Morgunblaðið - 28.12.2018, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018 33
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Félagsmenn í Félagi skipstjórnar-
manna
Almennur félagsfundur verður í dag
föstudaginn 28. desember kl. 14.00
að Hvammi, sal á jarðhæð Grand
Hótels.
Léttar veitingar
Félagar fjölmennið
Stjórnin
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-14 Opið
hús kl. 9:30- 14, Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17.
Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Heitt á könnunni.
Allir velkomnir. S 535-2700.
Gullsmári Handavinna kl 9.00
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 9-13, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 9 -10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og
hádegismatur kl. 11.30.
Seltjarnarnes Starfsfólk félags og tómstundastarfs eldri bæjarbúa á
Seltjarnarnesi óskar ykkur öllum gleðiegrar hátíðar og farsældar á
nýju ári og þakkar samstarf og samverustundir á liðnu ári. Athugið að
hellt er uppá í kaffkrók í félagsaðstöðunni á Skólabraut alla virka daga
kl. 10.30. Almenn dagskrá hefst aftur 3. janúar 2019 skv. eldra
dagskrárblaði. Félagsvist verður í salnum 3. jan. kl. 13.30.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bókhald
NP Þjónusta
Býð fram liðveislu við bókanir, reikn-
ingsfærslur o.fl.
Hafið samband í síma 831-8682.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
þú það sem
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA
Smá- og raðauglýsingar
Heilsugæslunnar á höfuðborgar-
svæðinu um stefnumótun, hópa-
starf og skylda hluti og kom það
í hlut Hrafnhildar að vinna þess-
um hugmyndum brautargengi
meðal starfsmanna.
Við á þessari starfsstöð áttum
síður von á því, að hjúkrunar-
fræðingurinn úr Mosfellsbæ yrði
fyrir valinu til þessara verkefna
og var því nokkur spenna og eft-
irvænting meðal starfsmanna,
þegar Hrafnhildur hóf störf hjá
okkur.
Starfsfólkið var þó samhent í
því að hún fengi fljúgandi start
og var frá byrjun einlægt í við-
leitni sinn við að taka þátt í
verkefninu með Hrafnhildi.
Hafi einhverjir efast um getu
og færni hins nýja yfirmanns til
að koma á breytingum og til-
einka sér ný sjónarmið með
starfsfólkinu, þá kom strax í
ljós, að þær áhyggjur reyndust
óþarfar. Hrafnhildur var frá
byrjun staðföst og skipulögð en
um leið alúðleg og gætti að vel-
ferð starfsmanna.
Jafnframt sinnti hún sjúkling-
um í sínu erilsama stjórnunar-
starfi og sýndi við það bæði
leikni og áhuga á mannlegum
samskiptum.
Það var því beygður hópur,
sem tók við fréttum af því sl.
vor, að Hrafnhildur hefði veikst
að nýju af erfiðum sjúkdómi og
ætti ekki afturkvæmt fyrr en að
ári. Það var okkur nokkur bót,
að Elsa Margrét læknanemi á
síðasta ári og dóttir hennar var
hjá okkur í vinnu sl. sumar og
reyndist ekki eftirbátur mömmu
sinnar í hlýlegri framkomu og
samviskusemi.
En við gerðum alltaf ráð fyrir
að batinn kæmi í rás tímans og
því var það algerlega óvænt
áfall, þegar við fréttum af and-
láti Hrafnhildar á dögunum. Við
erum þakklát fyrir þann tíma,
sem hún var á meðal okkar á
Heilsugæslunni í Mjódd og
sendum ástvinum og sérstaklega
eiginmanni og börnum samúðar-
kveðjur okkar.
Starfsmenn Heilsugæslunnar
í Mjódd,
Sigurbjörn Sveinsson.
Tvær fimm ára hnátur í
Hafnarfirði kynnast í gegnum
feður sína sem dvöldu við nám í
Bandaríkjunum.
Þegar önnur fjölskyldan
ákveður að flytja alfarið til
Bandaríkjanna þótti tilvalið að
hnátan í Ameríku myndi skrifa
þeirri á Íslandi reglulega bréf til
að halda við íslenskunni. Þessi
ákvörðun foreldranna lagði
grunn að yfir 50 ára vináttu-
sambandi á milli okkar Hrafn-
hildar.
Að fara á milli heimsálfa var
auðvelt því feðurnir störfuðu í
fluginu, það voru þess vegna
ófáar ferðir á milli okkar sem
styrkti enn frekar vináttuna. Við
fylgdumst að alla barnæskuna,
hér á Íslandi í útilegum eða
veiðiferðum, í Ameríku úti að
veiða eldflugur eða að busla í
sundlauginni í garðinum. Við
urðum unglingar, urðum skotn-
ar í strákum. Fórum saman á
Rauðhettu um verslunarmanna-
helgar, þvældumst um Manhatt-
an, fórum á tónleika, drukkum
Strawberry daiquiri, þvílíkir
heimsborgarar. Svo auðvitað
urðum við fullorðnar, ég skutl-
aðist eftir Habbý í Nóatúnið til
Elsu ömmu og Sigurðar afa á
appelsínugula Mininum okkar
Hjartar þegar hún kom til
landsins, við héldum matarboð
með vinum og fórum á tjúttið,
Habbý féll vel inn í vinahópinn
og þegar hún kynntist Hilla og
fluttist alfarið til Íslands varð
enn meiri samgangur. Við
byggðum okkur hús í Setberg-
inu í Hafnarfirði á sama tíma,
áttum börnin okkar á svipuðum
tíma og við Habbý fórum báðar
í heilbrigðistengt nám. Leiðir
okkar áttu líka eftir að liggja
saman í vinnu, fyrst á Hrafnistu
og svo á Heilsugæslunni, en
eftir að við urðum báðar stjórn-
endur í oft á tíðum þungum
störfum var á báða bóga gott að
geta hringt í vin, speglað og
fengið góð ráð.
Við fylgdumst með börnum
okkar beggja í blíðu og stríðu,
fórum saman í gegnum margt
gott og líka erfitt eins og við er
að búast í heilu lífi.
Eftir að Habbý og Bensi
kynntust og fóru að búa fluttu
þau enn nær okkur og við feng-
um að fylgjast með Sigurði litla
sem Habbý var svo stolt af.
Eins og oft vill verða í erli dags-
ins hittumst við sjaldnar seinni
árin, en þó höfum við haft það
fyrir fastan sið síðustu 11 árin
nokkrar vinkonur af heilsugæsl-
unni að hittast í jólalok í minn-
ingu móður minnar, sem vann
einnig með okkur þar, það verð-
ur tómlegt hjá Súpuhóp Sissu
núna, en minningarnar verða
okkur Siggu, Gyðu og Fjólu dýr-
mætar.
Elsku vinkona, það verður
ótrúlega skrýtið fyrir okkur
Hjört að fá ekki lengur símtöl
frá þér sem gátu varað í nokkra
klukkutíma, fara ekki meira yfir
málin, hittast ekki meira, hlæja
ekki meira saman og gráta ekki
meira saman.
Góða ferð, við vitum að Elsa
amma og Sigurður afi hafa tekið
vel á móti þér.
Hrönn Ljótsdóttir
og Hjörtur Geir Björnsson.
Með sorg í hjarta kveðjum við
kæran samstarfsmann og vin,
Hrafnhildi Halldórsdóttur.
Hrafnhildur hóf störf á
heilsugæslunni sem hjúkrunar-
fræðingur árið 1995. Starfsfer-
ilinn byrjaði hún sem hjúkrun-
arfræðingur á heilsugæslunni í
Sólvangi þar sem hún meðal
annars sinnti heilsuvernd skóla-
barna og vann ákveðið frum-
kvöðlastarf í heilsuvernd í fram-
haldsskólum. Árið 2007 lá leið
hennar yfir í heilsugæsluna í
Mosfellsbæ þar sem hún tók við
stöðu yfirhjúkrunarfræðings.
Árið 2015 tók hún síðan við
stöðu svæðisstjóra við heilsu-
gæsluna í Mjódd.
Hrafnhildur var mikill fag-
maður, réttsýn á þarfir skjól-
stæðinga og úrræðagóð við
lausn vandamála. Hún tók virk-
an þátt í gæða- og þróunarstarfi
og lagði sitt af mörkum til að
gera þjónustu heilsugæslunnar
sem besta.
Hrafnhildur sýndi bæði hug-
rekki og dug í nýju stjórnskipu-
lagi heilsugæslunnar og leiddi
heilsugæslustöðina í Mjódd í
fararbroddi í átt að bættri þjón-
ustu.
Hrafnhildur kom einnig að
þróun sérnáms í heilsugæslu-
hjúkrun og sem lærimeistari átti
hún stóran þátt í að handleiða
og styrkja heilsugæsluhjúkrun-
arfræðinga framtíðarinnar.
Hrafnhildur var hrókur alls
fagnaðar þegar kom að sam-
verustundum meðal félaga, þar
náði hún með einstakri frásagn-
argleði og kímnigáfu að gæða
lífi hversdagslega hluti þannig
að úr varð hin mesta skemmtun
fyrir okkur hin.
Hrafnhildur var tvímælalaust
einn af lykilstarfsmönnum
heilsugæslunnar. Hugur okkar
er hjá fjölskyldunni um leið og
við minnumst hennar með hlý-
hug í hjarta.
Fyrir hönd samstarfsfólks
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis-
ins,
Svanhvít Jakobsdóttir,
forstjóri, Þórunn Ólafs-
dóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar,
Ragnheiður Ósk Erlends-
dóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar.
Í dag kveðjum við Hrafnhildi,
góðan vinnufélaga, sem starfaði
með okkur á heilsugæslunni í
Mosfellsumdæmi í 9 ár, lengst
af sem yfirhjúkrunarfræðingur
en síðar sem svæðisstjóri og
fagstjóri hjúkrunar. Það kom
fljótlega í ljós að Hrafnhildur
var kraftmikill og öflugur
stjórnandi sem fyrst og fremst
hafði velferð og vellíðan skjól-
stæðinga sinna að leiðarljósi.
Hrafnhildur var skipulögð,
ákveðin og fylgin sér sem nýtt-
ist henni vel í starfi og með út-
sjónarsemi og hugmyndum lagði
hún grunn að fjölmörgum þátt-
um til úrbóta í starfsemi heilsu-
gæslunnar.
Hrafnhildur bar hag sam-
starfsfólks fyrir brjósti og lagði
áherslu á góð og fagleg sam-
skipti manna á milli.
Hún var einnig virk og
áhugasöm í að skipuleggja við-
burði og taka þátt í afþreyingu
starfsmanna. Menntun og
endurmenntun var henni hug-
leikin og var hún ötul í að hvetja
samstarfsfólk sitt til að afla sér
aukinnar menntunar. Hún var
ein þeirra sem tók þátt í að
koma á fót klínísku námi heilsu-
gæsluhjúkrunarfræðinga á veg-
um Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins í samvinnu við
Háskólann á Akureyri og kenndi
hún þar fyrstu nemendum sem
fóru í námið. Þetta var mikið
framfaraskref fyrir hjúkrun inn-
an heilsugæslunnar.
Hrafnhildur var samstarfs-
fólki góð fyrirmynd, hún var
lífsglöð, jákvæð og ósérhlífin í
störfum sínum, hún var svo
sannarlega hjúkrunarfræðingur
af lífi og sál og hennar er sárt
saknað af samstarfsmönnum.
Við minnumst Hrafnhildar
með hlýhug og virðingu og send-
um fjölskyldu hennar okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
F.h. samstarfsfólks heilsu-
gæslunnar í Mosfellsumdæmi,
Svanhildur Þengilsdóttir.
Allar minningar
á einum stað
MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að
geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst
hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is.
Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni
mbl.is/minningar.
Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa
frá árinu 2000 til dagsins í dag.