Morgunblaðið - 28.12.2018, Síða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018
Þrír fuglar á grein Ísfisktogarinn Viðey RE 50, eitt nýjasta skipið í íslenska fiskiskipaflotanum, lagði úr heimahöfn á dögunum. Kyrrt var bæði yfir veðri og mannskap á þeirri stund.
Eggert
Nú rennur á enda
árið 2018 þegar þess
var minnst að Ísland
hefur verið fullvalda
ríki í eina öld. Tíma-
mótunum var fagnað á
ýmsan hátt.
Til dæmis voru flutt-
ir fjórir fyrirlestrar í
Hlöðunni að Kvoslæk í
Fljótshlíð undir sam-
heitinu Fullveldið og
hlíðin fagra: Svein-
björn Rafnsson, fyrrv. prófessor tal-
aði um upphaf sjálfstæðisbaráttu Ís-
lendinga, Finn Magnússon og
Bjarna Thorarensen; Sveinn Yngvi
Egilsson prófessor um vinagleði: fé-
lagslega þýðingu bókmennta í þjóð-
ernislegu samhengi; Marion Lerner
dósent um menntun og vísindi í
þágu þjóðar, Tómas Sæmundsson
og ferðabók hans og Gunnar Þór
Bjarnason sagnfræðingur um Tóm-
as Sæmundsson, sjálfstæðisbarátt-
una og fullveldið 1918.
Sameiginlegt með öllum þessum
fyrirlestrum var að þá mátti tengja
þjóðmenningunni, Fjölnismönnum
og þar með þeim þeirra sem í nokk-
ur ár var prestur að Breiðabólstað í
Fljótshlíð, sr. Tómasi Sæmundssyni
(1807-1841).
Hann fór í mennta- og menning-
arferð um Evrópu og vildi að henni
lokinni stuðla að því að Íslendingar
tækju sér margt til fyrirmyndar
sem hann sá og heyrði. Efnahags-
framfarir yrðu ekki án þess að opna
þjóðfélagið fyrir nýjum straumum,
betri menntun og nútímalegum
vinnubrögðum.
Alþjóðasamstarf
Stjórnarskráin tengir okkur við
sjálfstæðisbaráttuna á 19. öld. Hún
er gjöf frá Danakon-
ungi árið 1874 og
stendur enn á þeim
grunni. Árið 1920 kom
stjórnarskrá fullvalda
Íslands til sögunnar og
síðan lýðveldisins Ís-
lands árið 1944. Stjórn-
skipuleg samfella nær
þannig allt aftur til
ársins 1874. Stjórn-
arskráin er hluti þjóð-
menningar okkar þótt
umræður um hana séu
einkum á lög-
fræðilegum grunni.
Þingræðisreglan er reist á stjórn-
arskránni frá 1874 þótt hún sé
hvergi skráð í henni. Hún er stjórn-
arskrárvenja, reglan varð virk hér
árið 1904 þegar Hannes Hafstein
varð ráðherra heimastjórnarinnar.
Vegna 100 ára afmælis heimastjórn-
arinnar stóð alþingi að ritun og út-
gáfu fræðirits um þingræði á Ís-
landi.
Í tilefni af 100 ára afmæli fullveld-
isins beitti alþingi sér fyrir útgáfu
fræðirits um „inntak fullveldisréttar
er Ísland öðlaðist að þjóðarétti árið
1918“. Gaf Sögufélag það út undir
heitinu: Frjálst og fullvalda ríki, Ís-
land 1918-2018. Þar er rætt um full-
veldið, breytingar á alþjóða-
vettvangi og sívaxandi samvinnu
þjóða.
Þjóðabandalagið kom til sög-
unnar eftir fyrri heimsstyrjöldina
þegar Íslendingar voru orðnir full-
valda. Þrátt fyrir aðstoð Dana við
framkvæmd utanríkismála Íslands
fylgdu Danir og Íslendingar ólíkri
utanríkisstefnu. Danir voru til
dæmis aðilar að Þjóðabandalaginu
en Íslendingar ekki. Þótt Þjóða-
bandalagið bannfærði Ítali eftir inn-
rás þeirra í Eþíópíu árið 1935 seldu
Íslendingar fisk til Ítalíu.
Eftir síðari heimsstyrjöldina varð
töf á aðild Íslands að Sameinuðu
þjóðunum af því að hún þótti brjóta
gegn hlutleysisstefnu Íslendinga.
Stofnaðildin að NATO árið 1949
innsiglaði endanlegt brotthvarf frá
hlutleysi.
Árið 1950 varð Ísland aðili að
Evrópuráðinu, 1952 að Norður-
landaráði, 1970 að EFTA, Fríversl-
unarsamtökum Evrópu, 1973 að
ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnun
Evrópu, og árið 1994 að EES, evr-
ópska efnahagssvæðinu svo að
nokkuð sé nefnt.
Þá beittu Íslendingar sér mjög
fyrir gerð hafréttarsáttmála Sam-
einuðu þjóðanna sem kom til sög-
unnar árið 1982. Hann tryggði þjóð-
inni forræði yfir 200 sjómílna
efnahagslögsögunni en lagði einnig
á hana skyldur.
Allar ákvarðanir stjórnvalda um
þessi efni hafa verið teknar innan
ramma stjórnarskrárinnar. Árið
1874 sá enginn sá þessa þróun fyrir
og eru engin ákvæði um aðild að al-
þjóðastofnunum í stjórnarskránni.
Framkvæmdarvaldshöfum er veitt
heimild til að semja við önnur ríki
og verða almennt að leita sam-
þykkis alþingis við slíkum samn-
ingum.
Í desember 2005 vann sérfræð-
inganefnd um endurskoðun stjórn-
arskrárinnar skýrslu um þróun
hennar að beiðni nefndar sem vann
þá að endurskoðun stjórnarskrár-
innar. Þar segir: „... er rétt að geta
þess að enn sem komið er hefur að-
ild Íslands að milliríkjasamningi
ekki kallað á breytingar á stjórnar-
skránni þótt aðild að samningnum
um Evrópska efnahagssvæðið hafi
vakið upp ýmsar umræður um þau
efni.“
Þetta var sagt árið 2005, 11 árum
eftir aðildina að EES. Hafði þá ver-
ið fjallað um ýmis stjórnskipuleg
álitamál tengd aðildinni, til dæmis
þátttökuna í Schengen-samstarfinu
árið 2001.
Endalausar umræður
Flumbrugangurinn í stjórn-
arskrármálinu undir forystu Jó-
hönnu Sigurðardóttur og stjórnar
hennar á árunum 2009 til 2013
hleypti illu blóði í allar umræður um
breytingar á stjórnarskránni. Sömu
sögu er að segja um æðið sem rann
á meirihluta alþingis um nauðsyn
aðildar að ESB. Enn hefur ekki tek-
ist að reka á brott illu andana sem
hlupu í stjórnmálalífið vegna þessa.
Þeir eru meðal þess versta sem
hrunið leiddi af sér.
Tilraun til sátta um afgreiðslu
stjórnarskrárbreytinga var gerð
með skipun nefndar undir árslok
2013 eftir að stjórn Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks settist
að völdum. Þá fór enn ein stjórn-
arskrárnefndin af stað og setti sér
að ræða fjögur mál: framsal vald-
heimilda, þjóðareign á náttúru-
auðlindum, þjóðaratkvæðagreiðslur
og umhverfismál.
Sigurður Ingi Jóhannsson, þá
orðinn forsætisráðherra, mælti fyrir
frv. til stjórnskipunarlaga 1. sept-
ember 2016, skömmu áður en þing
var rofið og gengið til kosninga.
Frumvarpið var reist á umræðum á
50 fundum stjórnarskrárnefnd-
arinnar. Var það „millileið“ að sögn
flutningsmanns. Í því var ekki
minnst á framsal valdheimilda.
Í janúar 2018 boðaði Katrín Jak-
obsdóttir forsætisráðherra að
stjórnarskráin yrði endurskoðuð í
heild á þessu og næsta kjörtímabili.
Markmiðið væri að stjórnarskráin
endurspegli „sem best sameiginleg
grunngildi þjóðarinnar og renni
traustum stoðum undir lýðræðislegt
réttarríki þar sem vernd mannrétt-
inda er tryggð,“ eins og sagði í til-
kynningu ráðherrans sem skipaði
síðan Unni Brá Konráðsdóttur lög-
fræðing, fyrrv. þingforseta, til að
halda utan um málið.
EES-aðild í stjórnarskrá
Því má velta fyrir sér hvort 25 ára
aðild að EES-samningnum hafi leitt
til stjórnskipunarvenju. Fræðimenn
á sviði stjórnskipunarréttar deila
um það en eru sammála um að
tregða stjórnmálamanna til að
breyta stjórnarskránni og leyfa
framsal valdheimilda sé illskiljan-
leg. Það sé hættulaust að viður-
kenna fullum fetum í stjórnarskrá
nauðsyn reglu um að gefa eftir vald-
heimildir á skýrt afmörkuðu sviði. Í
því felist ekki annað en viðurkenn-
ing á þátttöku Íslendinga í alþjóða-
samstarfi. Betra sé að móta reglu
sem setji þátttökunni mörk en að
stofna til ágreinings sem umboðs-
lausum fræðimönnum sé síðan ætl-
að að leiða til lykta með álits-
gerðum.
Fræðimenn getur greint á um
hvort EES-gerð sé þess eðlis að hún
rúmist innan stjórnarskrárinnar.
Þeir eru hins vegar allir sammála
um að laga beri stjórnarskrána að
alþjóðasamstarfi. Eftir þeim ráðum
fara stjórnmálamenn þó ekki.
Ótti stjórnmálamanna ræðst af
andstöðu við aðild Íslands að ESB.
Þar tengjast illu andarnir sem áður
er getið. Þá má kveða niður með því
að festa aðildina að EES eina í
stjórnarskrána.
Eftir Björn
Bjarnason » Því má velta fyrir sér
hvort 25 ára aðild að
EES-samningnum hafi
leitt til stjórnskipunar-
venju.
Björn
Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Fullveldið, stjórnarskráin og alþjóðasamstarf