Fréttablaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 20
Fjölnir - Valur 25-28
Fjölnir: Breki Dagsson 8, Arnar Máni
Rúnarsson 4, Björgvin Páll Rúnarsson 4,
Brynjar Loftsson 2, Brynjar Óli Kristjánsson
2, Þorleifur Rafn Aðalsteinsson 2, Haf-
steinn Óli Berg Ramos Rocha 1, Daníel Freyr
Rúnarsson 1.
Valur: Magnús Óli Magnússon 5, Anton
Rúnarsson 5, Ýmir Örn Gíslason 5, Sveinn
Aron Sveinsson 3, Róbert Aron Hostert 3,
Stiven Tobar Valencia 2, Vignir Stefánsson
2, Ásgeir Snær Vignisson 2, Arnór Snær
Óskarsson 1.
FH - ÍR 25-24
Nýjast
Coca-cola bikar karla
KR - Stjarnan 88-87
KR: Julian Boyd 28/13 fráköst, Michele
DiNunno 27, Kristófer Acox 12/10 fráköst,
Finnur Atli Magnússon 8, Björn Kristjánsson
4, Helgi Már Magnússon 4, Emil Barja 3,
Pavel Ermolinskij 2.
Stjarnan: Brandon Rozzell 29, Antti Kanervo
17, Hlynur Bæringsson 14/10 fráköst, Filip
Kramer 13, Ægir Þór Steinarsson 6/10 stoð-
sendingar, Collin Pryor 4, Tómas Þórður
Hilmarsson 2, Dúi Þór Jónsson 2.
Domino’s-deild karla
Valsmenn sluppu með skrekkinn gegn sprækum Fjölnismönnum
Fjölnismenn voru grátlega nálægt því að komast í bikarúrslitaleikinn í fyrsta sinn gegn Val þegar liðin mættust í undanúrslitum bikarsins í gær.
Vafasamt vítakast var dæmt á Fjölni þegar fimm sekúndur voru til leiksloka og rautt spjald á varnarmann Fjölnis sem leiddi til þess að Valur
jafnaði metin á lokasekúndum venjulegs leiktíma. Í framlengingunni tókst Valsmönnum síðan að sigla sigrinum heim. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
HANDBOLTI Það verður boðið upp
á handboltaveislu í Laugardalshöll
í dag þegar úrslitaleikirnir í Coca
Cola-bikarnum í karla- og kvenna-
flokki fara fram. Í kvennaflokki eru
það tvö efstu lið landsins og liðin
sem börðust um Íslandsmeistara-
titilinn í fyrra, Valur og Fram, sem
mætast en í karlaflokki verður það
FH sem mætir Val þetta árið. Þetta
verður því tvíhöfði fyrir stuðnings-
menn Vals og verður leikurinn gegn
Fram í kvennaf lokki f lautaður á
klukkan 13.30 og seinni leikur dags-
ins hefst klukkan fjögur.
Fréttablaðið fékk Jónatan Þór
Magnússon, þjálfara KA/Þórs til að
rýna í leikina tvo.
Fram er ríkjandi bikarmeistari
í kvennaflokki eftir að hafa unnið
sextánda bikarmeistaratitilinn sinn
á síðasta ári en Valsliðið getur bætt
þeim sjöunda við í safnið í dag og
þeim fyrsta í fimm ár. Til þess þarf
Valur að vinna Fram í fyrsta sinn í
vetur eftir að Framarar unnu fyrstu
tvo leiki liðanna í Olís-deildinni ,
þar á meðal fimm marka sigur í Vals-
heimilinu síðast þegar liðin mættust.
„Valur og Fram hafa sýnt það í
vetur að þau eru í sérf lokki hvað
varðar gæði og breidd. Það munar í
leikjum eins og þessum þar sem það
eru tveir leikir með stuttum tíma.
Ég á von á alvöru naglbít með fram-
lengingum þar sem markvarslan
ræður úrslitum,“ sagði Jónatan og
hélt áfram:
„Þótt ÍBV sé með frábæra vörn er
það áhyggjuefni fyrir Valsliðið að
þær náðu aðeins að setja 17 mörk
gegn ÍBV fyrir leik gegn einni öflug-
ustu vörn landsins.“
Í karlaf lokki eru það Valsmenn
sem eru sigursælastir með tíu bik-
armeistaratitla, þann síðasta fyrir
tveimur árum, en FH hefur orðið
bikarmeistari fimm sinnum. Aðeins
Víkingur R. (6), Haukar (7) og Valur
hafa oftar unnið bikarinn í karla-
flokki en FH þótt að það séu 25 ár
liðin síðan FH varð bikarmeistari.
„Ég á von á annarri eins spennu í
þessum leik. Það mun mikið mæða
á markvörðunum en það verður
annað einvígi sem verður gaman að
fylgjast með. Einvígi Magnúsar Óla
og Ásbjörns mun ráða úrslitunum í
seinni leik dagsins.“
kristinnpall@frettabladid.is
Markvarslan mun ráða úrslitum
Það mun mæða á Söndru og Karen í sóknarleiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Fifa hafnaði
beiðni Chelsea
E N S K I BOLTINN Alþjóðaknatt-
spyrnusambandið, FIFA, hafnaði
í gær beiðni Chelsea um að fresta
félagsskiptabanni félagsins um
eitt ár sem Chelsea hafði óskað
eftir. Chelsea sendi frá sér tilkynn-
ingu þar sem félagið lýsti yfir von-
brigðum með ákvörðun FIFA og gaf
til kynna að málinu yrði áfrýjað til
Alþjóðaíþróttadómstólsins í Sviss.
Chelsea neitar sök í málinu sem
snýst um að félagið hafi brotið regl-
ur FIFA um félagsskipti leikmanna
undir átján ára aldri. Samkvæmt
úrskurði FIFA mun Chelsea ekki fá
að kaupa leikmenn fyrr en sumarið
2020. – kpt
9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-2
1
F
C
2
2
8
7
-2
0
C
0
2
2
8
7
-1
F
8
4
2
2
8
7
-1
E
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K