting á kerfi, losar
um tappa í lögnunum og svo fram-
vegis. Í Helgafellsskóla er stór
tækjaklefi þar sem öllum helstu
lögnum og rennsli er stýrt. Það væri
góð hugmynd að bjóða nýliða í fag-
inu að skoða þetta stjórnrými; því
þar sést í hnotskurn hvernig lagna-
kerfi virka og snúast,“ segir Örn
Viljar, sem á unglingsárum var öfl-
ugur sundmaður. Keppti með liðum
Akraness og Keflavíkur og var einn-
ig í unglingalandsliðinu í sundi.
Buslaði löngum stundum í vatninu
og átti þar mikið undir að pípulagn-
ingamenn stæðu sína plikt.
Annríki í kulda
Einhverju sinni var sagt að raf-
magnsleysi væri eins konar sýnis-
horn af heimsendi. Ef enginn er
straumurinn stoppar allt. Og sama
má segja um lagnaverk ýmiss kon-
ar; allt fer í tóm vandræði ef ekki
kemur vatn úr krananum, ef sturtan
á baðherberginu virkar ekki eða
ekki næst hiti á ofnana. „Já, pípu-
lagningamenn þekkja að þegar kalt
er í veðri er mikið að gera. Þegar
kólnar að ég tali nú ekki um að
frjósi úti skrúfar fólk eðlilega frá
hitakerfinu á heimilinu – sem eng-
inn hefur kannski litið á lengi Og ef
eitthvað er bilað eða virkar ekki
sem skyldi er hringt og allt þarf að
gera og græja í hvelli. Að því leyti
eru píparar alveg ómissandi menn,“
segir Örn Viljar að síðustu.
Pípulagningamenn eru ómissandi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fagmaður Í stóru húsi má segja að reyni á allt sem pípulagningamenn þurfa að hafa á hreinu, segir Örn Viljar
Kjartansson. Hann var í gær við störf í stjórnrými hins nýja Helgafellsskóla í Mosfellsbæ sem er að komast í gagnið.
Brautskráning Frá vinstri Guðrún Randalín Lárusdóttir aðstoðarskóla-
meistari, Dýrleif Birna Sveinsdóttir nýstúdent, Elísabet Rut Haraldsdóttir,
sem útskrifaðist af hársnyrtibraut og fékk önnur af tvennum bjartsýnis-
verðlaunum skólans, Ásrún Stefánsdóttir, sem flutti ræðu nemenda, Örn
Viljar, Ágúst Örn Jónsson semídúx, Salómon Ernir B. Kjartansson, hinn
handhafi bjartsýnisverðlauna, og Hildur Ingvarsdóttir skólameistari.
Dúxinn er duglegur! Píp-
arar brautskráðir frá
Tækniskólanum og næg
verkefni fram undan.
Vatn úr krana, hiti á
ofna og snjóbræðsla.
Starfið opnar mikla
möguleika fyrir ungt fólk.
Trukk Þrýstingur á lagnakerfinu
þarf að vera jafn og öruggur.
Hver man ekki eftir töfrateningnum
sem sló í gegn um allan heim í upp-
hafi níunda áratugar síðustu aldar?
Frá þeim tíma hafa verið seldar meira
en 350 milljónir eintaka og enn eru
áhugasamir um allan heim á öllum
aldri að spreyta sig á upphaflega ten-
ingnum (Rubik’s Cube 3x3) og ótrú-
legri flóru annara sambærilegra ten-
inga af öllum stærðum og gerðum.
Dagana 4. og 5. janúar næstkom-
andi verður haldin keppni í töfraten-
ingnum, (Lights of Reykjavík 2019 í
Flensborgarskólanum í Hafnarfirði.
Þrjátíu keppendur frá sjö löndum
hafa skráð sig til leiks og keppt verð-
ur í fjórtán mismunandi greinum.
Mótið er alþjóðlega viðurkennt og
undir verndarvæng alþjóðlega töfra-
teningssambandsins World Cube
Association.
Búast má við spennandi keppni og
að bæði Íslandsmet og jafnvel Evr-
ópumet verði slegin en öflugir kepp-
endur eru skráðir til leiks. Fjölbreytt
dagskrá er báða dagana frá 9-18 og
er m.a. keppt í því að leysa 3x3 kubba
blindandi. Mótinu lýkur undir kvöld
laugardaginn 5. janúar með verð-
launaafhendingu.
Vinsældir töfrateningsins eru vax-
andi og má búast við skemmtilegri
keppni. Stjórnendur mótsins eru:
Rúnar Gauti Gunnarsson, Clément
Cherblanc og Danival Heide Sævars-
son.
Þrjátíu keppendur í fjórtán greinum
Töfrateningar í Flensborg
Spil Í teningnum eru tækifæri og hægt að spila á ýmsa ólíka vegu.