Fréttablaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 18
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Á sumum
stöðum er
engu líkara
en maður sé
staddur í
olíuríki við
Persaflóa í
miðjum
sandstormi.
Sandur og
svifryk fyllir
vit og lungu.
Þekkir þú einkenni hjartaáfalls? Að þekkja ein-kennin og bregðast við þeim getur skilið milli lífs og dauða. Hugsaðu aðeins málið …
Fyrr, nú og um framtíð
Í gær var alþjóðlegur baráttudagur kvenna haldinn
hátíðlegur. Þau skilaboð bárust frá skóla fimm ára dótt-
ur minnar hér í London að í stað skólabúnings mættu
börnin, í tilefni dagsins, klæðast fatnaði í grænu, hvítu
og fjólubláu; einkennislitum súffragettanna, breskra
kvenréttindakvenna við upphaf 20. aldar.
Þegar ég púslaði saman múnderingu fyrir dótturina
kom á mig fát. Hvernig útskýrir maður alþjóðlegan
baráttudag kvenna fyrir fimm ára barni? Átti ég að
segja dóttur minni sem stýrir sinni litlu veröld – for-
eldrum, bróður og vinum – af jafnglæfralegu sjálfs-
öryggi og framkvæmdastjóri fyrirtækis með hagstæða
ársfjórðungsskýrslu undir handleggnum að til sé fólk
sem telur hana síður hæfa en stráka til að stýra heim-
inum? Átti ég að segja henni að einu sinni hafi kyn-
systur hennar ekki átt neitt og ekki mátt neitt? Leiddi
slíkt ekki til komplexa? Þegar jafnréttisbaráttan var
komin jafnlangt og raun ber vitni, var það ekki óþarfa
fórnarlambavæðing að einblína stöðugt á það litla sem
vantaði upp á?
Ég hafði rifið allt út úr fataskáp dótturinnar án þess
að finna eina einustu fjólubláa spjör og var við það að
hefja undirskriftasöfnun gegn alþjóðlegum baráttu-
degi kvenna þegar dyrabjallan hringdi. Fyrir utan
dyrnar stóð sendill frá vefbókaverslun Amazon með
pappakassa sem í var harkaleg áminning um nauðsyn
aljóðlegs baráttudags kvenna – fyrr, nú og um ókomna
framtíð.
Jaðartilfelli
Flestir þekkja einkenni hjartaáfalls: Þyngsli fyrir
brjósti, eins og fíll sitji á brjóstkassanum. Ekki rétt?
Rétt. Nema þegar það er rangt. Einkenni hjartaáfalls
hjá konum eru oft önnur en hjá körlum. Þegar kona fær
hjartaáfall lýsir það sér gjarnan sem ógleði, þreyta og
verkur í kjálka, baki eða öxlum.
Bókin Invisible Women: Exposing Data Bias in a
World Designed for Men eftir Caroline Criado-Perez
sem kom út í vikunni er sláandi úttekt á stöðu kon-
unnar í nútímasamfélagi. „Upplifun karlmannsins
og sjónarhorn karlmannsins eru talin algild,“ skrifar
Criado-Perez. „Upplifun kvenna hins vegar – upplifun
helmings mannkyns – er metin sem jaðartilfelli.“
Á 21. öld þekkjum við ekki einkenni hjartaáfalls hjá
konum – bara körlum. Það eru 50% meiri líkur á að
kona fái ranga sjúkdómsgreiningu í kjölfar hjartaáfalls
en karl. En ekki nóg með það:
l Í tilraunum á dýrum í læknisfræði eru kvendýr
sjaldnast höfð með.
l Lyfjaprófun sem gerð var á áhrifum áfengisneyslu
á Viagra fyrir konur var gerð á tuttugu og þremur
körlum en aðeins tveimur konum.
l Það eru 47% meiri líkur á að kona slasist alvarlega
í árekstri því sætisbelti og loftpúðar bifreiða eru
hönnuð með stærð meðal karlmanns að leiðarljósi.
l Ýtarlegar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum
kolaryks á heilsu námuverkamanna. Nánast engar
rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum krabba-
meinsvaldandi efna á snyrtistofum sem naglasnyrtar
anda að sér í miklum mæli.
l Lögreglukonur klæðast stunguvestum sem eru
hönnuð til að vernda karla.
l 70% meiri líkur eru á að rafmagnstækið Google
Home skilji karlmannsrödd en kvenmannsrödd.
l Í Bretlandi eru fleiri styttur af körlum sem heita John
en styttur af konum.
l Aðeins 28% barna sem beðin eru um að teikna vís-
indamann teikna mynd af konu.
Súffragetturnar kunna að tilheyra sögunni. Það gerir
kerfislæg mismunun í garð kvenna hins vegar ekki. Í
ljósi tölfræðinnar ættu allir dagar að vera alþjóðlegir
baráttudagar kvenna. Að þekkja einkennin og bregðast
við þeim getur nefnilega skilið milli lífs og dauða.
Kynjajafnrétti og Viagra
Loftgæði í Reykjavík mælast nú með versta móti líkt og stundum er á þessum árstíma þegar veður er kalt og loft stillt. Loftgæði við að minnsta kosti tvær mælistöðvar í borginni
mælast „mjög slæm“.
Nægilegt er að líta út um gluggann í mið-
borginni, eða taka stuttan göngutúr til að
verða áþreifanlega var við svifryk og mengun
í lofti. Á sumum stöðum er engu líkara en
maður sé staddur í olíuríki við Persaf lóa í
miðjum sandstormi. Sandur og svifryk fyllir
vit og lungu.
Hvernig ástandið getur verið með þessum
hætti í lítilli borg í norðri er hreinlega ómögu-
legt að skilja. Loftmengun í Reykjavík er meiri
en tíðkast í margfalt stærri iðnaðarborgum.
Auðvitað er það svo að bílaumferð á lang-
mestan þátt í því að skapa vandamálið. Í þeim
efnum þarf fólk auðvitað að líta sér næst. Sú
staðreynd að fólki með öndunarsjúkdóma
og leikskólabörnum er reglulega ráðlagt
að halda sig innandyra er vitnisburður um
bjagaða forgangsröðun.
Hitt er svo annað mál að borgaryfirvöld
verða að sjá til þess að borgin sé sæmilega
hrein. Á því er mikil vöntun. Varla er ofsagt
að borgin sé drulluskítug. Ryk, sandur og
fjúkandi rusl á götum, umferðareyjum og
göngustígum.
Götuhreinsanir fara fram einu sinni á ári,
sem er hlægilegt í samanburði við þær borgir
sem við miðum okkur við á tyllidögum. Víða
eru götur hreinsaðar daglega eða vikulega.
Ferðamannaborgin Reykjavík kemur skelfi-
lega út úr öllum samanburði.
Borgarstjóri taldi það fráleitt að borgin
gæti liðkað fyrir yfirstandandi kjaraviðræð-
um með því að lækka útsvar og önnur gjöld á
vegum borgarinnar. Það væri auðvitað ekki
hægt án þess að skerða grunnþjónustuna.
En þegar svona viðrar, og tíðindi berast af
lokun grunnskóla í borginni að því er virðist
vegna vanrækslu við reglubundið og eðlilegt
viðhald, er eðlilegt að spyrja í hvað pening-
arnir séu eiginlega að fara? Að minnsta kosti
ekki grunnþjónustuna að því er virðist.
Það ætti að vera forgangsmál hjá borgar-
yfirvöldum og íbúum að ráða niðurlögum
mengunar í borginni. Reykvíkingar sjálfir
þurfa að horfast í augu við það að bílar eiga
ekki að vera í forgangi gagnvart heilsu fólks
og lífsgæðum, og þurfa að vera reiðubúnir að
sýna sveigjanleika þegar kemur að ferða-
venjum.
Borgaryfirvöld þurfa svo að sjá til þess að
borgin sé að minnsta kosti sæmilega hrein.
Bæði yfirvöld og borgarbúar geta gert svo
miklu, miklu betur.
Gerum betur
9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-0
E
3
C
2
2
8
7
-0
D
0
0
2
2
8
7
-0
B
C
4
2
2
8
7
-0
A
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K