Fréttablaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 84
Ása og félagar hennar festu jeppann uppi á miðju hálendi. Veður versnaði
og ekkert símasamband. Þeim var bjargað fyrir hreina tilviljun.
Ása er
nýkomin frá
Kanada þar
sem náttúru-
fegurðin er
grípandi.
Ása nýtur
þess einnig
að ferðast á
Íslandi.
Þverhnípi í Himalaya
Maðurinn bjargaði þeim ofan af
hálendinu og það tók langan tíma.
„Þetta var ótrúleg tilviljun. Ef hann
hefði ekki komið, þá hefðum við
aldrei komist heim. Hann var í ferð
með fjölskyldu sem þyrsti í öðru-
vísi ævintýri. Hann þurfti að draga
okkur ellefu sinnum áður en við
komumst niður af hálendinu,“ segir
Ása sem býr að reynslunni ævilangt.
„Það er svo skrýtið hvernig haus-
inn á manni fer af stað. Fyrsta við-
bragð er að ganga eitthvert í burtu.
Það er eitthvað sem maður á alls
ekki að gera heldur bíða. En það er
svo sterk þörfin sem kviknar hjá
manni að gera eitthvað, reyna eitt-
hvað til að komast úr aðstæðunum
og maður þarf að vinna gegn því,“
segir Ása.
Hún segist einnig oft hafa verið
í mjög krefjandi aðstæðum í Ind-
landi þar sem reyndi á innri ró
og jafnaðargeð. „Til dæmis í rútu-
ferðum hátt í Himalajafjöllunum
þar sem er þverhnípt niður. Engin
bílbelti og há tónlistin og bílstjór-
inn trúir bara á æðri mátt. Það er há
slysatíðni og mannslíf í Indlandi eru
ekki jafn mikils metin og hér heima.
Maður sá slysin gerast og fólk kippir
sér ekki upp við það og heldur bara
áfram í sínu.“
Á vini víða um heim
Einna dýrmætast við starfið og
ferðalögin sem því fylgja er vináttan
og tengslanetið sem Ása hefur byggt
upp um allan heim.
„Mér þykir ótrúlega vænt um
vina- og tengslanetið, sem er úti um
allan heim. Ég finn kannski mest
fyrir því þegar ég er að ferðast því
núorðið á ég vini í f lestum borgum.
Nýlega ferðaðist ég til Havaí og
gat þá gist hjá fjölskyldu vinkonu
minnar. Þau lánuðu mér bíl og pabbi
hennar sem er f lugmaður fór með
mig í f lugferðir. Það er ómetanlegt
að búa að því að þekkja fólk af ólíkri
menningu víða um heim. Það víkkar
sjóndeildarhringinn,“ segir Ása og
segist einnig eiga góðan vin í Óman
sem hún hefur heimsótt tvisvar.
„Hann hefur komið fjórum sinn-
um til Íslands og kemur með ferskar
döðlur til mín. Ég kem með íslenskt
nammi til hans og hann lánar mér
arabíska kjóla og klæðnað. Þetta er
alveg magnað að geta þetta. Ég fæ
stundum samviskubit yfir því hvað
ég er lítið heima, en veit á sama tíma
að mínir góðu vinir á Íslandi eru til
staðar,“ segir Ása.
Vann fyrir bílarisann Audi
Ásu líður best úti í náttúrunni. Hún
segist vita að hún sé ekki hefðbund-
in og beðin um að lýsa sér leitar hún
til vinkvenna sinna. „Þær segja sko
að ég sé strákur í skvísulíkama. Ég
er líka sögð rótlaus, það er ef til vill
augljóst. Ég fíla alls ekki mikla rút-
ínu og þarf fjölbreytni og áskoranir,“
segir hún.
Henni hefur gengið óhemjuvel
síðustu ár að byggja upp feril sinn.
Henni fylgja tæplega 130 þúsund
manns á Instagram og mun f leiri
horfa á ljósmyndir hennar og mynd-
skeið. Hún fær sífellt f leiri verkefni
og tækifærin eru helst hjá stórum
erlendum fyrirtækjum.
„Það verkefni sem ég er hvað stolt-
ust af er þegar ég fékk að vinna fyrir
bílaframleiðandann Audi í sviss-
nesku Ölpunum. Þeir voru að kynna
nýjan bíl og ég myndaði ferðalagið
í gegnum Alpana á honum og fór til
þriggja landa, Sviss, Austurríkis og
Þýskalands. Þetta var mjög gaman,“
segir Ása.
Draumurinn að segja sögu
Framtíðardraumar Ásu eru að
mynda enn meira í náttúrunni og
segja sögu breytinga sem eru að
verða vegna loftslags og ágangs
manna.
„Áhugi minn er á náttúruljós-
myndun, ég vil segja sögu með
myndum mínum og vekja athygli
á málefnum eins og til að mynda
bráðnun íss á Suðurskautslandinu
og í Ölpunum og lít upp til nokk-
urra ljósmyndara sem gera það nú
þegar og hafa mikil áhrif,“ segir Ása
sem segir mikilvægt að skrásetja
breytingar á náttúrunni. „Heimur-
inn er að breytast svo mikið, ég held
að besta leiðin til að vekja athygli á
því sé að taka myndir. Hér á Íslandi
líka, jöklarnir okkar eru að breytast
og bráðna. Ljósmyndarar í Noregi
hafa tekið áhrifamiklar myndir af
laxeldi í Noregi og sýnt fram á skað-
leg áhrif á villta laxastofninn. Þetta
er draumurinn í augnablikinu,“
segir Ása sem segist átta sig á því að
draumar geti breyst. „Kannski vil ég
einn daginn bara vera á einum stað,
hver veit?“ segir hún.
Karllægur bransi
Ása þurfti að hafa fyrir því að koma
ár sinni vel fyrir borð í náttúruljós-
myndun sem er karllægur bransi.
„Það eru ekki margar stelpur að
mynda náttúruna og landslag og
þetta er klárlega mjög karllægur
bransi. Stór fyrirtæki sem bjóða
ljósmyndurum í myndatúra bjóða
oft bara strákum og körlum. Það
gerði til dæmis Olympus-fyrirtækið
og maður hugsar með sér, í alvöru?
Það er 2019. Að það skuli enginn
fatta að bjóða konum í þessar ferðir,
það skil ég ekki,“ segir Ása og segir
mikilvægt að skoða samhengið.
Hvers vegna það séu fáar stelpur og
konur sem leggja fagið fyrir sig.
Vísað á krúttlega myndavél
„Ég hef aldrei áður orðið vör við
kynjamismunun nema í þessum
bransa. Ég ákvað bara að verða bara
betri og fá verkefni. Sanna mig. Það
rann líka upp fyrir mér ljós. Þegar
það hallar á konur þá skekkist allt.
Þegar ég hugsa um það þá finn ég og
veit að mig hefur alltaf langað til að
verða ljósmyndari þótt leiðin hafi
verið löng. En hvatningin og fyrir-
myndirnar voru ekki til staðar. Ég
velti því stundum fyrir mér hvers
vegna fólk tengir þetta ekki saman
og sér samhengið.
Ég get nefnt dæmi, þegar ég var
að kaupa mér ljósmyndabúnað og
nefni að ég þurfi alvöru búnað þá
var mér vísað á krúttlega mynda-
vél, Canon Kiss X. Þetta er ekki
eina dæmið, þetta eru ótal skref og
ótal krókar á leiðinni,“ segir Ása.
„Og þegar maður hellir sér út í fagið
þá tekur maður meira og meira
eftir þessu. Þess vegna fagnaði ég
því mjög að fá jafn stórt verkefni
og fyrir bílarisann Audi. Það var
áfangi og sýndi að ég, stelpan, get
þetta. Þetta er karlavígi, það er
staðreynd og það er verst þegar
stór fyrirtæki sjá þetta ekki,“ segir
Ása sem segir að þannig sé erfiðara
að koma á viðhorfsbreytingu. „Við
erum færri, eðlilega eru fleiri karlar
ráðnir þegar þeir eru svona margir.
En mér finnst líka eðlilegt að vera
með fáeinar stelpur í hópnum.“
Kann illa við orðið áhrifavaldur
Þó að Ása hafi nærri 130 þúsund
fylgjendur á Instagram kann hún
illa við orð á borð við; samfélags-
miðlastjarna og áhrifavaldur.
„Orðið áhrifavaldur er svo ýkt.
Áhrifavaldar hér áður fyrr voru
brautryðjendur á borð við Einstein!
Fólk sem hafði alvöru áhrif.
Þó að ég fái bara jákvæð við-
brögð fer ekki fram hjá mér neikvæð
umræða um ungt fólk á samfélags-
miðlum, en mörg okkar eru hins
vegar að byggja upp feril og atvinnu.
Ég fengi ekki þau atvinnutækifæri
sem mér bjóðast án samfélags-
miðla og ég gæti heldur ekki lifað
þessum lífsstíl. Instagram-síðan
mín er nokkurs konar ferilmappa,
ég er að skapa mér ákveðna ímynd
og maður þarf virkilega að hugsa
og vera einbeittur í því hvað maður
setur á miðilinn. Því þetta er í raun
fjölmiðill og ég er meðvituð um að
áhorf og lestur á minni síðu er marg-
faldur á við þá sem fylgja mér. Eina
ljósmynd sem fær 20 þúsund læk
hafa 240 þúsund manns séð.“
Þetta er framtíðin
Ríkisskattstjóri vakti ný verið
athygli á því að svokallaðir áhrifa-
valdar hefðu skattskyldu og birti
leiðbeiningar þess efnis. Undan-
farið hefði stækkað sá hópur fólks
sem hefur tekjur af markaðssetn-
ingu vöru og þjónustu á samfélags-
miðlum.
„Það er undarlegt að einblína sér-
staklega á það að áhrifavaldar hafi
skattskyldu. Að sjálfsögðu bera allir
sem hafa tekjur skattskyldu. Að
taka út eina starfsgrein finnst mér
skrýtin umræða. Ég er bara með
minn endurskoðanda eins og flest-
ir sem taka reksturinn alvarlega,“
segir Ása og segist stundum finna að
lítið sé gert úr framtaki ungs fólks.
„Það er ýjað að því að þetta sé
allt á gráu svæði. En það er það
ekki. Þetta er svolítið framtíðin.
Svar fólks við því að það skortir
fjölbreytni og vettvang. Það er svo
mikið af ungu fólki sem er að gera
góða hluti og er líka hvetjandi fyrir
annað ungt fólk. Flottar fyrirmynd-
ir. Við lærum hraðar, þetta er minni
heimur, f leiri tækifæri. Samfélags-
miðlar snúast ekki alfarið um útlits-
dýrkun og neysluhyggju. Ég man
þegar ég byrjaði á Instagram, það
var af einni ástæðu. Til að fylgja ljós-
myndaranum Paul Nicklen. Hann
sérhæfir sig í að mynda náttúruna
og gerir það af einstakri ástríðu. Á
bak við myndirnar er mikil vinna
og stundum fylgja sögurnar með.
Þetta er komið til að vera og sér-
staklega hjá þeim sem eru í þessu af
lífi og sál.“
Myndir úr ferðalögum Ásu eru
á+Plús síðu Fréttablaðsins.
Fréttablaðið +Plús er eingöngu
í Fréttablaðs-appinu eða í
PDF-útgáfu blaðsins sem er
aðgengileg á frettabladid.is.
+PLÚS
VIÐ LÆRUM HRAÐAR,
ÞETTA ER MINNI HEIMUR,
FLEIRI TÆKIFÆRI. SAM-
FÉLAGSMIÐLAR SNÚAST
EKKI ALFARIÐ UM ÚT-
LITSDÝRKUN OG NEYSLU-
HYGGJU.
9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
8
7
-2
1
F
C
2
2
8
7
-2
0
C
0
2
2
8
7
-1
F
8
4
2
2
8
7
-1
E
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K