Fréttablaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 11
Við getum ekki haft
velmegandi og
friðsæl samfélög ef það er
haldið aftur af helmingi
íbúanna.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherrra og Kristalina tóku í vikunni
þátt í málstofu um konur, viðskipti og lög. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Lagaleg staða kvenna í
heiminum er misjöfn
Í skýrslu Alþjóðabankans kemur
fram að konur í heiminum njóta
að meðaltali aðeins um 75 pró-
senta af lagalegum réttindum
karla. Aðeins sex lönd mældust
með jafna stöðu en það eru
Belgía, Danmörk, Frakkland,
Lettland, Lúxemborg og Sví-
þjóð.
Ísland er í 16.-18. sæti listans
en samkvæmt niðurstöðum
skýrslunnar njóta konur hér á
landi 96,88 prósenta af laga-
legum réttindum karla. Það sem
upp á vantar er ákvæði í lögum
sem tryggir einstaklingum sem
kjósa að vera heima og sinna
börnum sínum lífeyrisréttindi.
Við mat á lagalegri stöðu
kvenna var horft til 35 mis-
munandi þátta í lagaumhverfi
landanna í átta meginflokkum.
Þeir snúa að réttindum varðandi
ferðafrelsi, atvinnu, laun, hjú-
skap, barneignir, atvinnurekstur,
eignir og lífeyrisréttindi.
Ef aðeins er horft til OECD-
ríkja þar sem tekjur eru hæstar
er meðaltal réttindanna 93,5
prósent. Verst er lagaleg staða
kvenna í Miðausturlöndum og
Norður-Afríku þar sem konur
njóta aðeins rúmlega 47 pró-
senta af réttindum karla.
Staðan á heimsvísu hefur
batnað á síðustu tíu árum en
meðaltal réttindanna var um 70
prósent árið 2008. Á tímabilinu
hefur staða kvenna batnað í
öllum heimshlutum, hlutfalls-
lega mest í Suður-Asíu.
þessu á síðasta ári. Þannig er ég
núna að stýra fundum þar sem
kynjahlutfallið er jafnt. Það breytir
umræðunum að fá fleiri sjónarhorn
á hlutina. Ég er sannfærð um að við
tökum betri ákvarðanir þegar við
höfum þennan fjölbreytileika.“
Kristalina segist á sínum starfs-
ferli hafa þurft að leggja meira á sig
heldur en karlkyns kollegar sínir
til að sanna sig og teljast jafningi
þeirra.
„Ég man hvernig þetta var á fyrstu
árum mínum í bankanum. Ein-
hverju sinni þegar ég var búin að
vera þarna í nokkur ár stóð bankinn
frammi fyrir mjög krefjandi verk-
efni. James Wolfensohn sem var þá
forseti bankans sneri sér að mér og
sagði: „Kristalina, svo mikið verk að
vinna en svo fáar konur.“ Það hefur
breyst. Sem betur fer.“
A lþjóðabank inn bir ti f y r ir
skömmu nýja skýrslu um þróun
á lagalegri stöðu kvenna í heim-
inum. Kristalina segir að staðan
hafi batnað á þessu tímabili en það
gerist samt of hægt. Ástandið og
áskoranirnar séu mjög mismunandi
milli heimshluta.
„Norðurlöndin og Eystrasalts-
löndin standa sig mjög vel þegar
kemur að jafnréttismálum. Við
gerðum þessa skýrslu bæði til að
hvetja lönd heimsins áfram en
líka til að benda á vel heppnaðar
umbætur og góðar reynslusögur.
Við hvetjum lönd til að grípa til
aðgerða til að auka réttindi kvenna
því það er siðferðislega rétt.“
Jafnrétti kynjanna komi sér líka
vel fyrir efnahaginn. „Við getum
ekki haft velmegandi og friðsæl
samfélög ef það er haldið aftur af
helmingi íbúanna.“
Fyrir mörg lönd í heiminum snú-
ist áskorunin fyrst og fremst um að
bæta löggjöfina varðandi réttindi
kvenna. „Við sjáum mörg jákvæð
merki í skýrslunni um árangur
jafnvel þar sem aðstæður eru mjög
erfiðar. Til dæmis hefur lögum verið
breytt í Afganistan þannig að konur
hafa nú sjálfstæðan rétt til að eign-
ast vegabréf.“
Hins vegar séu aðrar áskoranir
fyrir lönd eins og Ísland þar sem
lagaleg staða kvenna er góð. „Fyrir
þau lönd sem hafa lagaumhverfið í
lagi þarf samt ennþá að tryggja að
þessum lögum sé framfylgt. Það er í
mörgum löndum lögum samkvæmt
skylt að borga körlum og konum
sömu laun fyrir sömu vinnu en það
er ekkert land í heiminum sem nær
því alveg.“
Þess vegna fagnar Kristalina
sérstaklega úrræðum eins og jafn-
launavottun sem var lögfest á
Íslandi árið 2017. „Þetta er mjög
áhugavert framtak og vonandi
munu aðrar þjóðir fylgja í kjölfarið.“
Alþjóðabankinn var stofnaður í
lok seinni heimsstyrjaldarinnar og
var ætlað að vera lánveitandi fyrir
fátækari ríki heims. Hlutverk hans
er enn að stuðla að efnahagslegri og
félagslegri uppbyggingu þróunar-
landa.
Tvö meginmarkmið bankans eru
að berjast gegn fátækt í heiminum
og að stuðla að jafnari dreifingu
hagsældar. Þannig er markmiðið
að árið 2030 búi aðeins þrjú prósent
íbúa heimsins við sára fátækt en þá
er miðað við að einstaklingur lifi af
minna en 1,90 dollurum á dag.
Frá 1990 til 2015 lækkaði hlutfall
jarðarbúa sem búa við sára fátækt
úr 36 prósentum í 10 prósent. Spár
Alþjóðabankans gera ráð fyrir að
þetta hlutfall hafi farið niður í 8,6
prósent á síðasta ári.
Stærstur hluti vandans er nú í
ríkjum Afríku sunnan Sahara en
þar býr um helmingur hópsins. Þá
eru 26 af 27 fátækustu ríkjum heims
á þessu svæði.
Ísland mun taka sæti í stjórn
bankans síðar á árinu sem fulltrúi
kjördæmis Norðurlanda og Eystra-
saltsríkja. Geir H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra, verður
fulltrúi Íslands.
Fram undan er val á nýjum for-
seta bankans. Hefð hefur verið
fyrir því að forseti Bandaríkjanna
tilnefni forseta Alþjóðabankans
en Evrópa framkvæmdastjóra
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Donald Trump hefur tilnefnt
David Malpass sem er hátt settur í
bandaríska fjármálaráðuneytinu.
Hann var efnahagsráðgjafi Trumps
í forsetakosningunum 2016.
Malpass hefur í gegnum tíðina
gagnrýnt Alþjóðabankann og sagt
hann of stóran og óskilvirkan. Fjár-
málaráðuneyti Líbanons hafði til-
nefnt Ziad Hayek í forsetastólinn
en sú tilnefning var dregin til baka
í vikunni vegna þrýstings annarra
ríkja. sighvatur@frettabladid.is
Mitsubishi Eclipse Cross / Instyle / 4x4 Skoda Karoq / Ambition / 1.6 TDI / Sjálfskiptur
Fullt verð: 5.490.000 kr. Fullt verð: 4.850.000 kr.Veftilboð: 5.190.000 Kr.
Volkswagen e-Golf / Rafmagnaður
Fullt verð: 4.540.000 kr. Veftilboð: 4.290.000 Kr.
Veftilboð: 4.550.000 Kr.
Audi Q7 e-tron / Design / 4x4
Fullt verð: 12.300.000 kr. Veftilboð: 10.990.000 Kr.
9
mars
kl. 12-16
VEFVEISLAHEKLU
NÝ VEFVERSLUN HEKLU OPNAR
VEFVEISLA www.hekla.is/vefverslun
LÉTTAR VEITINGAR
Krispy Kreme.
PÁSKAEGGJALEIKUR
Í verðlaun eru páskaegg frá Góu og 100.000 Kr. inneign í vefverslun HEKLU.
Hér er aðeins sýndur hluti af bílum í boði en þó er um takmarkað magn bíla að ræða. Fyrstir koma, fyrstir fá! Fullt verð er verð hvers bíls með aukabúnaði.
Aukabúnaður á myndum gæti verið annar en í auglýstum verðdæmum. Birt með fyrirvara um prentvillur.
DÚNDURTILBOĐ
Tilboð á nýjum og notuðum HEKLU-bílum.
20% afsláttur af þverbogum, skíða- og hjólafestingum.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is HEKLA Notaðir bílar · Kletthálsi 13 · 110 Reykjavík
VELTIBÍLLINN
Veltibíllinn verður á svæðinu.
BLÖĐRULISTAMENN
ANDLITSMÁLNING
Afsláttur
250.000 Kr.
Afsláttur
300.000 Kr.
Afsláttur
1.310.000 Kr.
Afsláttur
300.000 Kr.
*V
er
ðu
r á
L
au
ga
ve
gi
1
70
-1
74
F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11L A U G A R D A G U R 9 . M A R S 2 0 1 9
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
8
7
-2
B
D
C
2
2
8
7
-2
A
A
0
2
2
8
7
-2
9
6
4
2
2
8
7
-2
8
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K