Fréttablaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 28
verið afar náin föður sínum sem
hafi verið trúnaðarmaður hennar.
Fráfall Grants hafi einnig verið
geysilegt áfall fyrir föðurömmu
hennar, sem missti hinn son sinn
úr hjartaáfalli aðeins átta mán-
uðum fyrr.
„Við vorum öll að bíða eftir að
pabbi drægi saman seglin og settist
aftur að í Kanada. Planið hjá honum
var að vera með húsbíl á ströndinni
og f ljúga í hlutastarfi hér heima.
Hann var kominn nálægt þeim
tímapunkti að f lytja endanlega
heim,“ segir Sarah.
Sagt að biðin gæti verið þrjú ár
Sarah kveður lögmannsstofuna
Opus hafa reynst vel varðandi
f lutning á líki föður hennar utan
og móðir hennar hefði því fengið
traust á stofunni. Fljótlega hafi fjöl-
skyldan fengið að vita frá Opus að
vegna mikilla anna hjá rannsóknar-
nefnd flugslysa á Íslandi myndi fjöl-
skyldan þurfa að bíða í tvö til þrjú
ár eftir lokaskýrslu nefndarinnar.
Fyrr yrði ekki unnt að ljúka málum
varðandi skaðabætur og slíkt.
Reyndin er að skýrslur rann-
sóknarnefndar f lugslysa eru ekki
ætlaðar til að nota til að ákvarða
sök eða ábyrgð og má ekki nota
sem sönnunargagn fyrir dómstól-
um. Um þetta er gerður fyrirvari í
skýrslum nefndarinnar.
Afdrifaríkt getur hafa verið að
lögmanni fjölskyldunnar hjá Opus
yfirsást að skráður eigandi f lugvél-
arinnar var ekki Arngrímur sjálfur
heldur eignarhaldssjóður hjá Wells
Fargo bankanum í Salt Lake City í
Utah-fylki. Flugvélin var skráð í
Bandaríkjunum og bar þarlenda
einkennisstafi. Arngrímur var hins
vegar skjólstæðingur eignarhalds-
sjóðsins og réð því yfir vélinni sem
slíkur.
Glatað tækifæri vestan hafs
Þegar Sarah komst að hinu rétta
varðandi eignarhaldið á sjóflugvél-
inni og innti lögmanninn eftir því í
nóvember síðastliðnum hvort hún
hefði ekki gert sér grein fyrir þessu
sagði lögmaðurinn þær upplýsingar
vera nýjar fyrir sér. Þvert á móti
teldi hún staðfest með gögnum frá
lögreglunni og rannsóknarnefnd
f lugslysa að að vélin hefði verið í
eigu Arngríms á Íslandi. Hún hefði
ekki haft neina ástæðu til að draga
eignarhaldið í efa.
Aðeins þarf einfalda leit á netinu
til að sjá þær upplýsingar að flugvél-
in sem fórst og bar utan á sér banda-
rísku einkennisstafina N610LC var
skráð eign Wells Fargo Bank í Utah-
ríki í Bandaríkjunum.
Margar f leiri upplýsingar er um
þetta atriði að hafa.
Strax við skýrslutöku á Landspít-
alanum tíu dögum eftir slysið sagði
Arngrímur lögreglu frá því að flug-
vélin hefði verið í eigu sjóðs í Banda-
ríkjunum, það væri „cover“ en að
vélin væri í hans vörslu. Rannsókn-
arnefnd flugslysa sagði ekki í loka-
skýrslu sinni að Arngrímur væri
eigandi heldur skráður umráða-
maður vélarinnar. Í maí 2016 tapaði
Arngrímur dómsmáli í Hæstarétti
Íslands þar sem rök hans fyrir því
að fá felld niður aðflutningsgjöld af
E
y
j
a
f
j
ö
r
ð
u
r
A K U R E Y R I
G R E N I V Í KD A L V Í K
Ó L A F S F J Ö R Ð U R
S I G L U F J Ö R Ð U R
Um þremur korterum eftir
flugtak frá Akureyri brotlenti
Beaver-sjóflugvélin innarlega í
Barkárdal í um 2.260 feta hæð,
að því er kemur fram í skýrslu
rannsóknarnefndar flugslysa.
Berglind Glóð Garðarsdóttir,
lögmaður hjá Opus, segir það
vissulega rétt að hún hafi ekki út-
skrifast sem lögfræðingur fyrr en
vorið 2015. Hjá Opus sé það hins
vegar ekki endilega þannig að einn
lögmaður fari algjörlega með til-
tekið mál. Allir á stofunni komi að
málum og menn beri sig saman.
„Í umboðinu sem Roslyn og aðr-
ir undirrita er því beint til ákveðins
lögmanns eða lögfræðings og eða
til annarra innan stofunnar sem
hafa sérþekkingu hverju sinni,“
segir Berglind. Í tilfelli Wagstaff-
fjölskyldunnar hafi einn eigenda
Opus einnig komið að málinu.
Hún hafnar því fullyrðingum um
að reynsluleysi hafi skemmt fyrir
máli fjölskyldunnar.
„Þó að það sé einhver einn í
samskiptum við aðila þá er málið
auðvitað unnið innan stofunnar.
Það er fundað um mál og sá sem
hefur besta sérþekkingu hverju
sinni tekur ákvarðanir. Gögn
sem send eru út eru lesin af fleiri
en einum og fleiri en tveimur
lögfræðingum og lögmönnum,“
útskýrir Berglind.
Þá segir Berglind ekki rétt að
ekki hafi verið lögð fram krafa á
hendur Sjóvá fyrr en lokaskýrsla
rannsóknarnefndar flugslysa lá
fyrir. Krafa hafi verið lögð fram á
sínum tíma á grundvelli lögreglu-
skýrslu sem þá hafi legið fyrir.
„En tryggingafélagið hafnaði því
strax því að ábyrgðin hvílir ekki á
hlutlægum grundvelli. En varðandi
sökina fengum við neitun að sinni
en að það yrði tekin aftur afstaða
þegar skýrsla rannsóknarnefndar-
innar lægi fyrir,“ rekur Berglind.
Þótt ekki megi nota skýrslur
rannsóknarnefndarinnar í saka-
málum segir Berglind annað eiga
við um skaðabótamál. „Skýrsla
rannsóknarnefndarinnar er ekki
notuð í sakamáli gegn mönnum
en það er hægt að nota hana í
einkamáli,“ segir hún. Fyrir hafi
legið að Sjóvá vildi bíða skýrsl-
unnar. „Þeir myndu aldrei taka
Lögmaður hafnar ásökunum dótturinnar
Í skýrslu lögreglunnar eru myndir af Arngrími Jóhannssyni og Grant
Wagstaff nokkrum mínútum áður en þeir tóku á loft frá Akureyrar-
flugvelli klukkan 14.01 sunnudaginn 9. ágúst 2015. Um 45 mínútum
eftir flugtak brotlenti vélin í Barkárdal.
ÞETTA TRYGGINGARMÁL
ER HREINLEGA SVO GRÓFT.
VIÐ FÁUM EKKERT SEM
VIÐURKENNINGU Á ÞEIM
SÁRSAUKA OG ÞJÁNINGU
SEM VIÐ ERUM AÐ GANGA
Í GEGN UM.
„Á meðan á rannsókninni
stóð var metið hvort ætti að
skilgreina ferjuflugmanninn
eingöngu sem farþega eða sem
pilot not flying (PNF) [flug-
mann sem er ekki að fljúga].
Á því andartaki sem ferjuflug-
maðurinn tók þátt í undirbúningi
slysaflugsins hætti þetta að vera
flug með eins flugmanns áhöfn,“
segir í skýrslu rannsóknarnefnd-
ar flugslysa. „Á grundvelli þeirrar
staðreyndar að ferjuflugmaður
var ráðinn til ferjuflugsins og tók
bæði að sér verkefni á meðan í
undirbúningi fyrsta áfanga flugs-
ins og á meðan neyðarástand
varði hafi umferðaröryggisráð
Íslands ákveðið að skilgreina
ferjuflugmanninn sem PNF.“
Úr skýrslu rannsóknarnefndar
flugslysa
Pilot not flying
Berglind Glóð
Garðarsdóttir,
lögmaður hjá
Opus.
lokaákvörðun varðandi skaða-
bótaábyrgðina fyrr en að skýrslan
lægi fyrir.“
Varðandi flugvélina segir Berg-
lind lögmenn hjá Opus hafa vitað
að vélin væri skráð í Bandaríkj-
unum þótt þau hafi ekki vitað að
hún væri í eigu eignarhaldssjóðs
í Wells Fargo bankanum í Banda-
ríkjunum. Samkvæmt gögnum
sem þau hafi fengið frá lögreglu
hafi Arngrímur verið eigandinn og
vélin tryggð hjá Sjóvá-Almennum
tryggingum.
„Vélin var staðsett á Íslandi og
tryggð á Íslandi þannig að við
vorum í rauninni bara að sjá um
málið á Íslandi. Við fáum einfald-
lega upplýsingar um flugvélina,
tryggingar og annað slíkt frá lög-
reglu,“ segir Berglind sem kveðst
hafa efasemdir um að hægt hefði
verið að reka mál vegna flugslyss-
ins í Bandaríkjunum. Slysið hafi
orðið á Íslandi og flugvélin; ásamt
flugmanni og farþegum, verið
tryggð hjá íslensku trygginga-
félagi.
„Okkur var falið að annast málið
hér á Íslandi, varðandi íslensk lög
og íslenska lögsögu og vélin var
rétt tryggð samkvæmt íslenskum
lögum. Við höfum séð um allt
sem snýr að íslensku réttarvörslu-
kerfi en við eru ekki sérfræðingar
í bandarískum skaðabótarétti,“
bendir Berglind á. Lögmanninum
sem upphaflega tók málið að sér
hjá Opus hafi einungis verið falið
að annast málið á Íslandi.
Þá kveður Berglind lögmann
Opus hafa hvatt Wagstaff-fjöl-
skylduna til að láta kanna málið
ytra. „Þeim var bent á að kanna
rétt sinn þar,“ segir Berglind Glóð
Garðarsdóttir.
9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-3
0
C
C
2
2
8
7
-2
F
9
0
2
2
8
7
-2
E
5
4
2
2
8
7
-2
D
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K