Morgunblaðið - 28.12.2018, Side 23

Morgunblaðið - 28.12.2018, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018 Þrír fuglar á grein Ísfisktogarinn Viðey RE 50, eitt nýjasta skipið í íslenska fiskiskipaflotanum, lagði úr heimahöfn á dögunum. Kyrrt var bæði yfir veðri og mannskap á þeirri stund. Eggert Nú rennur á enda árið 2018 þegar þess var minnst að Ísland hefur verið fullvalda ríki í eina öld. Tíma- mótunum var fagnað á ýmsan hátt. Til dæmis voru flutt- ir fjórir fyrirlestrar í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð undir sam- heitinu Fullveldið og hlíðin fagra: Svein- björn Rafnsson, fyrrv. prófessor tal- aði um upphaf sjálfstæðisbaráttu Ís- lendinga, Finn Magnússon og Bjarna Thorarensen; Sveinn Yngvi Egilsson prófessor um vinagleði: fé- lagslega þýðingu bókmennta í þjóð- ernislegu samhengi; Marion Lerner dósent um menntun og vísindi í þágu þjóðar, Tómas Sæmundsson og ferðabók hans og Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur um Tóm- as Sæmundsson, sjálfstæðisbarátt- una og fullveldið 1918. Sameiginlegt með öllum þessum fyrirlestrum var að þá mátti tengja þjóðmenningunni, Fjölnismönnum og þar með þeim þeirra sem í nokk- ur ár var prestur að Breiðabólstað í Fljótshlíð, sr. Tómasi Sæmundssyni (1807-1841). Hann fór í mennta- og menning- arferð um Evrópu og vildi að henni lokinni stuðla að því að Íslendingar tækju sér margt til fyrirmyndar sem hann sá og heyrði. Efnahags- framfarir yrðu ekki án þess að opna þjóðfélagið fyrir nýjum straumum, betri menntun og nútímalegum vinnubrögðum. Alþjóðasamstarf Stjórnarskráin tengir okkur við sjálfstæðisbaráttuna á 19. öld. Hún er gjöf frá Danakon- ungi árið 1874 og stendur enn á þeim grunni. Árið 1920 kom stjórnarskrá fullvalda Íslands til sögunnar og síðan lýðveldisins Ís- lands árið 1944. Stjórn- skipuleg samfella nær þannig allt aftur til ársins 1874. Stjórn- arskráin er hluti þjóð- menningar okkar þótt umræður um hana séu einkum á lög- fræðilegum grunni. Þingræðisreglan er reist á stjórn- arskránni frá 1874 þótt hún sé hvergi skráð í henni. Hún er stjórn- arskrárvenja, reglan varð virk hér árið 1904 þegar Hannes Hafstein varð ráðherra heimastjórnarinnar. Vegna 100 ára afmælis heimastjórn- arinnar stóð alþingi að ritun og út- gáfu fræðirits um þingræði á Ís- landi. Í tilefni af 100 ára afmæli fullveld- isins beitti alþingi sér fyrir útgáfu fræðirits um „inntak fullveldisréttar er Ísland öðlaðist að þjóðarétti árið 1918“. Gaf Sögufélag það út undir heitinu: Frjálst og fullvalda ríki, Ís- land 1918-2018. Þar er rætt um full- veldið, breytingar á alþjóða- vettvangi og sívaxandi samvinnu þjóða. Þjóðabandalagið kom til sög- unnar eftir fyrri heimsstyrjöldina þegar Íslendingar voru orðnir full- valda. Þrátt fyrir aðstoð Dana við framkvæmd utanríkismála Íslands fylgdu Danir og Íslendingar ólíkri utanríkisstefnu. Danir voru til dæmis aðilar að Þjóðabandalaginu en Íslendingar ekki. Þótt Þjóða- bandalagið bannfærði Ítali eftir inn- rás þeirra í Eþíópíu árið 1935 seldu Íslendingar fisk til Ítalíu. Eftir síðari heimsstyrjöldina varð töf á aðild Íslands að Sameinuðu þjóðunum af því að hún þótti brjóta gegn hlutleysisstefnu Íslendinga. Stofnaðildin að NATO árið 1949 innsiglaði endanlegt brotthvarf frá hlutleysi. Árið 1950 varð Ísland aðili að Evrópuráðinu, 1952 að Norður- landaráði, 1970 að EFTA, Fríversl- unarsamtökum Evrópu, 1973 að ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, og árið 1994 að EES, evr- ópska efnahagssvæðinu svo að nokkuð sé nefnt. Þá beittu Íslendingar sér mjög fyrir gerð hafréttarsáttmála Sam- einuðu þjóðanna sem kom til sög- unnar árið 1982. Hann tryggði þjóð- inni forræði yfir 200 sjómílna efnahagslögsögunni en lagði einnig á hana skyldur. Allar ákvarðanir stjórnvalda um þessi efni hafa verið teknar innan ramma stjórnarskrárinnar. Árið 1874 sá enginn sá þessa þróun fyrir og eru engin ákvæði um aðild að al- þjóðastofnunum í stjórnarskránni. Framkvæmdarvaldshöfum er veitt heimild til að semja við önnur ríki og verða almennt að leita sam- þykkis alþingis við slíkum samn- ingum. Í desember 2005 vann sérfræð- inganefnd um endurskoðun stjórn- arskrárinnar skýrslu um þróun hennar að beiðni nefndar sem vann þá að endurskoðun stjórnarskrár- innar. Þar segir: „... er rétt að geta þess að enn sem komið er hefur að- ild Íslands að milliríkjasamningi ekki kallað á breytingar á stjórnar- skránni þótt aðild að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið hafi vakið upp ýmsar umræður um þau efni.“ Þetta var sagt árið 2005, 11 árum eftir aðildina að EES. Hafði þá ver- ið fjallað um ýmis stjórnskipuleg álitamál tengd aðildinni, til dæmis þátttökuna í Schengen-samstarfinu árið 2001. Endalausar umræður Flumbrugangurinn í stjórn- arskrármálinu undir forystu Jó- hönnu Sigurðardóttur og stjórnar hennar á árunum 2009 til 2013 hleypti illu blóði í allar umræður um breytingar á stjórnarskránni. Sömu sögu er að segja um æðið sem rann á meirihluta alþingis um nauðsyn aðildar að ESB. Enn hefur ekki tek- ist að reka á brott illu andana sem hlupu í stjórnmálalífið vegna þessa. Þeir eru meðal þess versta sem hrunið leiddi af sér. Tilraun til sátta um afgreiðslu stjórnarskrárbreytinga var gerð með skipun nefndar undir árslok 2013 eftir að stjórn Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks settist að völdum. Þá fór enn ein stjórn- arskrárnefndin af stað og setti sér að ræða fjögur mál: framsal vald- heimilda, þjóðareign á náttúru- auðlindum, þjóðaratkvæðagreiðslur og umhverfismál. Sigurður Ingi Jóhannsson, þá orðinn forsætisráðherra, mælti fyrir frv. til stjórnskipunarlaga 1. sept- ember 2016, skömmu áður en þing var rofið og gengið til kosninga. Frumvarpið var reist á umræðum á 50 fundum stjórnarskrárnefnd- arinnar. Var það „millileið“ að sögn flutningsmanns. Í því var ekki minnst á framsal valdheimilda. Í janúar 2018 boðaði Katrín Jak- obsdóttir forsætisráðherra að stjórnarskráin yrði endurskoðuð í heild á þessu og næsta kjörtímabili. Markmiðið væri að stjórnarskráin endurspegli „sem best sameiginleg grunngildi þjóðarinnar og renni traustum stoðum undir lýðræðislegt réttarríki þar sem vernd mannrétt- inda er tryggð,“ eins og sagði í til- kynningu ráðherrans sem skipaði síðan Unni Brá Konráðsdóttur lög- fræðing, fyrrv. þingforseta, til að halda utan um málið. EES-aðild í stjórnarskrá Því má velta fyrir sér hvort 25 ára aðild að EES-samningnum hafi leitt til stjórnskipunarvenju. Fræðimenn á sviði stjórnskipunarréttar deila um það en eru sammála um að tregða stjórnmálamanna til að breyta stjórnarskránni og leyfa framsal valdheimilda sé illskiljan- leg. Það sé hættulaust að viður- kenna fullum fetum í stjórnarskrá nauðsyn reglu um að gefa eftir vald- heimildir á skýrt afmörkuðu sviði. Í því felist ekki annað en viðurkenn- ing á þátttöku Íslendinga í alþjóða- samstarfi. Betra sé að móta reglu sem setji þátttökunni mörk en að stofna til ágreinings sem umboðs- lausum fræðimönnum sé síðan ætl- að að leiða til lykta með álits- gerðum. Fræðimenn getur greint á um hvort EES-gerð sé þess eðlis að hún rúmist innan stjórnarskrárinnar. Þeir eru hins vegar allir sammála um að laga beri stjórnarskrána að alþjóðasamstarfi. Eftir þeim ráðum fara stjórnmálamenn þó ekki. Ótti stjórnmálamanna ræðst af andstöðu við aðild Íslands að ESB. Þar tengjast illu andarnir sem áður er getið. Þá má kveða niður með því að festa aðildina að EES eina í stjórnarskrána. Eftir Björn Bjarnason » Því má velta fyrir sér hvort 25 ára aðild að EES-samningnum hafi leitt til stjórnskipunar- venju. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Fullveldið, stjórnarskráin og alþjóðasamstarf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.